Af hverju hrundi Samfylkingin?

Sam­fylk­ingin stendur ekki undir nafni sem turn­inn á vinstri vængnum. Flokk­ur­inn er í sárum eftir fylg­is­hrun, og erfitt er að sjá hann ná vopnum sínum aftur, nema með nýju upp­hafi og miklum breyt­ingum.

Enginn flokkur tap­aði meira hlut­falls­lega frá kosn­ing­unum 2013 en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, eða 12,9 pró­sentu­stigum. Árið 2013 fékk flokk­ur­inn 24,4 pró­sent en féll niður í 11,5 pró­sent. Sam­fylk­ingin missti 7,2 pró­sentu­stig frá árinu 2013, sem þá var versta útkoma flokks­ins í kosn­ingum frá stofnun. Í þetta sinn fékk flokk­ur­inn 5,9 pró­sent og er með aðeins þrjá þing­menn. Árið 2013 fékk flokk­ur­inn 12,9 pró­sent, en árið 2009 fékk flokk­ur­inn 29,7 pró­sent atkvæða og tók rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, þáver­andi for­manns flokks­ins, þá við völdum. Óhætt er að segja að fall flokks­ins sé hátt og um leið mikil póli­tísk tíð­indi.

Flokk­ur­inn sem stofn­aður var 5. maí árið 2000, í þeim til­gangi að sam­eina vinstri menn og verða mót­vægi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn á hægri vængnum, hefur nú næstum þurrkast út, en aðeins mun­aði 0,9 pró­sentum að hann næði ekki 5 pró­sent lág­mark­inu sem til þarf. Framtíð flokks­ins er óljós og for­ysta eins veik og hugs­ast getur. Fyrsti for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og ein helsta tákn­mynd flokks­ins frá stofnun, reynslu­bolt­inn Össur Skarp­héð­ins­son, náði ekki sæti á þingi í þetta skiptið, sem segir sína sögu stöðu flokks­ins, en hann hefur um ára­tuga­skeið verið með vin­sæl­ustu stjórn­mála­mönnum Reyk­vík­inga.

En hvers vegna er svona komið fyrir þessu fyrrum stór­veldi í íslenskri póli­tík? Margar ástæður má nefna, en hér verður fjallað um fimm atriði sér­stak­lega.

Innanmein

1. — Innri deilur hafa ein­kennt flokks­starf Sam­fylk­ing­ar­innar und­an­farin ár og út á við – þaðan sem kjós­endur horfa – hefur for­ysta flokks­ins verið með veika stöðu innan flokks­ins um langt skeið. Vorið 2015 var ákveð­inn vendi­punktur en þá bauð Sigríður Ingi­björg Inga­dóttir sig fram gegn þáver­andi for­manni flokks­ins, Árna Páli Árnasyni. Fund­ur­inn fór fram í mars, og sigr­aði Árni Páll slag­inn með minnsta mögu­lega mun, aðeins einu atkvæði. Ljóst var á þessu að staða for­manns­ins – og þar með helstu raddar flokks­ins út á við – var veik. Sigríður Ingi­björg sagði sjálf að ástæðan fyrir því að hún hafi boðið sig fram, hafi verið óásætt­an­leg staða flokks­ins, meðal ann­ars í könn­unum, og að doð­inn í flokknum væri skelfi­legur, eins og fram kom í frétt RÚV frá því í apríl á þessu ári, þegar ósætti í for­ystu flokks­ins kom aftur upp á yfir­borðið.

Sameiningu og nýju upphafi hafnað

2. – Fyrir lands­fund Sam­fylk­ing­ar­innar á sum­ar­mán­uðum þessa ár var tek­ist á um fram­tíð­ar­stefnu flokks­ins og voru það Oddný Harð­ar­dóttir og Magnús Orri Schram sem voru í for­ystu­slagnum. Greini­legt var að flokk­ur­inn skipt­ist niður í fylk­ingar, því margt þunga­vigt­ar­fólk í flokknum studdi Magnús Orra, sem einkum tal­aði fyrir nýju upp­hafi og jafn­vel form­legu sam­starfi eða sam­ein­ingu við aðra flokka á vinstri vængnum og miðj­unni. Dagur B. Egg­erts­son, Katrín Júl­í­us­dóttir, Val­gerður Bjarna­dóttir og Össur Skarp­héð­ins­son studdu öll Magnús Orra, en Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir, Sigríður Ingi­björg og Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir studdu Oddnýju til for­manns. Svo ein­hver séu nefnd. Svo fór að spenn­andi kosn­inga fór fram – eins og árið áður – þar sem Oddný hafði betur í ann­ars jafnri bar­áttu. Þó Oddný hafi í ræðu sinni lagt áherslu á sam­starf og sam­ein­ingu, þá lá ljóst fyrir að flokk­ur­inn var ekki sam­ein­aður, nema þá að nafn­inu til.

Hefur ekki náð vopnum sínum

3. — Árið 2009, þegar Sam­fylk­ingin fékk góða kosn­ingu skömmu eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins, var eitt helsta tromp flokks­ins að nú þyrfti að láta reyna á umsókn um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Í aðdrag­anda kosn­ing­anna var orð­ræðan í kosn­inga­bar­áttu flokks­ins sú, að Ísland hefði staðið ber­skjaldað, með íslensku krón­una og sjálf­stæða pen­inga­stefnu, og það hefði verið ein af ástæðum þess að íslenska kerfið hrundi. Þegar rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna tók við völdum var þetta eitt aðal­deilu­efnið, umsóknin um aðild að ESB. Þetta reyndi enn fremur mikið á sam­starf flokk­anna og reynd­ist málið rík­is­stjórn­inni erfitt. Á þessu kjör­tíma­bili, frá árinu 2009 til 2013, stóðu á rík­is­stjórn­inni öll spjót vegna margra erf­iðra mála – ekki síst þegar kom að því að rétta hag heim­il­anna – og tætt­ist fylgið af rík­is­stjórn­inni jafnt og þétt fram að kosn­ingum, þar sem báðir stjórn­ar­flokk­arnir fengu mik­inn skell. Frá þessum tíma hefur Sam­fylk­ingin ekki náð vopnum sínum í könn­unum og átt erfitt með að ná til kjós­enda með stefnu sinni. Innganga í Evr­ópu­sam­bandið og upp­taka evru var mið­punktur athygl­innar hjá flokks­mönnum um tíma og þegar það mál fór af dag­skrá – ef svo má að orði kom­ast – þá stóð lítið eftir, í það minnsta í hugum stuðn­ings­manna. Skoð­ana­kann­anir hafa sýnt, nær alveg síðan 2013, að flokk­ur­inn hefur aldrei náð þeim stað sem hann hafði áður, og átt í erf­ið­leikum með að stað­setja stefnu sína gagn­vart kjós­endum.

Átakahefð legðist af?

4. — Ekki þarf að hafa mörg orð um póli­tískt áhrif hruns fjár­mála­kerf­is­ins árið 2008. Í öllum kosn­ingum frá þeim tíma hafa komið fram miklar breyt­ingar og rík­is­stjórnir hafa í þeim öllum ekki náð að halda velli. Á sveit­ar­stjórn­ar­stig­inu hafa einnig orðið miklar breyt­ingar í öllum kosn­ingum. Sér­stak­lega hefur vinstri væng­ur­inn og miðjan verið rót­laus, ef svo má segja, og hefur Sam­fylk­ingin ekki náð að tengja sig við þessa nýju stöðu með neinum hætti. Nýir flokkar hafa tekið frá henni stuðn­ings­menn og flokk­ur­inn virð­ist í huga þeirra sem vilja breyt­ingar ekki vera val­kostur til fram­tíðar litið. Nema þá örfárra. Til marks um það má nefna að Sam­fylk­ingin fékk 10.893 atkvæði í kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn en á heima­síðu flokks­ins kemur fram á skráðir félagar í flokk­inn séu yfir 20 þús­und. „Sam­fylk­ingin er fjölda­hreyf­ing með yfir tutt­ugu­þús­und skráðra flokks­fé­laga um land allt og full­trúa í sveit­ar­stjórnum í nær öllum sveit­ar­fé­lögum á Íslandi sem víða fara með meiri­hluta­vald. Markmið Sam­fylk­ing­ar­innar er að fá umboð kjós­enda til að taka for­ystu í land­stjórn­inni, með jöfnuð og rétt­læti að leið­ar­ljósi. Innan Sam­fylk­ing­ar­innar hefur frá upp­hafi verið kraft­mikil umræða um lýð­ræði, lýð­ræð­is­hefð og lýð­ræð­is­legar umbætur. Sam­ein­ing jafn­að­ar­manna, félags­hyggju­fólks og kven­frels­is­sinna í Sam­fylk­ing­unni gerði sjálf­krafa þá kröfu að átaka­hefð lið­innar aldar legð­ist af,“ segir orð­rétt á vef flokks­ins. Ekki verður sagt að þessi sjálf­krafa krafa um að leggja átaka­hefð af, hafi verið í heiðri höfð á und­an­förnum árum.

Fullkomið áhugaleysi

5. — Sé horft sextán ár aftur í tím­ann, þegar Sam­fylk­ingin var stofnuð, þá stendur flokk­ur­inn nú eins langt frá upp­runa­til­gang­inum eins og hugs­ast getur. Sam­ein­ing á vinstri vængnum er ekki til staðar og eng­inn flokkur félags­hyggju­megin, sem er með fólk á þingi, er minni en Sam­fylk­ingin. Flokk­ur­inn bauð fram fólk sem margt hafði lengi verið í for­ystu flokks­ins og höfn­uðu kjós­endur því næstum öllu. Þessi mis­lestur flokks­manna – sem ekki gengu í takt eins og ítrekað hefur komið fram í for­ystu­kosn­ingum innan flokks­ins – sýnir að flokk­ur­inn glímir við alvar­leg­asta sjúk­dóm sem stjórn­mála­flokkar geta glímt við. Full­komið áhuga­leysi kjós­enda og lítið sem ekk­ert aðdrátt­ar­afl. For­ystu­kreppa flokks­ins var aug­ljós í aðdrag­anda kosn­inga eftir hörð innri átök. Kosn­inga­bar­átta flokks­ins nú náði aldrei eyrum fólks og hefur vafa­lítið spilað inn í að kjós­endur sem vildu breyt­ingar fundu ekki þann mátt hjá Sam­fylk­ing­unni. Enda bauð hún margt reynslu­mikið fólk í efstu sætum. Píratar, Vinstri græn og Björt fram­tíð, þó lítil sé, voru frekar far­vegur fyrir þá kjós­endur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár