Breyta lögum vegna eyðileggingar Rio Tinto

Eftir að námu­fyr­ir­tækið og álris­inn Rio Tinto sprengdi og eyði­lagði forna hella í Ástralíu var kraf­ist rann­sóknar þing­nefndar á atvik­inu. Nið­ur­staðan liggur fyrir. Og Rio Tinto er að áliti stjórn­valda ekki söku­dólg­ur­inn.

Svæðið fyrir og eftir að Rio Tinto hafði farið yfir það með stórvirkum vinnuvélum.
Svæðið fyrir og eftir að Rio Tinto hafði farið yfir það með stór­virkum vinnu­vélum. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Ástralíu ætlar að styrkja lög til verndar menn­ingu frum­byggja lands­ins. Þetta til­kynnti umhverf­is­ráð­herr­ann Tanya Pli­ber­sek í dag.

Laga­breyt­ingin er hluti af við­brögðum stjórn­ar­innar við rann­sókn þing­nefndar á stór­fyr­ir­tæk­inu Rio Tinto sem eyði­lagði árið 2020 helgar stein­hvelf­ingar frum­byggja í Juukan Gorge í vest­ur­hluta lands­ins. Fyr­ir­tækið, sem er mjög umfangs­mikið í námu­vinnslu í land­inu, var að stækka járn­grýt­is­námu sína og sprengdi upp hvelf­ing­arnar sem voru frum­byggjum sögu­lega og menn­ing­ar­lega mik­il­vægar.

[adspot]

„Það er óhugs­andi að ein­hver myndi vís­vit­andi eyði­leggja Sto­nehenge, píramídana í Egypta­landi eða Lascaux-hell­ana í Frakk­landi,“ sagði Pli­ber­sek er hún kynnti hinar áform­uðu laga­breyt­ingar á ástr­alska þing­inu í dag. „Þegar Bamyan-búdda­stytt­urnar voru eyði­lagðar í Afganistan þá varð heims­byggðin rétti­lega ösku­reið. En það nákvæm­lega sama gerð­ist í Juukan Gorge.“

[links]Hins vegar þykir nú ljóst að sögn Pli­ber­sek að með eyði­legg­ingu hvelf­ing­anna hafi Rio Tinto ekki brotið nein lög. Hún vill meina að sökin liggi í því að lög og reglur vernda svæði sem þessi ekki nægi­lega mikið fyrir námu­vinnslu og öðrum fram­kvæmdum. „Það sem er ljóst í skýrslu [þing­nefnd­ar­innar] er að kerfið okkar virkar ekki sem skyldi.“

Ástr­alska rík­is­stjórnin mun vinna drög að laga­breyt­ing­unum í sam­starfi við regn­hlíf­ar­sam­tök 30 sam­taka frum­byggja í land­inu. Helsta mark­miðið er að gera lagaum­hverfið þannig úr garði að það standi vörð um menn­ing­arminjar.

Ákveðið hefur verið, líkt og þing­nefndin lagði til í skýrslu sinni, að með nýju lög­unum verði réttur frum­byggja til að koma að ákvarð­ana­töku við fram­kvæmdir sem gætu með ein­hverjum hætti haft áhrif á þeirra menn­ing­ar­arf­leifð.

Samfélög frum­byggja við Juukan Gorge hafa hins vegar gagn­rýnt að þau hafi ekki verið höfð með í ráðum hvað varðar fram­haldið í kjöl­far skýrsl­unnar. „Allt þetta hófst með eyði­legg­ingu menn­ing­arminja okkar. Allir segja stöðugt að þeim þyki þetta leitt en aðgerðir skipta meira máli en orð,“ sögðu sam­tök sam­fé­lag­anna í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu. „Við höfum séð eyði­legg­ing­una og við vitum hvað þarf að gera.“

Algengt er að skemmdir séu unnar á menn­ing­arminjum frum­byggja eða þær hrein­lega eyði­lagðar, segir Jamie Lowe, for­seti ráðs sem hefur umsjón og eft­ir­lit með ráð­stöfun á landi sem til­heyrir frum­byggjum Ástralíu. Hann fagnar því að herða eigi lög og reglur enda hafi verið kallað eftir slíkum breyt­ingum í fjölda ára.

Misskilningur Rio Tinto

Jacob Staus­holm, for­stjóri Rio Tinto, segir að fyr­ir­tækið muni nú fara yfir til­lögur stjórn­valda. „Við ætlum að halda áfram að gera hvað við getum til að vera besti sam­starfs­að­ili sem hugs­ast getur og spila áfram lyk­il­hlut­verk í að tryggja að mik­il­vægar menn­ing­arminjar njóti verndar.“

Stein­hell­arnir í Juukan Gorge voru um 46 þús­und ára gamlir. Eyði­legg­ing Rio Tinto átti sér stað í maí árið 2020 en á þessum slóðum er stærstu járn­grýt­is­námu fyr­ir­tæk­is­ins, og þeirri sem gefur mest í vas­ann, að finna. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins héldu því í fyrstu fram að um „mis­skiln­ing“ hefði verið að ræða og að þeir hafi ekki fengið upp­lýs­ingar um að stað­ur­inn væri menn­ing­ar­lega mik­il­vægur og heil­agur í hugum fólks­ins sem þarna býr.

[adspot]

Þessi við­brögð, sem fyrr­ver­andi for­stjór­inn hélt m.a. fram, hleyptu illu blóði í fjár­festa, m.a. ástr­alska líf­eyr­is­sjóð­inn Hesta. Fram­kvæmda­stjóri sjóðs­ins sagði ekki nóg að leysa þá sem beri ábyrgð á hneyksl­inu frá störfum heldur þyrfti að rann­saka málið ofan í kjöl­inn sem og aðra samn­inga sem fyr­ir­tækið er með við heima­fólk, oft frum­byggja­sam­fé­lög, á starfs­svæðum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

riotinto

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár