Norræn gildi í öndvegi í Hvíta húsinu

Barack Obama tók höfð­ing­lega á móti ráða­mönnum Norð­ur­land­anna á dög­unum.

Barack Obama, Banda­ríkja­for­seti, bauð leið­togum Norð­ur­land­anna í opin­bera heim­sókn á föstu­dag­inn sem leið. Leið­tog­arnir ræddu bar­átt­una gegn hryðju­verkum, aðgerðir gegn öfga­hyggju, fólks­flutn­inga-og flótta­manna­vand­ann, lofts­lags­mál, mál­efni norð­ur­slóða, við­skipta­mál og þró­unar-og mann­úð­ar­mál. Kjarninn var með útsend­ara sinn á staðnum.

Rússaógnin

Mikil áhersla var lögð á þá sam­eig­in­legu ógn sem stafar af Rússum , eftir að þeir hertóku Krím­skaga fyrir tveimur árum síðan. Þá hefur her Rússa ítrekað rofið sjó-og loft­helgi nágranna­ríkja sinna, m.a. Íslands, og aug­ljóst var að með heim­sókn­inni átti að senda Rússum skýr skila­boð um að ríkin stæðu þétt við bakið á hvert öðru. Banda­ríkin og Norð­ur­lönd eru ugg­andi yfir vax­andi herum­svifum Rússa við Eystra­salt, kjarn­orku­á­formum þeirra og her­æf­ingum, ásamt ögrandi ágangi bæði her­flug­véla og skipa. Dagurinn, sem var við­burð­ar­ríkur og spann­aði 17 klukku­stundir, með til­heyr­andi örygg­is­leit, fundum, mynda­tökum, ræðu­höldum og end­aði dag­skráin með hátíð­ar­kvöld­verði.

Þegar föstu­dag­ur­inn 13. maí rann upp var hlýtt í veðri en þungskýjað í höf­uð­borg Banda­ríkj­anna og klukkan sex að morgni voru nor­rænir frétta­menn mættir í ítar­lega örygg­is­leit við norð­vest­ur­bak­hlið Hvíta húss­ins. Meðfram göngu­stígnum sem liggur um Hvíta húsið var búið að hengja upp fána Norð­ur­land­anna ásamt þeim amer­íska. Á himn­inum þétt­ust skýin hratt og þegar búið var að rann­saka allan tækja­búnað frétta­mann­anna og svo smala yfir öllum yfir í Press Briefing Room byrj­aði að rigna. Kvöldið áður hafði verið ákveðið að athöfnin yrði færð inn, þar sem spáð var rign­ingu. Hund­ruðum Norð­ur­landa­búa sem búsettir eru í Washington DC hafði verið boðið að fylgj­ast með í suð­ur­garði húss­ins og þurftu breyt­ing­anna vegna að sitja heima og voru því ófáir svekktir þennan morg­un­inn.

Virðuleg samkoma

Klukkan níu hófst athöfnin inni í Hvíta hús­inu, þar sem hátt­settir emb­ætt­is­menn og utan­rík­is­ráð­herrar ríkj­anna sátu. Heið­ursverðir stóðu í hring með­fram salnum. Fyrir framan húsið tók Obama á móti for­sæt­is­ráð­herr­unum. Frétta­menn tóku sér stöðu og svo var beðið. Utan­rík­is­ráð­herr­arnir voru hinir kát­ustu og hlógu dátt með John Kerry, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Susan Rice, örygg­is­ráð­gjafa for­set­ans, sem voru einnig í hópi gesta.

Enn var beðið. Þegar nor­rænu frétta­menn­irnir fóru að ókyrr­ast, sagði amer­ískur frétta­maður sem starfar allt árið um kring við að fjalla um mál­efni Hvíta húss­ins, að Obama hefði ekki mætt á réttum tíma í sjö ár svo það væri ástæðu­laust að örvænta.

Obama og for­sæt­is­ráð­herrar Norð­ur­land­anna við opn­un­ar­at­höfn­ina.

Loks komu for­sæt­is­ráð­herr­arnir og makar þeirra, ásamt Michelle Obama, og því næst sjálfur for­set­inn sem ávarp­aði leið­toga þjóð­anna með því að bjóða þá vel­komna á þeirra eigin tungu­máli. Obama þakk­aði nor­rænu þjóð­unum fyrir vin­átt­una og benti á að margir Banda­ríkja­menn ættu rætur að rekja til Norð­ur­land­anna þar sem fjöldi manna hefði flutt til Mið-vest­ur­ríkja Banda­ríkj­anna fyrir um öld síðan. Hann sagði að þessir íbúar minntu ítrekað á að Leifur Eiríks­son hafði komið til Banda­ríkj­anna fyrir meira en þús­und árum, þessir íbúar gengu enn í lopa­peysum, sýndu ,,dala­hesta”, borð­uðu lút­fisk og lefsur. Það væri því ekki ofsögum sagt að þjóð­irnar deildu hags­munum og gildum.

Hann hrós­aði svo Norð­ur­landa­þjóð­unum fyrir að vera þau lönd þar sem hvað mestan jöfnuð mætti finna. Í fram­hald­inu velti hann því upp hvort það væri ástæða þess að þau mæld­ust ítrekað sem ham­ingju­söm­ustu lönd heims, þrátt fyrir að fá fremur lít­inn skerf af sól. Eftir að hafa dregið saman þau fjöl­mörgu mál og hags­muni sem sam­eina þjóð­irnar, sagði hann að vegna þess hve miklir sam­herjar þjóð­irnar væru, hafi honum þótt mik­il­vægt að bjóða þeim til heim­sóknar. Það vildi oft fara svo að þjóðir tækju sína helstu banda­menn sem sjálf­sögðum hlut en mik­il­vægt væri að styrkja bönd þjóð­anna enn frekar. Hann grín­að­ist með að stundum hefði hann í sinni for­seta­tíð stungið upp á því að Banda­ríkja­menn fengju þjóð­irnar fimm til að koma og stjórna land­inu í smá tíma og taka aðeins til fyrir þau, þar sem allt virt­ist ganga svo vel á Norð­ur­lönd­unum.

Að lokum þakk­aði hann þjóð­unum fyrir hafa fært Banda­ríkja­mönnum H.C. Andersen, Línu Langsokk, LEGO, skand­ína­vísk hús­gögn, Abba, Spotify, Skype, Minecraft, Angry Birds og Candy Crush. Ómæld aðdáun for­set­ans á Norð­ur­landa­þjóð­unum átti eftir að koma fram oftar yfir dag­inn. Það að for­seti Banda­ríkj­anna tali fyrir því að Banda­ríkin geti lært mikið af nor­ræna mód­el­inu er fremur nýtt í stjórn­málum í Banda­ríkj­unum. Fyrir ekki svo löngu síðan hefði það verið óhugs­andi að for­seti Banda­ríkj­anna tal­aði jafn jákvætt um hið sós­íal­íska kerfi sem ein­kennir Norð­ur­löndin.

Áhrif stefnu for­set­ans sjálfs, sem og Bernie Sanders, Elizabeth Warren og fleiri stjórn­mála­manna upp á síðkastið, hefur orðið til þess að svona orð­ræða fellur í ljúfa löð hjá flestum kjós­endum Demókrata. Íslend­ingar hafa í stjórn­ar­tíð Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks fremur van­ist því að aðdáun stjórn­valda hér á landi sé á banda­ríska kerf­inu ekki öfugt og bar því við nokkuð nýtt stef í sam­skiptum þjóð­anna.

Í ljósi meg­in­efnis fund­ar­ins í Hvíta hús­inu er áhuga­vert að skoða afstöðu Obama varð­andi stöð­una sem komin er upp varð­andi Rússland og Sýrland, en Obama greindi nýverið frá skoðun sinni varð­andi hvernig best sé að með­höndla þessi tvö mál í við­tali við blaðið Atlantic. 

Þar kemur fram að hann seg­ist ekki sjá eftir því að hafa hætt við ákvörðun sína að ráð­ast með loft­árásum á Sýrland, eftir að Assad for­seti lands­ins var sak­aður um að beita efna­vopnum á íbúa sína. Fram hefur komið að margir innan stjórnar Obama, sem og sumir aðrir þjóð­ar­leið­togar voru afar ósáttir við við­bragðs­leysi hans á þessum tíma. Sama gilti um við­brögð hans eftir inn­rás Rússa í Úkraínu. Í við­tal­inu benti Obama á að þrátt fyrir að mik­il­vægt væri að bregð­ast við árás Rússa, þá væru þeir sem vildu að hann stæði í hót­unum að gera eitt­hvað rót­tækt við Pútin í kjöl­farið, að mis­skilja út á hvað góð utan­rík­is­póli­tík snérist. Þeir, sem sem leit­uðu ann­arra leiða en að ná sínu fram en með ofbeldi væru einmitt þeir sem sýna alvöru kænsku í utan­rík­is­málum, útskýrði for­set­inn.

Kænska umfram ofbeldi

Hann benti á að sagan styddi þessa skoðun sína og nefndi sem dæmi að Banda­ríkin hefðu sprengt fleiri sprengjur í Kambódíu og Laos en í þau gerðu í allri Evrópu í seinni heim­styrj­öld­inni. Eftir stóð að Nixon dró her sinn til baka frá Víetnam og Kiss­in­ger fór til Parísar að semja um frið. Mikil hryll­ingur undir ein­ræð­is­stjórn tók við í nágranna­ríkjum Víetnam en friður komst á í Evrópu.

Í við­tal­inu tekur hann einnig fram að þó inn­rás Rússa inn í Úkraínu væri alvar­legt mál, væri stað­reynd máls­ins sú að landið væri Banda­ríkj­unum ekki jafn mikið hags­muna­mál og Rússum. Aðgerð­irnar væru í sam­ræmi við það. Landið sé ekki NATO ríki og sama hvað yrði gert, yrði úkra­ínski her­inn alltaf við­kvæmur fyrir áhrifum Rússa. Þessa afstöðu Obama gagn­vart Rússum mátti greina á fundum dags­ins og þótt ákveðið hefði verið að bætt yrði í varnir Banda­ríska hers­ins víða um Evrópu var mark­miðið að Norð­ur­landa­þjóð­irnar tækju virk­ari þátt í auknum vörnum. Banda­ríkin hafa óspart hvatt hinar NATO þjóð­irnar að standa við skuld­bind­ingu sína að verja því pró­sentu­hlut­falli af þjóð­ar­fram­leiðslu sem samn­ingur NATO til varna­mála segir til um. Síðustu árin hafa færri og færri ríki staðið við þessa skuld­bind­ingu. Ný staða í heims­mál­unum með ágangi Rússa og stríð­inu í Sýrlandi hefur banda­rískum ráða­mönnum án efa þótt ærin ástæða til að ítreka að þjóð­irnar standi við skuld­bind­ingar sínar. Nokkuð nákvæma útlistun af nýjum eða nýlegum skuld­bind­ingum þjóð­anna í útgjöldum vegna sam­eig­in­legra hern­aðar- og varna­að­gerða má finna í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu þjóð­anna eftir fund­inn. Herleysi Íslend­inga gerir það lík­lega að verkum að engar nýjar eða nýlegar fjár­hags­legar skuld­bind­ingar lands­ins er að finna í yfir­lýs­ing­unni.

Tólfta stærsta hagkerfi heimsins

Næstur til að taka til máls var svo for­sæt­is­ráð­herra Finn­lands, Juha Sipilä, sem lagði áherslu á að saman væru Norð­ur­löndin, tólfta stærsta hag­kerfi heims og í raun væru þau stór­veldi þegar það kæmi að því að leiða nýsköpun, umhverf­is­væna tækni­sköpun, sem og í íþróttum og menn­ingu. Þá bætti hann við að hóg­værð væri líka á afreka­lista þjóð­anna, og hló. Hann tal­aði um mik­il­vægi þess að löndin ynnu saman að því að vinna bug á þeirri spennu sem upp væri komin varð­andi Rússland, það væri í anda nor­rænu ríkj­anna að vinna saman að þessu mark­miði.

Þar á eftir tók for­sæt­is­ráð­herra Noregs til máls, Erna Solberg, en hún lagði áherslu á sam­vinnu þjóð­anna í varn­ar­málum, og mik­il­vægi þess að vinna bug á aðsteðj­andi hættum, svo sem íslamska rík­inu. Hún benti á að fleiri byggju nú í Ameríku sem ættu rætur að rekja til Noregs en þeir sem nú byggju í Noregi. Hún hrós­aði Obama sér­stak­lega fyrir leið­toga­hæfi­leika hans sem birt­ust meðal ann­ars í umhverf­is­málum og árang­urs­ins í tengslum við Lofts­lags­ráð­stefnu Sam­ein­uðu þjóð­anna í París í fyrra. Hún lagði áherslu á mik­il­vægi þess að að mark­miðum SÞ um sjálf­bæra þróun yrði fram­haldið og benti á að ef það myndi takast ætti að vera raun­hæft mark­mið að geta veitt öllum betra líf og frið, svo miklu máli skipti máli að Banda­ríkin væru leið­andi í þessum málum.

Þá var byrjað að vinna. Obama minnti á að það væru þrjú ár frá því að þjóð­ar­leið­tog­arnir hitt­ust í Stokk­hólmi og á þeim fundi yrði byggt þennan dag­inn. Næstur leið­toga til að halda ræðu var Stefan Löfven, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, sem var heldur bein­skeytt­ari en kollegar hans. Tveir þættir ræð­unnar vöktu helst athygli. Annars vegar áherslan á að allar þjóð­irnar ein­settu sér að stuðla að friði milli Palest­ínu og Ísrael með tveggja ríkja leið­ina að leið­ar­ljósi. Sem og áhersla á að konur fengju sæti við borðið í frið­ar­við­ræðum, en sú áhersla var útli­stuð í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu þjóð­anna. Ástæða þess að Svíar ákváðu að beita sér af tölu­verðri hörku fyrir sínum áherslu­at­riðum á fund­inum, er lík­lega sú að Svíar eru í fram­boði til örygg­is­ráðs Sam­ein­uðu þjóð­anna sem fer fram í haust.

Eftir ræð­urnar tvær voru fjöl­miðla­menn beðnir um að fara og bíða þar til leið­tog­arnir gengu inn á skrif­stofu for­set­ans, Oval office. Þar átti hver og einn svo nokk­urra mín­útna fund með for­set­anum í ein­rúmi.

Lilja Dögg og Sigurður Ingi á fundi með John Kerry, Barack Obama og hinum leið­togum Norð­ur­land­anna.

Leið­tog­arnir ganga að skrif­stofu for­set­ans.

Sigurður Ingi á skrif­stofu for­set­ans.

Þegar Sigurður Ingi gekk úr vest­ur­álmu Hvíta húss­ins náði blaða­maður tali af for­sæt­is­ráð­herr­anum og spurði hann hvernig dag­ur­inn legð­ist í hann. Hann var glað­beittur og sagð­ist mjög ánægður með það sem af væri degi og að með heim­boð­inu væri Íslend­ingum sýnd mikil vin­semd.

Það var ljóst eftir því sem leið á dag­inn að varn­ar­mál vógu þyngst í við­ræðum leið­tog­anna. Fram­ferði Rússa eftir inn­limun hluta Úkraínu stóð þar hæst. Aðspurður um hvort sú sam­staða sem ítrekuð hafi verið á fund­inum þýddi auknar skuld­bind­ingar fyrir Ísland, sagði hann að engar slíkar ákvarð­anir hefðu verið teknar á fund­inum. Ekki dugi þó að takast á við nýjar ógnir í gegnum NATO þar sem Svíþjóð og Finnland eru ekki aðilar, ólíkt hinum lönd­unum.

,,Sum löndin eru í NATO en önnur ein­göngu í ESB. Rætt var hvernig við getum öll lagt okkar af mörkum, það var ekki rætt um fram­lag ein­staka landa heldur sem heild. Við Íslend­ingar og Obama höfum lagt áherslu á að haldið sé áfram opnu við­ræðu­ferli við Rússa en á sama tíma sé staðið fast á alþjóða­lögum og reglum,” útskýrði Sigurður Ingi.

Í tölu­verðan tíma hefur ESB staðið í samn­inga­við­ræðum við Banda­ríkin um nýjan frí­versl­un­ar­samn­ing þeirra á milli. Sigurður Ingi sagð­ist hafa komið því að á fund­inum að Ísland, sem og hin EFTA ríkin hefðu áhuga á að tengj­ast slíkum samn­ingi þegar búið væri að semja við ESB.

Fyrr í vik­unni kynnti Obama hertar aðgerðir til að sporna gegn skatta­skjólum. Þær voru ekki sér­tak­lega ræddar á fund­inum sagði Sigurður Ingi en aðspurður um hvort sam­bæri­legra aðgerða væri að vænta heima sagði hann: ,,Þessar hug­myndir sem ég sá Obama kynna um dag­inn, voru á margan hátt sam­bæri­legar og þær sem þau hafa verið ræddar heima, og ég held það sé einn liður í því að hver skoði þetta fyrir sig en svo nauð­syn þess að taka þetta alþjóð­lega svo hægt sé að taka á þessu vanda­máli.” Starf­andi væri starfs­hópur á Íslandi sem skoða ætti málið og mætti vænta nið­ur­stöðu í lok júlí en hvort eitt­hvað gerð­ist áður yrði að koma í ljós.

Sigurður Ingi nýtti tæki­færið í sam­tali sínu við Obama og bauð honum í heim­sókn til Íslands. ,,Hann tók vel í þetta og sagði að þetta hefði verið á to-do list­anum lengi,” sagði Sigurður Ingi og bætti við að hvort sem for­set­inn kæmi áður en hann hætti sem for­seti, eða eftir for­seta­tíð sína, skipti ekki sköpum, það yrði gleði­legt fyrir Íslend­inga ef af þessu yrði. Að því búnu var komið að því að rjúka út í bíl og aka sem leið lá í utan­rík­is­ráðu­neytið þar sem John Kerry bauð til hátíð­ar­há­deg­is­verðar.

Í utan­rík­is­ráðu­neyt­inu beið rauður dreg­ill gesta og margt var um mann­inn. Sænski kokk­ur­inn Marcus Samu­els­son sá um matseld­ina. John Kerry tók til máls fór yfir efni fund­ar­ins og lagði áherslu á sam­vinnu þjóð­anna. Að því loknu flutti hver leið­togi skála­ræðu. Hádeg­is­verður var hald­inn í hátíð­ar­sal sem kenndur er við Benjamín Franklín og var öll umgjörðin hin glæsi­leg­asta.

Að hádeg­is­verð­inum loknum héldu utan­rík­is­ráð­herr­arnir til John Kerry þar sem rædd voru mál­efni fund­ar­ins. Eftir að fund­inum var lokið mælti blaða­maður sér mót við nýjan utan­rík­is­ráð­herra, Lilju Dögg Alfreðs­dóttur.

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra og Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra ásamt sendi­herra Íslands Geir H. Haarde, aðstoð­ar­mönnum ráð­herra og sendi­nefnd Íslands.

Lilja Dögg, nýr utan­rík­is­ráð­herra Íslands, sagði að heim­sóknin hefði verið í alla staði mjög áhuga­verð en þetta er hennar fyrsta opin­bera heim­sókn. ,,Nú er ég búin að vera utan­rík­is­ráð­herra í sex vikur, ég nálg­ast þetta starf bara eins og hvert annað starf sem ég hef tekið að mér í gegnum tíð­ina, ég set mér mark­mið og ætla að koma á fram­færi ákveðnum mál­efnum í öryggis- og jafn­rétt­is­málum í utan­rík­is­póli­tík­inni,” sagði Lilja Dögg þar sem við sátum á bekk bak við Hvíta húsið og biðum eftir að næsti dag­skrár­liður hæf­ist. Hún seg­ist ekki gera ráð fyrir sér­stökum stefnu­breyt­ingum í utan­rík­is­málum með komu sinni í emb­ættið, hún legði þó áherslu á að klára frum­varp um þjóðar­ör­ygg­is­ráðið.

Aðspurð um sam­tal sitt við John Kerry sagði Lilja: ,,Ég lagði áherslu á að Ísland er að taka sinn þátt í öryggis- og varn­ar­málum, við erum að auka stuðn­ing hvað varðar þátt­töku okkar í NATO, svo er einnig verið að auka við­búnað í Keflavík.” Hún sagði það ekki hafa verið hluta af sam­starfi ríkj­anna í tengslum við fund­inn sér­stak­lega heldur væri þetta þegar ákveðið og hluti af því sem búið var að ákveða í rík­is­fjár­mál­unum. Engra stórra breyt­inga væri að vænta í fram­haldi af þessum fundi. Hún sagði það vera aug­ljóst að land­fræði­leg lega lands­ins væri enn á ný farin að skipta auknu máli vegna þeirrar stöðu sem uppi í sam­skiptum þjóð­anna við Rússland.

Sæti við borðið

Í grein utan­rík­is­ráð­herra þjóð­anna fimm sem birt­ist í Huffington Post dag­inn fyrir fund­inn var sér­stak­lega fjallað um mik­il­vægi þess að þjóð­irnar tryggðu konum sæti við samn­inga­borðið þegar samið væri um frið í heim­inum. Lilja Dögg sagði að Norð­ur­löndin væru í sam­ein­ingu að leggja áherslu á þetta. Þessi áhersla var svo útli­stuð í loka­skjali sem löndin sendu frá sér að fund­unum loknum. Aðspurð um flótta­manna­málin, sem voru einnig efni fund­ar­ins og hvort ein­hverra breyt­inga væri að vænta í þeim mála­flokk, sagði hún ekki svo vera. Áætlun væri í gangi og henni yrði áfram fram­fylgt.

Aðkoma Lilju inn í stjórn­málin var um margt dramat­ísk. Hún tók boði Sig­mundar Davíðs um að verða ráð­herra, eftir að Sig­mundur Davíð hafði sagt af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far Wintris-máls­ins svo­kall­aða og umfjöll­unar um Panama­skjölin í Kastljós-þætti RÚV.

Lilja Dögg, sem hafði starfað sem sér­legur ráð­gjafi Sig­mundar í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu og innan Seðla­banka Íslands, hefur starfað innan Fram­sókn­ar­flokks­ins lengi og meðal ann­ars setið í nefndum borg­ar­innar. Lilju Dögg eru stjórn­málin í blóð borin en faðir hennar, Alfreð Þor­steins­son, var lengi borg­ar­full­trúi í Reykja­vík.

Aðspurð um hvernig það sé að koma inn í stjórn­málin í kjöl­farið á svona atburða­rás og hvernig þetta liti við henni, bæði fyrir hana og flokk­inn hennar, sagði hún þetta mikla áskorun en mik­il­vægt væri að muna að vel hefði gengið í efna­hags­mál­unum. Um hvort hún fyndi fyrir því á fund­inum og almennt að ímynd Íslands hefði hlotið skaða af vegna Panama skjal­anna sagði hún: ,,Auðvitað hefur þetta allt áhrif, en það sem skiptir auð­vitað mestu máli í þessu er að það hefur líka gengið vel á Íslandi á síð­ustu árum, við erum auð­vitað leggja áherslu á þann efna­hags­bata sem hefur átt sér stað, en þarna er klár­lega eitt­hvað sem verður að fara ofan í og við finnum öll fyrir því og við ætlum að gera það”.

Lilja sagði það vera ótíma­bært að svara því hvort hún væri á leið í fram­boð, hún væri að sinna þessu starfi eins vel og hún gæti og svo kæmi það í ljós. Hún sagð­ist hafa hug­leitt málið en enga ákvörðun tekið, né væri hún farin að horfa á stól for­manns­ins hýrum augum.

Þegar þarna var komið mátti sjá aðstoð­ar­mann utan­rík­is­ráð­herra, Hrannar Pét­urs­son, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­anda, gefa merki við örygg­is­hlið Hvíta húss­ins um að nú væri best að blaða­maður drifi sig því leyni­þjón­ustan væri farin að tékka blaða­menn inn í seinni hluta dag­skrár­innar í Hvíta hús­inu. En ef frétta­menn mættu ekki á til­skildum tíma áttu þeir á hættu að fá ekki að fylgj­ast með kvöld­dag­skránni.

Svöngum og fremur þreyttum blaða­mönnum var aftur skóflað inn í frétta­manna­her­bergið, sem margir þekkja vel, en þaðan er sjón­varpað dag­lega helstu fréttum úr Hvíta hús­inu. Engin leið var fyrir frétta­menn að skjót­ast út í sjoppu þegar búið var að fara í gegnum örygg­is­leit Hvíta húss­ins og þeim var ekki boð­inn neitt að borða þrátt fyrir langa dag­skrá. Sem betur fer hafði íslenska sendi­nefndin bent íslensku frétta­mönn­unum á þetta og við sátum og maul­uðum orku­stykki milli atriða. Þegar kaffi­leysið var farið að segja til sín var það góð­vild CNN frétta­stof­unnar sem kom í veg fyrir að íslensku frétta­menn­irnir færu í algjör kaffi­frá­hvörf.

Nú var komið að mót­töku for­set­ans og for­seta­frú­ar­innar fyrir hátíð­ar­kvöld­verð­inn. Búið var að setja upp eins­konar still­ansa fyrir aftan bak­dyr Hvíta húss­ins. Þegar frétta­mönn­unum, sem höfðu fengið sér­stakt leyfi til að taka myndir og fylgj­ast með, var gefið leyfi til að raða sér upp hlupu þeir metn­að­ar­fyllstu af stað. Vopnaðir löngum og þungum ljós­myndalinsum og kvik­mynda­vélum hlupu þeir og ruku upp á pall­ana, drógu fram máln­ing­ar­stiga og eins og áhættu­leik­arar, röð­uðu sér upp með miklum til­þrifum og rifust svo um hver hefði verið hvar fyrstur.

Sjálf náði und­ir­rituð að smeygja sér undir þrí­fót­inn hjá kvik­mynda­töku­manni frá NRK frétta­stof­unni og var á besta stað. Heið­ursverðir voru búnir að raða sér upp og lengi vel störðu frétta­menn á hurða­hún­inn og þóttu ítrekað greina hreyf­ingar. Minnti þetta helst að dramat­ískar lýs­ingar af fundi Gor­bat­sjov og Regans á Höfða um árið.

En loks stigu for­set­inn og for­seta­frúin út og þá hróp­aði einn djarfur blaða­maður ,,looking great”. For­set­inn hló, og svar­aði um hæl ,,you too”. Still­ans­inn rið­aði örlítið þegar blaða­menn­irnir hlógu að fyndni for­set­ans en fljót­lega lagði graf­ar­þögn aftur yfir hóp­inn og ljós­mynd­arnir mið­uðu löngum lins­unum sínum í átt að hjón­unum. For­seta­hjónin spjöll­uðu í hálfum hljóðum og flissuðu. Allt var þetta hálf óraun­veru­legt enda ekki á hverjum degi sem maður stendur and­spænis for­seta­hjón­unum og það marg­sinnis sama dag­inn.

Fyrst til að mæta voru svo íslensku for­sæt­is­ráð­herra­hjónin og þau stilltu sér upp með for­seta­hjón­unum og hröð­uðu ljós­mynd­ar­arnir sér nú að smella af á met­hraða svo hljóð­aði í vél­unum. Svo komu leið­tog­arnir hver á fætur öðrum og fána­ber­arnir máttu hafa sig alla við að skipta út fán­unum nógu hratt út, svo sá sem blakti við hlið banda­ríska fán­ans væri frá sama landi og leið­tog­inn sem Obama heils­aði hverju sinni. Þessi þáttur dag­skrár­innar var hinn allra hátíð­ar­leg­asti og var afar fal­legt að fylgj­ast með atburða­rásinni í hlýrri kvöldsól­inni.

Þá var komið að hátíð­ar­kvöld­verð­inum. Boðs­gest­irnir voru sendi­nefndir land­anna fimm, ásamt hátt­settum emb­ætt­is­mönnum í Banda­ríkj­unum, ráða­mönnum, sem og frægum stjörnum úr fjöl­miðla­heim­inum, leik­urum og skemmti­kröftum. Gesta­list­inn var langur og þeir sem vöktu einna mestu athygli voru David Lett­erman, grínist­inn Will Farrell, söng­konan Janelle Monáe, leik­ar­inn Aziz Ansari, sem mætti ásamt móður sinni, söng­konan Demi Lovato, sem söng fyrir gesti lagið úr Frozen, rapp­ar­inn Common svo fáeinir séu nefndir.

Mikið var grín­ast með það í fjöl­miðlum að þetta hlyti að verða fyndn­asta hátíð­ar­kvöld­verð­ar­boð sem haldið hafi verið í Hvíta hús­inu í tengslum við opin­bera heim­sókn. Hvort ræðu­menn kvölds­ins hafi staðið undir þeim vænt­ingum skal ósagt látið.

Rapp­ar­inn Common.

Mikið var um dýrðir og var hvert borð skreytt ríku­lega með blómum og ísskúlp­t­úrum.

En fyrstur til að flytja ræðu var sjálfur for­set­inn. Hann las meðal ann­ars upp úr Háva­málum og bauð gesti vel­komna að hætti vík­inga eins og hann sjálfur útskýrði, hann gerði stólpa­grín að þjóð­unum á góð­lát­legan hátt en ítrek­aði svo mik­il­vægi vin­áttu milli Banda­ríkj­anna og þjóð­anna fimm.

Sigurður Ingi var einnig á léttu nót­unum og sagði Íslend­inga þakka fyrir vin­áttu þjóð­anna og grín­að­ist með að við bættum smæð okkar með eld­fjöllum, sem við værum þó enn að læra að miða betur. For­sæt­is­ráð­herra Dana sló einnig á létta strengi og bauð for­seta­hjón­unum til heim­sóknar til Dan­merkur líkt og Sigurður Ingi hafði gert fyrr um dag­inn. Gestir skemmtu sér vel og hátíð­ar­stemm­ing var yfir öllu. Augljóst er að vin­átta Norð­ur­land­anna og Banda­ríkj­anna stendur traustum fótum og nóg af áríð­andi sam­eig­in­legum verk­efnum framundan.

Þegar þarna var komið voru flestir nor­rænir blaða­menn orðnir örmagna enda búnir að vera á fótum í yfir 20 tíma og sumir einnig að yfir­stíga tíma­mis­mun heims­álf­anna. Það var því kær­komið að kveðja Hvíta húsið, for­seta­hjónin og alla frétta­menn­ina sem höfðu staðið vakt­ina um sautján tíma þann dag­inn. Hvort næsta opin­bera heim­sókn Íslands verði svo í boði Hillary Clinton eða Donald Trumps veit svo eng­inn, en það virt­ust allir gestir dags­ins sam­mála um heim­boðið í boði Barack og Michelle Obama hafi verið bæði upp­byggi­legt fyrir sam­starf ríkj­anna sex sem og afar ánægju­legt fyrir vin­áttu­bönd þjóð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár