Kóreska vandamálið: Hvers vegna er ástandið svona?

Fyrsti hluti þrí­skiptrar umfjöll­unar um ógn­ina á Kóreu­skaga. Norður-Kórea verður eld­fimara vanda­mál með hverri hern­að­ar­til­raun­inni sem Kim Jong-un gerir. Norð­ur­kóresk kjarn­orku­sprengja drífur nú alla leið til Banda­ríkj­anna.

Leiðtogar Norður-Kóreu hafa alltaf treyst vald sitt með áróðri.
Leið­togar Norður-Kóreu hafa alltaf treyst vald sitt með áróðri.

Með hvaða aðferðum best er að með­höndla Norður-Kóreu hefur verið verk­efni alþjóða­sam­fé­lags­ins síðan í lok seinni heims­styrj­aldar. Stjórn­völd í Pjongj­ang halda því fram að Kóreu­stríð­inu sé í raun ekki enn lokið og gera þess vegna enn form­legt til­kall til allrar Kóreu.

[links]Á und­an­förnum árum hefur norð­ur­kóreski her­inn gert til­raunir með kjarn­orku­vopn og hefur tek­ist svo vel til að nú er talið að Norður-Kórea búi yfir lang­drægum skot­flaugum sem geta borið kjarna­odda alla leið yfir Kyrra­hafið og til Banda­ríkj­anna. Til­raunin sem gerð var 4. júlí síð­ast­lið­inn, á þjóð­há­tíð­ar­degi Banda­ríkj­anna, sann­færði umheim­inn end­an­lega um þetta.

Valda­jafn­vægið í heim­inum vó salt um leið.

Í þrí­skiptri umfjöllun Kjarnans um Norður-Kóreu verður reynt að svara eft­ir­far­andi spurn­ingum: Hvað er til ráða? Hvað hefur verið reynt? Og hvers vegna er ástandið svona? Áður en lengra er haldið er nauð­syn­legt að rifja upp aðdrag­anda máls­ins.

[adspot]

Norður-Kórea verður til

Alþýðu­lýð­veldið Norður-Kórea varð til í allt ann­ari ver­öld en nú er. Eftir seinni heims­styrj­öld­ina var Kóreu­skag­anum skipt upp í tvö her­náms­svæði, en Japan hafði her­tekið skag­ann allan í stríð­inu. Um það bil sömu aðferðum var beitt í Kóreu og í Þýska­landi; Sov­ét­ríkin fengu nyrðri helm­ing­inn og Banda­ríkin syðri helm­ing­inn.

Stofnuð voru ríki í báðum hlutum Kóreu­skag­ans sem gerðu bæði til­kall til allrar Kóreu. Sá ágrein­ingur leiddi til Kóreu­stríðs­ins í júní 1950 þegar norð­an­menn réð­ust suður yfir landa­mærin.

Kim il-Sung, fyrsti leið­togi Norður-Kóreu, stjórn­aði þá land­inu í umboði og með aðstoð stjórn­valda í Moskvu. Kim komst alla leið syðst á Kóreu­skag­ann en tókst aldrei að ná syðstu borg­inni Busan.

Stríð!

Sam­ein­uðu þjóð­irnar höfðu komið óvið­búnum Suður-Kóreu­búum til aðstoðar þegar norð­an­menn réð­ust yfir landa­mærin á 38. breidd­argráðu. Kim hafði auð­vitað stuðn­ing bæði Stalíns í Moskvu og Maó í Peking og naut til­tölu­lega full­kom­inna hern­að­ar­gagna frá Sov­ét­ríkj­unum.

Douglas MacArthur, hinn frægi pípureykj­andi hers­höfð­ingi úr banda­ríska hernum, leiddi hernað Sam­ein­uðu þjóð­anna (þar sem Banda­ríkin lögðu mest til mála). Hern­að­ur­inn var gerður út á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna í krafti ákvörð­unar Örygg­is­ráðs SÞ sem gerð var að Sov­ét­ríkj­unum fjar­stöddum. Sov­ét­menn höfðu skrópað á fundi Örygg­is­ráðs­ins til að mót­mæla því að full­trúar Taívan fengju sæti í ráð­inu en ekki Kín­verjar. Fljót­lega eftir að Sov­ét­menn átt­uðu sig á hvaða afleið­ingar fjar­vera þeirra gæti haft batn­aði mæt­ing þeirra.

MacArthur náði að snúa tafl­inu í hag sunn­an­manna með því að koma hers­höfð­ingjum Kim á óvart með inn­rás í borg­ina Incheon, stutt vestan við Seúl um miðjan skag­ann, 14. sept­em­ber 1950.

Fljót­lega tókst her Sam­ein­uðu þjóð­anna að stöðva nauð­synja­flutn­inga suður eftir Kóreu úr norðri. Þannig tókst mót­spyrnan vel og á til­tölu­lega skömmum tíma tókst að reka heri Kim aftur yfir 38. breidd­argráðu, landa­mærin sem samið hafði verið um.

Það hefði hugs­an­lega mátt leyfa því að duga en raunin varð önnur. MacArthur fékk heim­ild frá yfir­mönnum sínum að ráð­ist inn á yfir­ráða­svæði Norður-Kóreu. Það var gert með svo gríð­ar­legu ógn­ar­valdi að enn þann dag í dag er þess­arar inn­rásar „banda­rískra heims­valda­sinna“ minnst í Norður-Kóreu sem ástæðu hat­urs­ins í garð hins vest­ræna heims.

Her sunn­an­manna með stuðn­ingi Banda­ríkj­anna kastaði að talið er 635.000 tonnum af sprengjum úr lofti á Norður-Kóreu. Borgir voru lagðar í rúst, stíflur og mann­virki voru sprengd þannig að vatn flæddi yfir rækt­ar­land með hrylli­legum afleið­ingum fyrir almenn­ing. Til sam­an­burðar þá köst­uðu Banda­ríkin um 503.000 tonnum af sprengjum í öllu Kyrra­hafs­stríð­inu í seinni heimsstryjöld­inni. Banda­ríkin sprengdu svo mikið að yfir­menn í flug­hernum kvört­uðu undan skot­marka­leysi í Norður-Kóreu.

Maó, komm­ún­ista­leið­tog­inn í Kína, hafði lofað að senda kín­verska her­menn yfir landa­mærin til Norður-Kóreu ef suðrið myndi ráð­ast norður yfir 38. breidd­argráðuna. Þegar MacArthur hafði náð nán­ast allri Norður-Kóreu tókst Kín­verjum að ýta sunn­an­mönnum til baka. Þegar hér er komið við sögu hafði Kóreu-stríðið staðið í um hálft ár.

Í byrjun árs 1951 reyndu Norður-Kórea og Kína að sækja suður og tókst að ná Seúl, áður en Suður-Kórea náði borg­inni aftur nokkrum mán­uðum síðar. Norð­an­menn, með stóra frænda sinn sér að baki, reyndu nokkrum sinnum að sækja suður en fram­sókn þeirra var sífellt stöðvuð við 38. breidd­argráðuna.

Frið­ar­við­ræður hófust í júlí 1951 á meðan enn var barist. Það ástand ríkti meira og minna þar til í upp­hafi árs 1953 þegar Jósef Stalín lést og for­ysta Sov­ét­ríkj­anna ákvað að hætta stuðn­ingi við stríðs­rekstur í Kóreu. Vopnahlé komst á 27. júlí það sama ár og stendur enn í dag, 14. júlí 2017.

Í stríð­inu dóu meira en 2,5 millj­ónir manna, allt að helm­ingur þeirra óbreyttir Kóreu­búar.

Kóreuskaginn skiptist í norður og suður

Tilraunastaðir með kjarnorkusprengjurnar eru merktir með hringdregnu T á kortið. Höfuðborgir eru stjörnumerktar.

38. breiddargráða

Landa­mæri ríkj­anna liggja í dag eftir 38. breidd­argráðu, þeirri sömu og samið hafði verið um í lok heims­styrj­ald­ar­innar. Bæði ríkin hafa miklar gætur á þessum landa­mærum og stað­setja þús­undir her­manna sitt hvoru megin við einskis­manns­landið milli ríkj­anna.

Þar hafa her­menn­irnir staðið í störu­keppni við frændur sína handan landamær­anna í 64 ár.

Grimmdarverk knýja áróðursvélina

Í Norður-Kóreu hefur Kim-fjöl­skyldan ríkt síðan Jósef Stalín ákvað að skipa Kim il-Sung sem land­stjóra í Norður-Kóreu. Kim ríkti svo ennþá sem leið­togi þegar ríkið Norður-Kórea var stofnað 1948. Kim byggði vald sitt að mestu á egóinu, lét þjóð­ina hylla sig hvar sem hann kom fram og lét kenna börnum að það væri í raun og veru hann sem færði þeim brauð og klæði.

Hið rétta er að Norður-Kórea naut gríð­ar­lega mik­il­vægs efna­hags­legs stuðn­ings frá Sov­ét­ríkj­unum. Þar til Sov­ét­ríkin leyst­ust upp árið 1991 hafði Norður-Kórea aðgang að tækni, þekk­ingu og, síð­ast en ekki síst, efna­hags­legum stuðn­ingi til þess að geta rekið ríki sitt. Þannig komust Kimarnir til dæmis yfir kjarn­orku á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar.

Lögmæti valds síns tryggði Kim il-Sung með mark­vissum áróðri um ágæti sitt og ömur­leika vest­rænna afla, sér­lega Banda­ríkj­anna. Grimmd Banda­ríkj­anna í Kóreu­stríð­inu, þegar heim­ilum og lifi­brauði þjóð­ar­innar í norðri var rústað árið 1950, er raunar enn notuð til þess að treysta völd Kim-ætt­ar­innar í Norður-Kóreu.

Þegar leið­tog­inn lést árið 1994 tók sonur hans við. Það var Kim nokkur Jong-il. Hann tók við skelfi­legu búi. Eftir fall Sov­ét­ríkj­anna var skrúfað fyrir alla efna­hags­lega aðstoð svo þjóðin var svöng og eymdin ofboðs­leg. Kim Jong-il tókst raunar aldrei að laga það ástand í ein­angr­uðu ríki en horfði frekar á vanda­mál sem hann taldi stærra: Staða Norður-Kóreu í ver­öld­inni.

Án þess að eiga valda­mikla vini var Norður-Kórea skyndi­lega ber­skjölduð í alþjóða­sam­fé­lag­inu. Kim Jong-il fyr­ir­skip­aði þess vegna auk­inn kraft í fram­leiðslu kjarn­orku­vopna. Þannig gæti Norður-Kórea knúið aðrar þjóðir til sam­stöðu með Norður-Kóreu.

Smíði sprengunar

Norð­ur­kóreski her­inn gerði fyrstu til­raun­ina með kjarn­orku­sprengju á haust­dögum árs­ins 2006. Sprengjan var alls ekki stór, en nógu stór til að alþjóða­sam­fé­lagið beindi sjónum sínum af meiri alvöru að Kóreu­skag­anum. Þá hafði Norður-Kórea þegar dregið sig út úr afvopn­un­ar­sam­þykktum með kjarn­orku­vopn og við­ur­kennt að verið væri að þróa kjarn­orku­vopn.

Í von um að alþjóð­legum við­skipta­þving­unum yrði lyft var látið í það skína að stjórn­völd í Pjongj­ang væru til­búin til að hætta öllu saman, ef kröfum yrði mætt. Eftir til­raun­ina árið 2006 var eft­ir­lits­mönnum alþjóð­legu kjarn­orku­nefnd­ar­innar leyft að kanna stöð­una í Norður-Kóreu. Í kjöl­farið var við­ur­kennt að Norður-Kórea hefði hætt allri kjarn­orku­fram­leiðslu og hjálp­ar­að­stoð barst til lands­ins.

Skrúfað var fyrir alla aðstoð árið 2009 þegar Norður-Kórea gerði til­raun með lang­drægar skot­flaugar og sprengdu enn stærri kjarn­orku­sprengju en árið 2006 í til­rauna­skyni.

Kim Jong-il lést í des­em­ber 2011. Sonur hans Kim Jong-un tók þá við stjórn­ar­taumunum í Norður-Kóreu.

Norð­an­menn frest­uðu kjarn­orku­á­ætl­un­inni aftur árið 2012 því „sex ríkja við­ræð­urnar“ gengu vel. Miklar vonir voru bundnar við nýjan leið­toga. Kannski var hann mild­ari og alþjóða­sinn­að­ari en faðir hans? Þetta vissi hins vegar eng­inn og get­gátur réðu ferð­inni þegar ráðið var hinn unga leið­toga.

Banda­ríkin ákváðu að senda tak­mark­aða hjálp­ar­að­stoð í ljósi þess að Norður-Kórea var að stíga skref í rétta átt, að því er virt­ist. Aðstoðin var hins vegar aldrei send því í apríl 2012 gerðu norð­an­menn aðra til­raun með lang­drægar skot­flaugar. Ári síðar mældu jarð­skjálfta­mælar jarð­skjálfta að stærð­inni 5,1 í Norður-Kóreu sem hafði gert þriðju kjarn­orku­sprengju­til­raun­ina neð­an­jarðar.

Samtals hafa norð­an­menn gerð fimm til­raunir með kjarn­orku­sprengjur og sex til­raunir með lang­drægar skot­flaugar. Síðustu til­raun­irnar sem gerðar hafa verið með kjarn­orku­sprengjur voru gerðar í fyrra. Síðasta til­raunin var gerð í sept­em­ber 2016 þegar stærsta sprengjan til þess var sprengd.

Í byrjun þessa mán­aðar tókst Norður-Kóreu svo að senda lang­dræga skot­flaug á loft. Talið er að Hwasong-14 skot­flaugin geti borið kjarna­odd alla leið til Banda­ríkj­anna.


Á morgun verður fjallað um við­brögð alþjóða­sam­fé­lags­ins við auk­inni hættu frá Norður-Kóreu og mis­mun­andi aðferðir reif­aðar. Síðar verða þeir val­mögu­leikar sem standa alþjóða­sam­fé­lag­inu nú til boða reif­aðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár