Lífið á tímum kórónuveirunnar: Blóðug María daglega og rétti tíminn til að þykjast vera álfur

Lista­mað­ur­inn fjöl­hæfi, Hug­leikur Dagsson, ráð­leggur fólki að gera eitt­hvað skap­andi og hlusta á kvik­mynda­tón­list á meðan. Þá verði allt epískara. Hug­leikur gefur les­endum Kjarnans nokkur góð ráð til að njóta til­ver­unnar þessa dag­ana.

Hugleikur Dagsson.
Hug­leikur Dagsson. Mynd: Dóra Dúna

Hug­leikur Dagsson negldi beikon­sneið með She-Ra sverði við sell­erí í Blóðuga Maríu um dag­inn. Hann segir að nú sé tím­inn til að ná meist­ara­tökum á því að blanda slíkan kok­teil.

Að hans mati er einnig upp­lagt að dusta rykið af stripp­kennslu­disk­unum með Baywatch-leikkon­unni Carmen Electra. Ef fólk eigi ekki disk­ana, eins og hann, megi finna kennslu­mynd­bandið á Youtube.

Grínist­inn, skop­mynda­teikn­ar­inn og rit­höf­und­ur­inn Hug­leikur er í hópi val­in­kunnra Íslend­inga sem Kjarninn leit­aði til og bað um að veita les­endum góð ráð um hvernig er hægt að rækta lík­ama og sál á tímum kór­ónu­veirunnar.

Hann brást vel við beiðn­inni og hér að neðan fara ráðin hans fimm.

[adspot]

Blóðug María daglega

Það er list að gera almenni­lega Blóðuga Maríu. Ein á dag gerir þig að lista­manni. Grunnefnin eru náttla vodka, tómat­safi, tabasco-sósa, worcestershire-sósa, pipar og sell­erí. Ég vil helst hafa mik­inn klaka. Hef lært að smá „pickle“-safi eða ólífu­safi gerir góða hluti. Wasabi-krydd færir drykknum nýja vídd. Svo er hægt að skreyta þetta með öllu. Osti og rækjum þess vegna. Ég negldi beikon­sneið við sell­er­íið með She-Ra sverði um dag­inn.

Patrick Stewart-pakkinn

1) Star Trek Next Generation. Sjö ser­íur af þenkj­andi sci-fi dæmisögum um sigur manns­and­ans.

2) Hlusta á Patrick Stewart lesa sonn­ettur Shakespe­are. Hann les eina á dag á facebookinu sínu.

3) Gúglaðu „Patrick and Ian“ og stilltu á myndir. Þetta vermir hjartað enda­laust.

Dútlaðu undir kvikmyndatónlist

Gerðu eitt­hvað skap­andi (prjóna, teikna, skrifa, baka) og hlust­aðu á kvik­mynda­tón­list á meðan. Þá verður allt epískara. Ef þú útsauma kodda undir Hans Zimmer líður þér eins og þessi koddi muni bjarga heim­inum. Mæli líka með Nyman, Carpenter og náttla Guðna­dóttur.

Dungeons & Dragons

[links]Ég þarf að finna gamla D&D kass­ann minn. Því nú er tím­inn til að þykj­ast vera álfur eða dvergur og berj­ast við orka og dreka. Ef þú ert ein/n í sótt­kví, get­urðu notað tím­ann til að skrifa eitt­hvað svaka­legt D&D ævin­týri eða búa til karakter eða teikna dýflissu­kort. Ef þú þekkir ekki D&D er allt sem ég sagði núna lík­lega kín­verska fyrir þér. En kynntu þér þetta. Þetta er stuð.

Carmen Electra Aerobic Striptease

Baywatch-stjarnan Carmen Electra gaf þetta íburð­ar­mikla leik­fim­i­prógram fyrir að verða tveimur ára­tugum. Þetta er bæði eró­bikk og stripp­d­ans kennsla. Þetta er til á Youtube en ég á þetta á DVD því ég er svo kúl. Ég mæli með að taka disk tvö, „fit to strip” ræki­lega í gegn áður en þú færir þig yfir í dans­kennsl­una. Treystu mér, þetta tekur á. Maður svitnar eins og moð­er­fokker.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár