Óánægð þjóð og veik staða Starmer eftir eitt ár við völd

Staða Keir Starmer sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands er ekki jafn sterk og búast hefði mátt við eftir fræk­inn sigur í þing­kosn­ingum í fyrra.

Staðan
Staðan Keir Starmer for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands hefur nú setið við völd í eitt ár. Á þeim tíma hefur hann tek­ist á við efna­hags­örð­ug­leika, inn­an­flokksá­tök og vax­andi þrýst­ing í inn­flytj­enda­málum — en einnig náð fram ákveðnum sigrum á sviði við­skipta og heil­brigð­is­mála. Mynd: Carl Court / POOL / AFP

Ár er liðið síðan Keir Starmer tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, en þrátt fyrir öruggan kosn­inga­sigur þann 4. júlí 2024 hefur stjórn hans glímt við mót­vind og inn­an­flokks­upp­reisn sem veikti stöðu hans enn frekar í vik­unni.

Hér er yfir­lit yfir frammi­stöðu leið­toga Verka­manna­flokks­ins í nokkrum lyk­il­mála­flokkum á þessum fyrstu tólf mán­uðum hans í emb­ætti:

1. Efnahagsbata lofað

Meg­in­á­hersla rík­is­stjórn­ar­innar hefur verið að end­ur­vekja hag­vöxt, en árang­ur­inn hefur verið tak­mark­aður. Þó að hag­vöxtur hafi komið flestum á óvart með 0,7 pró­senta aukn­ingu á fyrsta árs­fjórð­ungi, telja flestir sér­fræð­ingar að sú þróun muni ekki hald­ast.

Hækkanir á banda­rískum tollum og hækkun skatta á fyr­ir­tæki vofa yfir, og því hefur rík­is­stjórnin reynt að örva hag­kerfið með því að fækka reglum og hefja umfangs­miklar fjár­fest­ingar í heil­brigð­is­kerf­inu og innviðum.

En það tekur tíma að ná árangri, að mati Nicholas Barr, pró­fess­ors í opin­berri hag­fræði við London School of …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓGS
    Óli Gneisti Sóleyjarson skrifaði
    Sigurinn í þingkosningunum var ekki "frækinn". Úrslitin voru vegna óánægju með Íhaldsflokkinn en ekki vegna þess að fólk var spennt fyrir hinum sjarmalausa Starmer.

    Það er annars stórskrýtið að tala um stöðu Starmer án þess að minnast á hve umdeildur stuðningur hans við Ísrael er innan flokksins.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár