Halla verður nýr forstjóri B Team

Halla Tóm­as­dóttir tekur við starfi for­stjóra B Team þann 1. ágúst næst­kom­andi.

Halla Tómasdóttir.
Halla Tóm­as­dóttir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Halla Tóm­as­dóttir, rekstr­ar­hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, tekur við starfi for­stjóra B Team þann 1. ágúst næst­kom­andi. Frá þessu greinir hún á facebook-síðu sinni í dag.

Á vef­síðu B Team segir að sam­tökin hafi verið stofnuð af alþjóð­legum hópi leið­toga fyr­ir­tækja til að hvetja til betri leiða til að stunda við­skipti, með vel­ferð fólks og plánet­una í huga. Halla greinir frá því í stöðu­upp­færslu sinni að The B Team hafi verið stofnað fyrir fimm árum af þeim Richard Branson, stofn­anda Virgin Group, og Jochen Zeitz, fyrr­ver­andi for­stjóra Puma.

„Þeir, ásamt öðrum hug­rökkum leið­togum sem ég ber mikla virð­ingu fyrir, hafa ein­sett sér að leiða þá umbreyt­ingu sem þarf að verða á við­skipta- og stjórn­ar­háttum á heims­vísu. Þeir eru að end­ur­skil­greina hlut­verk fyr­ir­tækja, sem vissu­lega þurfa að skila hagn­aði til að vera sjálf­bær, en verða einnig að beita afli sínu í þágu umhverfis og sam­fé­lags. Efst á dag­skrá eru lofts­lags­málin, en B Team leggur líka áherslu á að auka fjöl­breytni í for­ystu, á gagn­sæi og upp­bygg­ingu trausts og á sköpun mann­eskju­legra vinnu­staða og sam­fé­lags,“ skrifar Halla.

Hún segir jafn­framt það vera mik­inn heiður að vera treyst fyrir for­ystu­hlut­verki fyrir svo mik­il­væg verk­efni og að hún hlakki virki­lega til að starfa með þessum leið­togum og frá­bærum hópi starfs­manna að málum sem hún brennur svo ein­læg­lega fyrir. „Í hnot­skurn snýst þetta allt saman um þá teg­und for­ystu sem við verðum að sjá, jafnt í einka­geir­anum sem og ann­ars­staðar. Ég hlakka virki­lega til að ljá hug minn, hjarta og hendur í þágu slíkrar for­ystu og trúi því að þarna geti ég gert gagn og látið gott af mér leiða.“

Halla mun flytja til Banda­ríkj­anna í sumar ásamt fjöl­skyldu sinni en höf­uð­stöðvar B Team eru í New York. B Team er einnig með skrif­stofur í London og leið­toga, starfs­menn og sam­starfs­að­ila er að finna um allan heim, segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár