Elín Oddný vill leiða VG í Reykjavík

Spenna er að fær­ast í for­val Vinstri grænna í Reykja­vík eftir að Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi, greindi frá því að hún ætli að gefa kost á sér í fyrsta sætið. Það ætlar Líf Magneu­dóttir, núver­andi odd­viti flokks­ins, einnig að gera.

Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi VG.
Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir, vara­borg­ar­full­trúi VG. Mynd: Aðsend

Elín Oddný Sig­urð­ar­dóttir vara­borg­ar­full­trúi hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti í for­vali Vinstri grænna í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Félags­fundur VG í Reykja­vík sam­þykkti með yfir­gnæf­andi meiri­hluta í í fyrra­kvöld að halda flokksval um efstu þrjú sætin.

[links]Líf Magneu­dóttir borg­ar­full­trúi vill leiða list­ann áfram. Hún er eini borg­ar­full­trúi Vinstri grænna, en flokk­ur­inn fékk 4,6 pró­sent atkvæða í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018 og tap­aði hátt í fjórum pró­sentu­stigum frá sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2014 og hélt óbreyttum fjölda borg­ar­full­trúa þrátt fyrir að verið væri að fjölga borg­ar­full­trúum úr 15 í 23.

Elín Oddný er með meistara­gráðu í félags- og kynja­fræði frá Háskól­anum í Lundi, Svíþjóð og er auk þess fram­halds­skóla­kenn­ari að mennt. Hún hefur lengi verið virk í starfi Vinstri grænna, bæði í Reykja­vík og á lands­vísu. Hún hefur gengt ýmsum trún­að­ar­störfum fyrir Vinstri græn síð­ast­liðin 17 ár. Meðal ann­ars emb­ætti rit­ara Vinstri grænna og for­manns Ungra Vinstri grænna í Reykja­vík og situr nú í stjórn hreyf­ing­ar­innar á lands­vísu.

[adspot]

Und­an­farið kjör­tíma­bil hefur Elín Oddný verið vara­borg­ar­full­trúi og hefur m.a. verið vara­for­maður vel­ferð­ar­ráðs, full­trúi í skóla-og frí­stunda­ráði og menn­ingar- íþrótta og tóm­stunda­ráði.

„Borg­ar­málin hafa átt hug minn allan frá því að ég tók fyrst sæti sem vara­maður í vel­ferð­ar­ráði Reykja­vík­ur­borgar fyrir fimmtán árum síðan,“ segir Elín Oddný í fram­boðstil­kynn­ingu sem hún sendi í morgun, mið­viku­dag.

„Mín hug­sjón er hefur ávallt verið skýr: að vinna í þágu vel­ferðar allra borg­ar­búa í víð­asta skiln­ingi þess hug­taks. Vel­ferð­ar­mál, kven­frelsi, hús­næð­is­mál, menntun og vel­ferð barna ásamt mann­rétt­indum jað­ar­settra hópa hafa ávallt verið mér hug­leikin. Eins hvernig við sköpum mann­væna, græna og lýð­ræð­is­lega menn­ing­ar­borg fyrir kom­andi kyn­slóðir. Ég hef ávallt haft það að leið­ar­ljósi í mínum störfum að það eru ekki alltaf þeir sem eru í mestri þörf hverju sinni sem hafa hæstu rödd­ina.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár