Heimsmet í klúðri

Árið 1995 héldu átta menn fund í Kaup­manna­höfn. Í fund­ar­boð­inu stóð að ræða ætti þá hug­mynd að koma á í Danmörku sam­ræmdu far­gjalda­kerfi fyrir lestir, stræt­is­vagna og ferjur. Fund­ar­boð­andi kall­aði hug­mynd­ina Rej­sekort, Farkort. Fund­ar­mönnum leist vel á hug­mynd­ina og nafnið. Líklega hefur það ekki hvarflað að átt­menn­ing­unum að tutt­ugu árum síðar yrði þessi, að þeim fannst, bráð­snjalla hug­mynd kölluð heims­met í klúðri í dönskum fjöl­miðlum.

Áður­nefndan fund sátu stjórn­endur dönsku járn­braut­anna og ann­arra stærstu sam­göngu­fyr­ir­tækja lands­ins, auk full­trúa danska sam­göngu­ráðu­neyt­is­ins. Á þessum tíma voru í gangi tutt­ugu og sex mis­mun­andi far­gjalda­kerfi í land­inu og lítil sem engin sam­ræm­ing og tak­mörkuð sam­vinna. Fram kom á þessum fundi að maður sem ætl­aði sér að ferð­ast frá Kaup­manna­höfn til Ála­borgar þyrfti að kaupa að minnsta kosti fimm, jafn­vel sex, mis­mun­andi miða til að kom­ast á leið­ar­enda. Þar að auki þyrfti þessi sami maður að hafa mikið fyrir að finna út hvað ferða­lagið myndi kosta, hvort væri hag­stæð­ara að leggja í hann að morgni eða síð­degis, um helgi eða á virkum degi og svo fram­vegis. Far­gjalda­kerfið væri sem sé algjör frum­skógur þar sem erfitt var að rata. Farkort væri lausnin.

Fundir og kaffi


Þótt átt­menn­ing­arnir á fund­inum 1995 hafi verið sam­mála um að Far­kortið væri ákjós­an­leg leið út úr far­gjalda­frum­skóg­inum gerð­ist fátt. Stjórn­endur sam­göngu­fyr­ir­tækj­anna ræddu málið og fóru sér að engu óðs­lega, málið var rætt innan ráðu­neyta sam­göngu, við­skipta og fjár­mála. Formlega og óform­lega „hund­ruð funda, þús­undir kaffi­bolla,“ sagði yfir­maður hjá Dönsku járn­braut­unum.

[caption id="attachment_26927" align="alignnone" width="799"] Járn­brauta­lest í Danmörku. Mynd: Wikipedia[/caption]

Svo var tekin ákvörðun


Eftir átta ár, árið 2003, var loks tekin ákvörðun um að láta til skarar skríða, breyta orðum í athafnir, eins og þáver­andi sam­göngu­ráð­herra orð­aði það. Sérstakt fyr­ir­tæki, Rej­sekort A/S var stofnað, að því stóðu sjö stærstu sam­göngu­fyr­ir­tæki lands­ins. Tvö ár liðu hins­vegar þangað til málið var afgreitt í þing­inu.

Járnbrautalest í Danmörku. Mynd: Wikipedia
Járn­brauta­lest í Danmörku. Mynd: Wikipedia

Þegar sam­þykki þings­ins var í höfn var efnt til sam­keppni um að hrinda verk­inu í fram­kvæmd. Ýmsir gagn­rýndu að fyr­ir­tækið sem varð fyrir val­inu, East-West Danmark (EWD) væri í eigu vopna­fram­leið­anda, en fyr­ir­tækið samdi síðan við IBM um hina tækni­legu útfærslu varð­andi ferða- og greiðslu­skrán­ingu og fleira þess háttar. Sá samn­ingur var und­ir­rit­aður haustið 2005 og sam­kvæmt honum átti Far­kortið að kom­ast í gagnið árið 2009.

Ekki einfalt mál


Róm var ekki byggð á einum degi segir mál­tækið. Líkt reynd­ist það með danska Far­kortið, það var svo sann­ar­lega ekki hrist fram úr erminni. Það varð semsé fljótt ljóst að áætl­unin um að kortið yrði komið í notkun árið 2009 var algjör­lega óraun­hæf. For­svars­menn EWD til­kynntu strax árið 2006 að verk­efnið væri bæði mun tíma­frekara og flókn­ara en þeir, og allir aðrir, hefðu gert sér grein fyrir. „Það er ekki bara ljón á veg­inum heldur heil ljóna­hjörð,“ sagði fjöl­miðla­full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins.

Öllum var líka ljóst að tæp­lega yrði aftur snúið og gerðir voru við­bót­ar­samn­ingar, bæði um tíma­mörk og fjár­veit­ingar til verks­ins. Árið 2007 byrj­aði hópur lestafar­þega, sjálf­boða­liðar, að „prufu­keyra“ kerfið á leið­inni frá Hró­arskeldu til Tølløse á Sjálandi, um 30 kíló­metra leið. Ári seinna var for­stjóri Far­korts­fé­lags­ins rek­inn og einn af stjórn­endum Dönsku járn­braut­anna tók við. Það breytti litlu.

Stjórnmálamenn ókyrrast


Þegar kom fram á árið 2009 var deg­inum ljós­ara að Far­kortið yrði ekki komið í gagnið áður en árið yrði á enda runnið. Nú fóru stjórn­mála­menn að ókyrr­ast, kosn­ingar nálg­uð­ust og ekki bein­línis heppi­legt að „vera með þetta Far­kortslík í lest­inni,“ eins og einn ráð­herra orð­aði það.

Rík­is­stjórn Venstre og Íhalds­flokks­ins hafði setið að völdum frá árinu 2001 og hafði tekið ákvörðun um að gera Far­kortið að veru­leika. Um mitt ár 2010 til­kynnti EWD að setja yrði meira fé í verkið og Far­kortið yrði ekki komið í gagnið fyrr en 2013. Sam­göngu­ráð­herr­ann tromp­að­ist og 1. des­em­ber veitti hann fyr­ir­tæk­inu hálfs mán­aðar frest til að gera grein fyrir því hvort þetta Farkort yrði yfir­leitt að veru­leika. Svör EWD voru loðin.

Þann 17. des­em­ber sama ár krafð­ist stjórn Rej­sekort A/S þess að EWD ábyrgð­ist að Far­kortið yrði komið í notkun um allt land árið 2012. Annars yrði ein­fald­lega hætt við allt saman. Þegar þarna var komið var kostn­að­ur­inn orðin rúmur millj­arður danskra króna (tæpir tutt­ugu millj­arðar íslenskir) og aug­ljóst að hann ætti eftir að aukast umtals­vert ef takast ætti að gera Far­korts­draum­inn að veru­leika.

Hætt við að hætta en loks hætt


Til­gang­ur­inn með Far­kort­inu átti að vera sá að kerfið yrði ein­falt, not­and­inn þyrfti ekki að vera að stúss­ast í miða­kaupum sí og æ, kaupa marga miða til að ferð­ast inn­an­lands og svo fram­vegis. Far­kortið er hægt að hafa í síma eða hafa kort (eins og greiðslu­kort) sem svo er borið upp að sér­stökum skynjara í upp­hafi og lok ferðar. Not­and­inn verður sér úti um kortið í upp­hafi og kaupir til­tekna inn­eign. Þegar komið er á áfanga­stað og „stimplað út“ sést hvað far­gjaldið kostar og jafn­framt sést inn­eignin. Boðið er uppá „sjálf­virka áfyll­ingu,“ þegar inn­eignin er komin í lág­mark, þá færir bank­inn umsamda upp­hæð inn á kortið.

[caption id="attachment_26928" align="align­right" width="225"] Hið sögu­fræga danska klippikort sem brátt verður aflagt með öllu. Mynd: Borgþór Arn­gríms­son.[/caption]

20150425_102814 (1)
20150425_102814 (1)

Þetta hljómar allt mjög vel, og ein­falt, en ljónin á veg­inum hafa verið fleiri og stærri en nokkurn grun­aði. Meðal þess sem Far­kortið átti að leysa af hólmi var hið svo­kall­aða klippikort sem margir nota. Klippikortið var selt í sjoppum og versl­unum, mjög ein­falt og vin­sælt, ekki síst meðal ferða­manna. Tilkynnt var að sölu klippikorts­ins yrði hætt 1. apríl 2011. Þegar ljóst var að Far­kortið yrði ekki komið í gagnið, og ekk­ert kæmi í stað klippikorts­ins, kröfð­ust stjórn­mála­menn þess að það yrði áfram í boði. Til að gera langa sögu stutta var sölu klippikorts­ins end­an­lega hætt 8. febr­úar í ár, tæpum fjórum árum seinna en til stóð. Hægt verður að nota kortin til 30. júní næst­kom­andi. Fólk kvartar hástöfum en það breytir engu, dagar klippikorts­ins eru taldir.

Notendur Far­korts­ins eru nú um það bil milljón. Það eru langtum færri en gert var ráð fyrir og færri not­endur þýðir minni tekjur. Nýlega kom fram í fjöl­miðlum að kostn­að­ur­inn vegna korts­ins væri kom­inn í rúma tvo millj­arða danskra króna (tæpa fjöru­tíu íslenska). Og á eftir að aukast er full­yrt.

Annríki í kvörtunardeildinni


Það er mikið ann­ríki í kvört­un­ar­deild Far­korts­ins. Um þessar mundir ber­ast um það bil 18 þús­und kvart­anir á mán­uði. Þær eru margs konar: fólk skilur ekki hvernig kortið virkar, þarf að stimpla sig út og aftur inn ef farið er úr lest yfir í strætó og svo fram­vegis og svo fram­vegis.

Í upp­hafi var mikið kvartað yfir háum sektum ef fólk gleymdi að stimpla sig út í lok ferðar (slík til­felli voru 800 þús­und í fyrra). Ráðherra greip þá í taumana og nú telst sektin mjög hóf­leg. Í upp­hafi átti einnig að tryggja að far­gjald keypt með Farkorti yrði aldrei dýr­ara en hefð­bundnir miðar eða mánaða­kort. Þetta hefur ekki stað­ist í öllum til­vikum.

Framtíðin


Danski sam­göngu­ráð­herr­ann sagði fyrir nokkru í við­tali að fæð­ing­ar­hríðir Far­korts­ins hefðu bæði verið langar og strangar. Engan hefði grunað hversu flókið þetta verk­efni væri þegar upp var lagt og að aug­ljóst væri að tím­inn sem áætl­aður var til að koma þessu kerfi á hefði verið allt of skammur. En það væri auð­velt að vera vitur eftir á. Ráð­herr­ann sagði sömu­leiðis að þetta verk­efni (sem ekki væri lokið) væri mjög metn­að­ar­fullt og ætti sér vart eða ekki hlið­stæðu í ver­öld­inni.

[caption id="attachment_26931" align="alignnone" width="793"] Hér gefur að líta Magnus Heunicke, sam­göngu­mála­ráð­herra Dan­merkur (fyrir miðju), á blaða­manna­fundi fyrir skemmstu. Mynd: EPA[/caption]

Heimsmet sem enginn kærir sig um að eiga


Agnúum Far­korts­ins fækkar eftir því sem meiri reynsla kemur á notkun þess, not­end­unum fjölgar og draum­ur­inn um ein­falt far­gjalda­kerfi er í dag miklu nær því að ræt­ast en hann var fyrir ein­ungis tveimur árum síðan. Flestir eru sam­mála um þetta. Fjöl­miðl­arnir, sem taka ekki á stjórn­mála­mönnum með silki­hönskum heldur draga þá óhikað yfir nagla­brettið, segja að Far­kort­sæv­in­týrið endi örugg­lega vel en það breyti ekki því að það hafi ein­kennst af vand­ræða­gangi, óheyri­legum kostn­aði og alls kyns ves­eni. Málið sé ótví­rætt heims­met í klúðri.

Hér gefur að líta Magnus Heunicke, samgöngumálaráðherra Danmerkur (fyrir miðju) á blaðamannafundi fyrir skemmstu. Mynd: EPA
Hér gefur að líta Magnus Heunicke, sam­göngu­mála­ráð­herra Dan­merkur (fyrir miðju) á blaða­manna­fundi fyrir skemmstu. Mynd: EPA
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár