Trump: Allir möguleikar opnir gagnvart Norður-Kóreu

Banda­ríkja­for­seti seg­ist íhuga öll úrræði sem honum standa til boða vegna ógn­ar­innar frá Norður-Kóreu.

Melania og Donald Trump.
Melania og Donald Trump. Mynd: EPA

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, seg­ist vera að velta fyrir sér öllum úrræðum sem hann hefur til boða gagn­vart Norður-Kóreu í kjöl­far eld­flauga­skots yfir Jap­anskar eyjar í morgun.

[links]Til­raunir Norður-Kóreu verða sífellt nær­geng­ari gagn­vart nágrönnum Norður-Kóreu. Suður-Kórea og Banda­ríkin hafa und­an­farna daga haldið árlega her­æf­ingu sína við landa­mærin á 38. breidd­ar­baug á Kóreu­skag­anum. Her­æf­ing­arnar hafa ætíð reitt stjórn­völd í Pjongj­ang til reiði, enda líta þau svo á að hér sé um und­ir­bún­ing til inn­rásar að ræða.

Síðan að Kim Jong-un tók við stjórn­ar­taumunum að föður sínum látnum árið 2012 hefur Norður-Kórea gert margar til­raunir með eld­flaugar en til­rauna­skot yfir grann­ríkin eru fátíð. Nú er talið að norð­ur­kóreski her­inn búi yfir skot­flaugum sem geta borið kjarna­odda milli heims­álfa.

„Stjórn­völdin hafa sýnt ill­vilja sinn gagn­vart nágrönnum sínum, gagn­vart öllum aðild­ar­ríkjum Sam­ein­uðu þjóð­anna og gagn­vart lág­marks­stöðlum hegð­unar ríkis á alþjóða­vett­vangi,“ er haft eftir Trump í yfir­lýs­ingu frá Hvíta hús­inu og Reuters greinir frá.

[adspot]

„Ógnandi aðgerðir sem spilla stöð­ug­leika munu aðeins auka á ein­angrun Norður-Kóreu í heims­hlut­anum og í heim­inum. Allir mögu­leikar eru nú uppi á borðum,“ segir Trump.

Banda­ríkja­for­seti ræddi Við Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Japan, og þeir sam­mælt­ust um að ógnin frá Norður-Kóreu sé alvar­leg og sívax­andi, gagn­vart Banda­ríkj­unum, Japan og Suður-Kóreu.


Lesendum er bent á þrí­skipta umfjöllun um mál­efni Norður-Kóreu hér á vefnum.

Kóreska vandamálið: Hvers vegna er ástandið svona?

Kóreska vandamálið: Allt hefur mistekist

Kóreska vandamálið: Hvað er til ráða?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár