Fjölgar í hópi Íslendinga á auðkýfingalista Forbes

Tveir Íslend­ingar eru nú á millj­arða­mær­inga­lista Forbes sem birtur er árlega. Síðasta ár var giftu­samt fyrir millj­arða­mær­inga heims­ins en heild­ar­eignir millj­arða­mær­ing­anna á list­anum nema 13,1 billjón Banda­ríkja­dala, sam­an­borið við 8 billjón dala í fyrra.

Eignir Björgólfs Thors eru nú metnar á 2,2 milljarða Bandaríkjadala. Davíð Helgason er fyrsti Íslendingurinn á eftir Björgólfi til að komast á lista Forbes en auður hans er metinn á einn milljarð dala.
Eignir Björg­ólfs Thors eru nú metnar á 2,2 millj­arða Banda­ríkja­dala. Davíð Helgason er fyrsti Íslend­ing­ur­inn á eftir Björgólfi til að kom­ast á lista Forbes en auður hans er met­inn á einn millj­arð dala. Mynd: Samsett mynd

Davíð Helgason kemur nýr inn á lista Forbes yfir millj­arða­mær­inga heims­ins en auður hans er met­inn á einn millj­arð Banda­ríkja­dala, tæp­lega 127 millj­arða króna sem setur hann í sæti 2674 á lista Forbes. Davíð er einn af stofn­endum hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Unity en sam­kvæmt umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins frá því í des­em­ber á síð­asta ári átti hann 10,4 millj­ónir hluta í félag­inu eða um fjögur pró­sent. Heild­ar­virði þess hlutar er í dag yfir millj­arður dala, en hluta­bréfa­verð Unity stendur í rúmum 102 dölum þegar þetta er skrifað.

Vöxtur Unity hefur verið mjög mik­ill og hraður á und­an­förnum miss­erum. Félagið var skráð í kaup­höll í sept­em­ber á síð­asta ári og nam útboðs­gengi félags­ins 52 Banda­ríkja­dölum á hlut. Verð bréfa félags­ins reis hratt á fyrstu mán­uð­unum eftir skrán­ingu og fór það hæst í rúma 172 dali á hvert bréf skömmu fyrir síð­ustu jól. Hluta­bréfa­verðið stendur eins og er í rúmum 102 dölum á hlut, eins og áður sagði, sem þýðir að heild­ar­virði félags­ins er um 28,4 millj­arðar dala. Samkvæmt áður­nefndri umfjöllun Við­skipta­blaðs­ins fór Unity í gegnum fjár­mögn­un­ar­um­ferð á árinu 2019 en virði félags­ins var þá metið á um sex millj­arða dala.

Unity var sett á lagg­irnar árið 2004 í Kaup­manna­höfn. Nokkrir af þekkt­ustu snjall­síma­leikjum heims nota tækni­lausnir frá Unity, til að mynda Pokemon Go, Among Us og Overcooked. Davíð starf­aði sem for­stjóri félags­ins allt til árs­ins 2014 og situr enn í stjórn félags­ins. Samkvæmt Forbes hefur hann snúið sér í auknum mæli að sprota­fjár­fest­ingum eftir að hann hætti sem for­stjóri félags­ins.

Björgólfur Thor ríkari í ár en neðar á lista

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son hefur um langa hríð einn Íslend­inga átt sæti á lista Forbes. Fyrir hrun, árin 2007 og 2008 voru eignir hans metnar á 3,5 millj­arða Banda­ríkja­dala áður en hann tók dýfu á list­anum árið 2009 þegar eignir hans voru metnar á einn millj­arð dala. Hann datt í kjöl­farið út af list­anum en hefur átt þar sæti síðan árið 2015.

Á nýjasta list­anum eru eignir Björg­ólfs metnar á 2,2 millj­arða dala sem er aukn­ing um tíu pró­sent frá því í fyrra þegar eignir hans voru metnar á tvo millj­arða. Engu að síður fær­ist Björgólfur niður list­ann hann situr nú í 1444. sæti list­ans en í fyrra var hann númer 1063 á list­anum yfir auð­ug­asta fólk heims.

Af fjár­fest­ing­ar­eignum Björg­ólfs sem Forbes til­tekur eru hlutir í sviss­neska sam­heita­lyfja­fyr­ir­tæk­inu Xantis og í síleska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu WOM. Þá er Björgólfur einnig sagður hafa fjár­fest í raf­myntum og í sprota­fyr­ir­tækj­unum Zwift, Deliveroo og Stripe. Samkvæmt heima­síðu Novator, fjár­fest­inga­fé­lags sem er að mestu í eigu Björg­ólfs, fjár­festi félagið í Zwift og Deliveroo árið 2016 og í Stripe árið 2019.

Kunnugleg nöfn í efstu sætum

Síðasta ár hefur verið giftu­samt fyrir auð­menn heims­ins enda hefur fjölgað veru­lega á lista Forbes yfir þá ein­stak­linga sem eiga eignir sem metnar eru á millj­arð dala eða meira. Fjöldi millj­arða­mær­inga á list­anum er nú 2.755 og fjölgar um 660 nöfn á list­anum frá því í fyrra. Eignir hóps­ins eru metnar á 13,1 billjón Banda­ríkja­dala, þ.e. rúm­lega 13 þús­und millj­arða dala. Í fyrra námu heild­ar­eignir auð­manna á lista Forbes 8 billjónum dala. Banda­ríkja­menn eru fyr­ir­ferða­mestir á list­anum eftir sem áður en þaðan koma 724 millj­arða­mær­ing­anna á list­anum. Næst á eftir kemur Kína, þar með talið Hong Kong og Makaó, en þaðan koma 698 millj­arða­mær­ingar.

Líkt og í fyrra trónir Jeff Bezos, stofn­andi og stærsti eig­andi Amazon á toppi list­ans. Auðæfi hans eru metin á 177 millj­arða dala sem er tölu­vert stökk frá því í fyrra er auður hans var met­inn á 113 millj­arða. Amazon hefur vegnað vel á síð­asta ári en verð hluta­bréfa félags­ins hefur hækkað um rúm­lega 60 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum.

Einn af hástökkv­urum list­ans, í það minnsta hlut­falls­lega, er Elon Musk sem vermir annað sæti. Eignir hans nema 151 millj­arði dala en í fyrra nam auður hans 24,6 millj­örðum. Hann hoppar úr 31. sæti list­ans í fyrra. Musk á rúm­lega 21 pró­sent í bíla­fram­leið­and­anum Tesla en hluta­bréf félags­ins hafa rúm­lega fimm­fald­ast í verði á síð­ustu tólf mán­uðum.

Í þriðja sæti list­ans situr Bernard Arnault og fjöl­skylda hans. Hann situr á sama stað á list­anum þrátt fyrir að auður hans hafi ríf­lega tvö­fald­ast frá því að list­inn var síð­ast gef­inn út Arnault og fjöl­skylda hans eiga mörg af þekkt­ustu lúx­usvöru­merkjum heims, til að mynda Louis Vuitton. Á eftir honum á list­anum koma nokkur kunn­ug­leg nöfn, Bill Gates, Mark Zuckerberg og Warren Buffet.

Ríkasta konan á list­anum er Francoise Bettencourt Meyers, eignir hennar nema tæp­lega 74 millj­örðum dala sem setur hana í 12. sæti á lista þeirra rík­ustu. Francoise Bettencourt og fjöl­skylda hennar eiga ríf­lega þriðj­ung í snyrti­vöru­fram­leið­and­anum L’oréal. Næsta konan á eftir Bettencourt er Alice Walton sem situr í 17. sæti list­ans með eignir upp á tæp­lega 62 millj­arða dala en hún er einn stærsti eig­andi versl­un­ar­keðj­unnar Walmart ásamt bræðrum sínum Jim og Rob sem koma næstir á eftir Alice á auð­manna­lista Forbes.

Jim Ratcliffe ríkasti Bretinn

Samkvæmt umfjöllun Forbes um evr­ópska millj­arða­mær­inga þá var nokkur fjölgun í þeirra hópi á síð­asta ári, eru alls 628 í ár sam­an­borið við 511 í fyrra. Eignir hóps­ins eru metnar á þrjár billjónir dala, einni billjón dala meira en í fyrra. Áður­nefndur Bernard Arnault er rík­astur Evr­ópu­manna. Næstur á list­anum er Amancio Ortega frá Spáni en eignir hans nema 77 millj­örðum dala svo hann rétt nær að vera hálf­drætt­ingur Bernard Arnault. Þar á eftir kemur áður­nefnd Francoise Bettencourt Meyers, rík­asta kona heims.

Ríkasti maður Norð­ur­land­anna er hinn sænski Stefan Persson en hann á rúm­lega þriðj­ung í fata­versl­ana­keðj­unni H&M. Auður hans óx um tæp 60 pró­sent á árinu, úr 13,5 millj­örðum dala árið 2020 í 21,3 millj­arða dala. Svíþjóð er það land Norð­ur­land­anna sem á flesta millj­arða­mær­inga á lista Forbes, alls 41 tals­ins. Fjöldi norskra millj­arða­mær­inga á list­anum er tólf, Danir eiga tíu millj­arða­mær­inga á list­anum og Finnar sjö.

Efstur á lista yfir rík­ustu Bretana er James Ratcliffe stofn­andi jarð­ol­íu­efna­fyr­ir­tæk­is­ins Ineos en Jim, eins og hann er iðu­lega kall­aður, hefur látið til sín taka hér á landi á und­an­förnum árum. Eignir hans nema 17 millj­örðum Banda­ríkja­dala sem gerir Ratcliffe 113. rík­asta mann heims. Á síð­ustu árum hefur hann keypt jarðir á Austur- og Norð-Aust­ur­landi, til að mynda í Þistil­firði, í Vopna­firði auk þess sem hann keypti meiri­hluta af jörð­inni Gríms­stöðum. Eign­ar­hald Ratcliffe á jörðum hér­lendis er í gegnum félagið Dylan S.A. sem er móð­ur­fé­lag um 20 ann­arra félaga sem eiga jarðir á Íslandi. Ratcliffe hefur sagt að stór­felld upp­kaup hans á jörðum hér á landi séu hluti af yfir­stand­andi aðgerðum til verndar íslenska laxa­stofn­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár