Guðni Th.: Armbeygjur eru ekki verri á grasi en plastdýnu

Í síð­ustu viku braut Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti þá reglu sína um að læka ekki efni á sam­fé­lags­miðlum. Það var lík­sam­rækt­ar­stöðin Hress í Hafn­ar­firði sem fékk lækið.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Af Facebook-síðu foretans

„Í síð­ustu viku braut ég eigin reglu um að læka ekki efni á sam­fé­lags­miðlum, setti læk við færslu vina minna sem reka lík­ams­rækt­ar­stöð­ina Hress en ákváðu að hafa hana áfram lok­aða um skeið,“ skrifar Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, í færslu á Facebook-síðu sinni. Hann seg­ist í ræðu og riti hafa hvatt til auk­innar áherslu á lýð­heilsu í sam­fé­lag­inu öllu og hollrar hreyf­ingar sem nærir lík­ama og sál. Í þeim efnum séu lík­ams­rækt­ar­stöðvar nauð­syn­legar, staðir þar sem fólk hitt­ist, hreyfir sig og nýtur leið­sagnar sér­þjálfaðs liðs.

„Gott er að vita til þess að opnun lík­ams­rækt­ar­stöðva var ströngum skil­yrðum háð og að bæði eig­endur þeirra og við­skipta­vinir ein­setji sér að sjálf­sögðu að fylgja þeim,“ skrifar Guðni. „En þegar við erum að reyna að fækka smit­leiðum, fækka þeim sem þurfa að fara í sótt­kví hverju sinni og halda þess­ari þriðju bylgju veirunnar í skefjum er sjálf­sagt að um stund­ar­sakir leiti sem flestir ann­arra leiða til að hlaupa, lyfta og teygja en að hóp­ast saman inni í lík­ams­rækt­ar­stöð. Til þess er guðs­græn nátt­úran til­valin. Arm­beygjur eru ekki verri á grasi en plast­dýnu.“

Guðni von­ast til þess að hægt verði að búa svo um hnút­ana sem fyrst að fólk geti nýtt sér lík­ams­rækt­ar­stöðvar, sund­laugar og aðra staði til heilsu­bótar.

„Takmörk á manna­mótum snú­ast um það að sé maður með smit án þess að vita af því er ill­skárra að maður hafi ekki verið í fjöl­menni dag­inn út og inn. Hafi maður verið í mik­illi nánd við aðra fjölgar þeim til muna sem þurfa að fara í sótt­kví til að stemma stigu við því að þau smiti fjöl­marga aðra og svo koll af kolli. Þess vegna segir sig líka sjálft að vakni grunur um smit, hvað þá full­vissa, á ekki að láta eins og ekk­ert hafi í skorist, hvort sem er á lofti, láði eða legi,“ skrifar for­set­inn.

„Vissu­lega geta hömlur valdið gremju og þreytu, jafn­vel van­líðan. Á því verðum við að taka en ætti að slaka á til­mælum og leið­bein­ingum væri að margra mati rétt­ast að hefja leik­inn með því að heim­ila íþrótta­æf­ingar og skipu­lagðar tóm­stundir barna og ung­menna. Því er fagn­að­ar­efni að senn verða þær aftur leyfðar um allt land. Við sem erum eldri skulum þreyja þorr­ann og tek ég því undir þessi sjón­ar­mið heil­brigð­is­ráð­herra: „Hver og einn verður svo að leggja á það mat fyrir sitt leyti hvort hann vill gera allt sem heim­ilt er innan ramma gild­andi tak­mark­ana eða hvort hann vill ganga skemur til að draga enn frekar úr smit­hættu, eins og okkur er öllum í sjálfs­vald sett.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár