Viðeigandi að trúnaði verði aflétt af samningum við öll álverin

Rio Tinto telur við­eig­andi að trún­aði verði aflétt af öllum samn­ingum Lands­virkj­unar við álver, ekki aðeins samn­ingi vegna álvers­ins í Straums­vík, „þannig að gagn­sæi ríki og hægt sé að bera saman verð“.

Gildandi raforkusamningur Landsvirkjunar og álversins í Straumsvík var gerður í júní 2010.
Gildandi raf­orku­samn­ingur Lands­virkj­unar og álvers­ins í Straums­vík var gerður í júní 2010. Mynd: Af vef Landsvirkjunar

„Að mati Rio Tinto verður verð­lagn­ing orkunnar að vera gagnsæ, sann­gjörn og alþjóð­lega sam­keppn­is­hæf. Við teljum að það sé við­eig­andi að trún­aði verði aflétt af öllum samn­ingum Lands­virkj­unar við álver þannig að gagn­sæi ríki og hægt sé að bera saman verð.“

Þannig hljóðar skrif­legt svar upp­lýnga­full­trúa ÍSAL, Bjarna Más Gylfa­sonar, við fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort Rio Tinto hygg­ist aflétta trún­aði á raf­orku­samn­ingi við Lands­virkjun líkt og Hörður Arnarson, for­stjóri Lands­virkj­unar hefur lagt til.

[adspot]

Rio Tinto til­kynnti í gær að félagið hefði lagt fram form­lega kvörtun til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins vegna „mis­notk­unar Lands­virkj­unar á yfir­burða­stöðu fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart ÍSAL,“ eins og það var orðað í til­kynn­ingu. Fer félagið fram á það að stofn­unin taki á „sam­keppn­is­hamlandi hátt­semi Lands­virkj­unar með mis­mun­andi verð­lagn­ingu og lang­tíma­orku­samn­ingum, svo álver ÍSAL og önnur íslensk fram­leiðsla og fyr­ir­tæki geti keppt á alþjóða­vett­vangi“.

Í til­kynn­ing­unni kom svo fram að ef Lands­virkjun mun ekki láta „af skað­legri hátt­semi sinni“ hefði ÍSAL ekki annan kost en að íhuga að segja upp orku­samn­ingi sínum við Lands­virkjun og „virkja áætlun um lokun álvers­ins“.

[links]Gildandi raf­orku­samn­ingur Lands­virkj­unar og álvers­ins í Straums­vík var gerður í júní 2010. Hann gildir til árs­ins 2036 og um er að ræða fyrsta samn­ing­inn sem Lands­virkjun gerði við álf­ram­leið­anda hér­lendis þar sem að teng­ing við álverð var afnumin. Með því færð­ist mark­aðs­á­hættan af þróun á álmark­aði frá selj­and­anum yfir á kaup­and­ann.

For­stjóri Lands­virkj­unar sagði í sam­tali við Vísi í gær að til­kynn­ing Rio Tinto hefði komið sér á óvart. Hann hefði staðið í þeirri trú að við­ræður stæðu enn yfir um end­ur­skoðun raf­orku­samn­ings­ins. Hörður sagði að félagið hefði ekki svarað til­boði sem lagt var fram vegna erf­iðrar stöðu á álmörk­uðum. Þá sagði hann að Rio Tinto hefði ekki viljað aflétta trún­aði á orku­samn­ingnum, líkt og Hörður lagði skrif­lega til við félagið snemma á þessu ári, og því væri erfitt að tjá sig um efn­is­at­riði hans.

Sambærilegir samningar ekki í boði

Kjarninn sendi upp­lýs­inga­full­trúa ÍSAL fyr­ir­spurn um hvort til stæði að aflétta þessum trún­aði og ef það stæði ekki til, hver ástæðan fyrir því væri. Svarið var eins og fyrr segir það að félagið teldi við­eig­andi að trún­aði yrði aflétt af öllum samn­ingum Land­virkj­unar við álverin.

Nú þrýstir félagið á end­ur­skoðun hans og vill lægra raf­orku­verð. Hörður sagði í sam­tali við Vísi í gær að því væri ekki að neita að sumir eldri samn­ingar, t.d.við Alcoa, séu hag­stæð­ari en þeir sem Rio Tinto hefur búið við. Þeir hafi hins vegar verið gerðir fyrir um tveimur ára­tugum. Sam­bæri­legir samn­ingar séu ein­fald­lega ekki í boði í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

riotinto

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár