Michael Flynn fer fram á friðhelgi

Fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Banda­ríkj­anna er undir mik­illi pressu.

Michael Flynn, fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna.
Michael Flynn, fyrr­ver­andi þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Banda­ríkj­anna.

Michael Flynn, sem var þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi Banda­ríkj­anna frá 20. jan­úar síð­ast­liðnum til 13. febr­úar, hefur farið fram á það við alrík­is­lög­regl­una FBI og þing­nefnd Banda­ríkja­þings að hann fái frið­helgi, og verði ekki sak­sóttur, ef hann á gefa vitn­is­burð. Wall Street Journal greindi fyrst frá mál­inu í gær, og fylgdu fjöl­miðlar síðan í kjöl­farið.

FBI eða þingið hafa ekki fall­ast á kröfur hans ennþá, sam­kvæmt umfjöllun WSJ.

Flynn er einn þeirra sem nú er til rann­sóknar vegna tengsla hans við Rússnesk stjórn­völd, ekki síst á meðan kosn­inga­bar­átta Donald Trump og Hillary Clinton stóð sem hæst á síð­asta ári.

Flynn á að baki langan feril í Banda­ríkja­her, og var um tíma einn af yfir­mönnum leyni­þjón­ustu hers­ins. Hann hefur bæði unnið fyrir Demókrata og Repúblik­ana á meira en þriggja ára­tuga ferli.

Flynn var gert að segja af sér sem þjóðar­ör­ygg­is­ráð­gjafi eftir að Mike Pence, vara­for­seti, og Donald Trump, for­seti, fóru fram á það. Kornið sem fyllti mæl­inn voru upp­lýs­ingar um að Flynn hefði rætt við sendi­herra Rúss­lands, Sergey Kis­lyak, um við­skipta­þving­anir Banda­ríkj­anna á hendur Rússum. Komið hefur fram að Flynn hefði end­ur­tekið átt í sam­skiptum við Rússa, í aðdrag­anda kosn­ing­anna 8. Nóvember í fyrra.

Rannsókn FBI og Banda­ríkja­þings mið­ast að því að upp­lýsa um það hvort Rússar hefðu haft óeðli­leg áhrif á kosn­inga­bar­átt­una og fram­kvæmd kosn­ing­anna í fyrra, en einnig hver nákvæm­lega tengsl Rússa inn í banda­rískt stjórn­kerfi.

Dóms­mála­ráð­herr­ann, Jeff Sessions, er einnig til rann­sóknar vegna þess­ara tengsla, en hann hefur gert lítið úr þeim til þessa. Hann var engu að síður stað­inn að lygum í Banda­ríkja­þingi þegar hann neit­aði því að hafa hitt erind­reka Rúss­lands í Banda­ríkj­unum. Gögn sem FBI bjó yfir hafa hins vegar sannað að hann hafi í það minnsta í tvígang hitt Kislyak á fundum á síð­asta ári.

Trump hefur varið Sessions og sagt hann hafa mis­skilið spurn­ing­una, og því hafi svarið verið á líkt og Sessions sagði.

Mikill titr­ingur hefur verið á Banda­ríkja­þingi vegna rann­sókn­ar­innar á tengsl­unum við Rússa, sam­kvæmt umfjöllun Wall Street Journal. Búist er við því að hún verði í for­gangi hjá þing­inu á næstu mán­uðum, en lengra gæti verið í það að FBI ljúki sinni rann­sókn end­an­lega.

Mál er tengj­ast Michael Flynn voru til umræðu í nýj­ast hlað­varps­þætti Kvik­unnar, sem rit­stjórn Kjarnans heldur úti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár