Hver er þessi rússneski sendiherra? – Talnaglöggur og áhrifamikill

Sendi­herra Rússa í Washington DC hefur náð að byggja upp tengsl við Repúblik­ana sem eng­inn annar Rússi hefur náð að byggja upp. Hann er nú mið­punkt­ur­inn í rann­sóknum á tengslum fram­boðs Donalds Trumps við Rússa.

Sergey Kislyak í sjónvarpsviðtali.
Sergey Kislyak í sjón­varps­við­tali.

Maður er nefndur Sergey Kislyak og á honum standa nú öll spjót. Hann er óum­deil­an­lega sá rúss­neski emb­ætt­is­maður sem náð hefur að mynda sterk­ustu tengslin við stjórn­mála­menn í Banda­ríkj­unum og eins og ótrú­legt og það hljómar - í ljósi kaldra sam­skipta þess­ara risa í austri og vestri í gegnum tíð­ina - þá liggja þræðir hans inn í Repúblikana­flokk­inn.

Eins og kunn­ugt er þá hafa banda­rískar stofn­anir, leyni­þjón­ustan CIA, alrík­is­lög­reglan FBI og þing­nefnd í Banda­ríkj­unum, sam­skipti fram­boðs Donalds Trumps við Rússa nú til skoð­unar.

Flest þessi sam­skipti liggja í gegnum fyrr­nefndan Kislyak. Michael Flynn, fyrr­ver­andi aðal­ráð­gjafi Trumps á sviði öryggis- og varn­ar­mála, hefur þegar sagt af sér eftir að hlerað sím­tal hans við Kislyak sýndi óum­deil­an­lega að hann hafði rætt við­skipta­þving­anir gagn­vart Rússum í sím­tal­inu. Var­for­set­inn Mike Pence var ósáttur við þetta og fór Donald Trump í kjöl­farið fram á afsögn hans.

Nú er það dóms­mála­ráð­herra, Jeff Sessions frá Alabama, sem er undir smá­sjánni. Einkum tveir per­sónu­legir fundir hans með Kislyak, í júlí og sept­em­ber í fyrra.

Samhliða þessum sam­skiptum voru tölvu­árásir við­stöðu­lausar á fram­boð Hillary Clinton.

Trump hefur gert lítið úr þessum sam­skiptum og talar um norna­veiðar. Rannsókn á þó eftir að fara fram sem leiðir sann­leik­ann í ljós.

Kislyak er 66 ára gam­all og hefur verið sendi­herra Rússa í Washington frá því árið 2008 og var það Medvedev sem skip­aði hann. Hann er náinn banda­maður Vladím­irs Pútíns, for­seta, og er sagður hafa trúnað hans í öllum málum. Fáir hafa slíka stöðu utan Rúss­lands.

Hann var lyk­il­maður í stjórn­kerfi gömlu Sov­ét­ríkj­anna, og var meðal ann­ars með yfir­manns­stöðu gagn­vart alþjóða­stofn­unum. Hann þykir hafa sterka nær­veru og sann­fær­ing­ar­kraft. Er mik­ill á velli og talar hægt og með djúpri röddu. Í ræðu sem hann hélt í Stanford háskóla, skömmu eftir kosn­inga­sigur Donalds Trumps, 8. nóv­em­ber, full­yrti hann að hann hefði ekki verið í sam­skiptum við liðs­menn Trumps og að Rússar hefðu ekki blandað sér í kosn­ing­arnar með neinum hætti.

Helsti styrki­leiki hans, sam­kvæmt skrifum Steven Lee Myers í bók­inni New Tsar, þar sem Pútín er til umfjöll­unar, er að hann þykir snjall í að greina stóru mynd­ina í atburðum og er afburða snjall með tölur. Þannig reiðir hann sig ekki á ráð­gjafa þegar kemur að ýmsum smá­at­riðum, heldur vinnur vinn­una yfir­leitt sjálfur. Hann er eðl­is­fræð­ingur að mennt, með áherslu á kjarn­orku.

Hann starf­aði um ára­bil sem njósn­ari fyrir Sov­ét­ríkin og er sagður vera með alla þræði í hendi sér þegar kemur að því að skipa nýja njó­sn­ara, að því er fram kemur í New Tsar.

For­eldrar hans voru fæddir í gömlu Úkraínu og er hann sagður vera einn af þeim sem sér það í hyll­ingum, að Rússland inn­limi Úkraínu aftur sem hluta af Sov­ét­ríkj­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár