Svíþjóðardemókratar mælast stærsti flokkur Svíþjóðar í umdeildri könnun

Sví­þjóð­ar­demókratar mæl­ast stærstir allra flokka í Svíþjóð sam­kvæmt nýrri könnun YouGov, sem birt var í sænska blað­inu Metro í morgun. Þetta er í fyrsta skipti sem flokk­ur­inn mælist svo stór.

Fjórð­ungur aðspurðra kjós­enda sagð­ist myndu kjósa flokk­inn. Jafn­að­ar­menn fengu stuðn­ing 23,4 pró­senta aðspurðra og Modera­terna, stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn á þing­inu, hlaut 21 pró­senta stuðn­ing.

Í Metro í dag segir Sören Holmberg pró­fessor í stjórn­sýslu­fræðum við Gauta­borg­ar­há­skóla að nið­ur­staðan komi ekki á óvart. Þessi þróun hafi átt sér stað um langt skeið. Ástæða fyrir aukn­ing­unni gæti til að mynda verið að 46 pró­sent kjós­enda telji útlend­inga­mál vera mik­il­væg­asta póli­tíska málið um þessar stundir, sam­kvæmt sömu könnun YouGov.

Könnunin hefur hins vegar einnig verið gagn­rýnd. Stjórn­mála­spek­ing­ur­inn Stina Morian bendir á það að könn­unin hafi verið fram­kvæmd við sér­stakar aðstæður, í tengslum við nýleg morð sem framin voru í IKEA-verslun í Svíþjóð af hæl­is­leit­anda. Nú sé mikil umræða á net­inu um þessi mál. Hún seg­ist ekki hafa trú á því að þetta fylgi sé komið til að vera, en hins vegar gæti hún trúað því að Sví­þjóð­ar­demókratar yrðu næst­stærsti flokkur lands­ins í næstu kosn­ingum, vegna þess að aðrir flokkar hafi ekki hlustað á áhyggjur kjós­enda.

Í umfjöllun sænska rík­is­sjón­varps­ins SVT um könn­un­ina er rætt við stjórn­mála­fræð­ing­inn Andreas Johans­son Heinö, sem varar við því að fólk taki nið­ur­stöður könn­un­ar­innar of alvar­lega. YouGov noti ekki slembi­úr­tök heldur skrái fólk sig sjálft og því ekki hægt að heim­færa nið­ur­stöð­urnar á stærra þýði.

Nið­ur­stöð­urnar eru betri fyrir Sví­þjóð­ar­demókratana í þess­ari nýju YouGov könnun en í öðrum nýlegum könn­unum. Hins vegar eru flestir stjórn­mála­skýrendur sem rætt er við í sænskum fjöl­miðlum sam­mála um að Sví­þjóð­ar­demókratar hafi aukið við sig fylgi og að það komi ekki á óvart. Í síð­ustu kosn­ingum hlaut flokk­ur­inn 12,9 pró­sent atkvæða, og tvö­fald­aði þing­manna­fjölda sinn milli kosn­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár