Jeb Bush tilkynnir forsetaframboðið í kvöld - búinn að safna 100 milljónum dala

Jeb Bush mun form­lega til­kynna um fram­boð sitt til for­seta Banda­ríkj­anna seinna í dag á fundi í Miami Dade háskól­anum. Flestum er löngu ljóst að Bush vill verða fram­bjóð­andi Repúblikana­flokks­ins en hann hefur ekki form­lega við­ur­kennt það hingað til. Fyrr í dag gaf hann þó út mynd­band sem gefur fyr­ir­ætl­anir hans til kynna, þar sem hann seg­ist reiðu­bú­inn til að leiða Banda­ríkin, en skoða má mynd­bandið hér að neðan.

Í gær birti hann annað mynd­band á net­inu þar sem hann ræðir verk sín sem rík­is­stjóri í Flórída. Hann lagði áherslu á að hann hefði gert miklar breyt­ingar í Flórída og staðið við sitt. Í mynd­band­inu er lögð áhersla á ýmis félags­mál, líkt og rétt­indi fatl­aðs fólks, fjöl­skyldu­mál, skóla­mál og heim­il­is­of­beldi.

Bush er þriðji fjöl­skyldu­með­lim­ur­inn til að sækj­ast eftir því að verða for­seti Banda­ríkj­anna, en tæp 27 ár eru síðan faðir hans, George Bush, var kjör­inn for­seti. Bróðir hans George W. Bush varð for­seti árið 2000. Eft­ir­nafnið er talið geta orðið honum fjötur um fót, og talið er að hann muni reyna að gera eins lítið úr nafn­inu og hægt er. Hann hefur til að mynda gert merki fram­boðs­ins opin­bert og þar er ekk­ert minnst á Bush, heldur er merkið ein­fald­lega for­nafnið, Jeb. Þá segir New York Times að bróðir hans og faðir verði ekki við­staddir þegar Jeb til­kynnir um fram­boðið síðar í dag.


pic.twitter.com/PTcgx420KC


— Jeb Bush (@JebBush) June 14, 2015

Þrátt fyrir að hafa ekki enn form­lega til­kynnt um fram­boðið er talið að Bush hafi þegar safnað um 100 millj­ónum dala í kosn­inga­sjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár