Lagabreytingar ýta eldra fólki úr vinnu

Breyt­ingar á lögum um almanna­trygg­ingar, sem taka gildi um ára­mótin, gera eldri borg­urum nán­ast ókleift að vinna sam­hliða líf­eyr­is­greiðslum. „Verið er að stela af eldri borg­urum,“ segir maður sem hættir að vinna um ára­mótin vegna fjár­hags­legra áhrifa breyt­ing­anna.

Eldri borgarar
Eldri borg­arar munu hverfa af vinnu­mark­aði, gangi spár gagn­rýnenda laga­breyt­ing­anna eftir. Mynd: Shutterstock

Fjöldi eldri borg­ara hyggst yfir­gefa vinnu­mark­að­inn eftir ára­mótin vegna þess að Alþingi sam­þykkti breyt­ingar á lögum um almanna­trygg­ingar sem gera þeim óhag­stætt að stunda vinnu.

Breyt­ing­arnar, sem taka gildi um ára­mót, munu hafa í för með sér að frí­tekju­mark er lækkað svo mikið að nán­ast til­gangs­laust er fyrir fólk að reyna að starfa með­fram líf­eyr­is­greiðslum. Þannig mun ríkið taka minnst 820 krónur af hverjum 1000 krónum eftir að þeir ná 25 þús­und króna frí­tekju­marki. 

„Ég get ekki hugsað mér að sitja heima og gera ekki neitt,“ segir Carl Bjarni Rasm­us­son, sem neyð­ist til að hætta að vinna.

Sagðir hagnast á breytingunum

 

Stjórn­völd hafa haldið því fram að verið sé að auka fram­lög til eldri borg­ara um 11 millj­ónir, en gagn­rýnendur laga­breyt­ing­anna segja eldri borg­ara sjálfa standa straum af þeim kostn­aði.

Frí­tekju­markið í núver­andi lögum er 109 þús­und krónur. Fyrir hverja krónu umfram 109 þús­und sem eldri borg­ari vinnur sér inn eru líf­eyr­is­greiðslur hans svo skertar um eina krónu. Svo­kallað „krónu á móti krónu“. Með nýju lög­unum er hins vegar frí­tekju­markið lækkað niður í 25 þús­und krónur, eftir það tekur við skerð­ing upp á 45%, sem svo stig­hækkar í 100% þegar við­kom­andi er kom­inn í 531.406 krónur í heild­ar­tekjur.

Skerð­ingin sem tekur gildi um ára­mótin, virkar í ein­földu máli þannig að fyrir hverjar 1.000 krónur sem eldri borg­ari vinnur sér inn umfram 25 þús­und krónur eru fyrst teknar 450 krónur af honum í skerð­ingu og svo 370 krónur í skatt. Þá eru eftir 180 krónur. Eldri borg­arar sem Stundin ræddi við segja að með breyt­ing­unum sé hrein­lega verið að þvinga fólk sem vill stunda vinnu út af atvinnu­mark­aði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár