Grikkir segjast reiðubúnir að samþykkja tillögur lánardrottna með skilyrðum

Grikkir eru reiðu­búnir sam­þykkja öll skil­yrði lán­ar­drottna sinna með nokkrum breyt­ingum, sam­kvæmt nýju bréfi sem Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra lands­ins hefur sent til lán­ar­drottn­anna. Bréfið var gert opin­bert af fjöl­miðlum fyrir skömmu, en það var hins vegar sent í gær. Í bréf­inu kemur fram að Grikkir séu reiðu­búnir að sam­þykkja þær til­lögur sem lagðar voru fram um helg­ina ef þeir fá nokkrar breyt­ingar í gegn, eins og að hafa afslátt af virð­is­auka­skatti á grísku eyj­unum og fresta umbótum á líf­eyr­is­kerf­inu, þannig að þær hefj­ist ekki fyrr en í októ­ber.

Hér má sjá bréfið sem Tsipras sendi til Brussel í gær.


Greek PM Alexis #Tsipras's letter to creditors via @geoterzis #Greece pic.twitter.com/Rs3Tc5p4hQ


— Kathi­mer­ini English (@ekathimerini) July 1, 2015

Stjórn­völd í Grikk­landi sendu hins vegar frá sér yfir­lýs­ingu rétt í þessu þar sem þau segja að það sé ekki rétt að Grikkir vilji sam­þykkja að fullu til­lögur lán­ar­drottn­anna.

Wolfgang Schäuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, segir að sam­komu­lagið sé hins vegar runnið út og nú þurfi að semja um nýtt. Hann seg­ist ekki vera búinn að lesa nýj­ustu til­lögur Grikkja og gagn­rýndi stjórn­völd þar í landi fyrir að vera ótraustan samn­ings­að­ila. Það sé engin ástæða til þess að halda áfram við­ræðum fyrr en eftir þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­una á sunnu­dag.

Schäuble segir að það verði að hafa í huga að Grikkir hafi þegar fengið skuldir lækk­aðar. Hann seg­ist jafn­framt finna til með grísku þjóð­inni, en að hann hafi alltaf staðið við það sem samið hefði verið um og ef aðrir hefðu gert það líka væri Grikk­land ekki í svona erf­iðri stöðu nú.

Þrátt fyrir ummæli Schäuble stendur til að fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna fundi um málið í dag.

Könnun bendir til meirihluta fyrir því að hafna samkomulagi


Könnun sem birt­ist í dag­blað­inu Efi­mer­ida ton Syntakton í morgun sýnir að 54 pró­sent aðspurðra ætla að segja nei í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni á sunnu­dag. 33 pró­sent segj­ast ætla að segja já. For­send­urnar sem voru gefnar eru þær að með því að segja nei sé því hafnað að þurfa að und­ir­gang­ast mik­inn nið­ur­skurð í skiptum fyrir aðstoð, en með því að segja já sé sam­þykkt að ráð­ast í nið­ur­skurð­ar­að­gerðir gegn því að vera áfram hluti af evru­svæð­inu. Það hefur þó verið gagn­rýnt að val­kost­irnir í atkvæða­greiðsl­unni séu óskýrir, og ekki sé ljóst hvaða afleið­ingar hvor nið­ur­staða hefði.

Þá hafa fjöl­miðlar greint frá því í morgun að eitt þeirra skjala sem grísk stjórn­völd hafa gert opin­ber, og er hluti af til­lög­unum sem þjóðin þarf að taka afstöðu til, var ekki þýtt rétt yfir á grísku. Á einum stað gleymd­ist að bæta orð­inu ekki inn í setn­ingu. Skjalið snýst um grein­ingu á sjálf­bærni skulda Grikkja og þar eru settar fram þrjár sviðs­myndir. Í fyrstu tveimur sviðs­myndum eru ekki sögð nein sjálf­bærni­vanda­mál, en ekki-ið gleymd­ist á öðrum staðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár