Lýðræðisveislan var ekki ókeypis

Kostn­aður fram­bjóð­enda sem tóku þátt í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrr á árinu var á sjö­unda tug millj­óna. Mestu fé var varið í próf­kjörin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en yfir 20 þús­und manns tóku þátt í því að stilla upp D-listum á lands­vísu.

Sam­an­lagður kostn­aður þeirra fram­bjóð­enda sem spreyttu sig í próf­kjörum Sjálf­stæð­is­flokks­ins um landið allt fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar nam alls að minnsta kosti 58 millj­ónum króna, sam­kvæmt því sem lesa má út úr upp­gjörum fram­bjóð­enda á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar og svörum fram­bjóð­enda til Kjarnans.

Þá er ein­ungis horft til þeirra fram­bjóð­enda sem vörðu yfir 500 þús­und krónum í sína fram­boðs­bar­áttu, en gera má ráð fyrir að þeir fram­bjóð­endur sem skil­uðu inn yfir­lýs­ingu um að þeir hafi varið minna en 500 þús­und krónum til fram­boðs­ins hafi varið ein­hverjum tugum eða hund­ruðum þús­unda í að koma sér á fram­færi.

Líklega var því heild­ar­kostn­aður fram­bjóð­enda vegna próf­kjörs­bar­áttu flokks­ins á lands­vísu eitt­hvað inn á sjö­unda tug millj­óna – en nær allt féð sem fram­bjóð­endur höfðu úr að moða fékkst með fram­lögum ein­stak­linga og fyr­ir­tækja sem standa fram­bjóð­end­unum nærri.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hélt próf­kjör í öllum kjör­dæmum og alls tóku 20.771 kjós­endur þátt í að velja fólkið sem síðan skip­aði listana sem boðnir voru fram 25. sept­em­ber.

Það má því nærri láta að fyrir hvert ein­asta atkvæði sem greitt var í próf­kjörum flokks­ins hafi fram­bjóð­endur kostað til um 3.000 krónum, ef útgjöld fram­bjóð­enda til bar­átt­unnar eru talin saman.

Guðlaugur Þór og Áslaug Arna í sérflokki

Prófkjör flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum var að venju helsti vett­vangur bar­átt­unnar og sá þar sem fram­bjóð­endur vörðu mestu til. Þar voru þátt­tak­endur í próf­kjör­inu flestir og bar­átta á milli ólíkra arma innan flokks­ins hvergi sýni­legri. Í ár greiddu 7.493 manns atkvæði í próf­kjör­inu í Reykja­vík, en þátt­tak­endur voru ein­ungis 3.430 tals­ins árið 2016, er síð­ast var haldið próf­kjör í borg­inni.

Áberandi bar­átta Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur og Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar er senni­lega á meðal ástæðna fyrir stór­auk­inni þátt­töku frá síð­asta próf­kjöri. Þau ætl­uðu sér bæði fyrsta sætið í próf­kjör­inu og þegar atkvæði höfðu verið talin hafði Guð­laugur Þór unnið góðan sigur.

Þeir sem studdu Áslaugu Örnu og reyndu að koma í veg fyrir sigur Guðlaugs hins vegar, „þeir töp­uðu“, eins og utan­rík­is­ráð­herr­ann sagði sjálfur eft­ir­minni­lega, hálf radd­laus, er hann fagn­aði sigri í próf­kjör­inu með stuðn­ings­mönnum sínum.

Mest púður fór í próf­kjörs­bar­áttu þeirra tveggja, en Guð­laugur Þór setti 11,1 milljón í slag­inn (þar af yfir 4 millj­ónir úr eigin vasa) og Áslaug Arna 8,7 millj­ónir. Aðrir fram­bjóð­endur í Reykja­vík­ur­próf­kjör­inu stóðu þeim all­nokkuð að baki.

Áslaug Arna og Guðlaugur Þór leiddu sitt hvorn lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Mynd: Samsett
Áslaug Arna og Guð­laugur Þór leiddu sitt hvorn lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík. Mynd: Samsett

Diljá Mist Ein­ars­dóttir og Hildur Sverr­is­dóttir, sem höfn­uðu í þriðja og fjórða sæti í próf­kjöri flokks­ins og voru kjörnar örugg­lega inn á þing í kosn­ing­unum þann 25. sept­em­ber, vörðu 4,5 og 3,3 millj­ónum króna í sína slagi.

Fleiri sótt­ust eftir sæt­unum sem þær stöllur hrepptu og vörðu til þess all­nokkru fé, án þess að upp­skera eins og stefnt var að.

Friðjón R. Frið­jóns­son, sem hafn­aði í 8. sæti í próf­kjör­inu, varði um 4,2 millj­ónum króna í sína bar­áttu og Kjartan Magn­ús­son, sem hafn­aði í sjö­unda sæti í setti 2,3 millj­ónir í slag­inn. Í fimmta og sjötta sæti í próf­kjör­inu höfn­uðu svo þeir Brynjar Níelsson og Birgir Ármanns­son, en hvor­ugur þeirra varði yfir 500 þús­und krónum í próf­kjörs­bar­átt­una. Það gerði Sigríður Á. Andersen fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra heldur ekki, en hún hlaut ekki braut­ar­gengi í próf­kjör­inu – náði ekki inn

Brynjar Níelsson, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, Jón Gunnarsson og Sigríður Á. Andersen á fundi í Valhöll fyrir nokkrum árum.
Brynjar Níelsson, Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, Jón Gunn­ars­son og Sigríður Á. Andersen á fundi í Valhöll fyrir nokkrum árum.

Brynjar, sem upp­haf­lega lýsti því yfir að hann ætl­aði ekki að taka sæti á lista sökum nið­ur­stöðu sinnar í próf­kjör­inu, gerði það þó á endum en féll út af þingi á meðan að Birgir Ármanns­son hélst inni, sem þriðji þing­maður flokks­ins í Reykja­vík suður.

Vilhjálmur segist hafa varið um fimm milljónum í slag við Guðrúnu

Annar áber­andi kosn­inga­slagur var í próf­kjör­inu í Suð­ur­kjör­dæmi, en þar kom inn nýlið­inn Guðrún Haf­steins­dóttir og sótt­ist eftir fyrsta sæt­inu á lista, sem Páll Magn­ús­son skip­aði í kosn­ing­unum 2017. Það gerði Vil­hjálmur Árnason þing­maður einnig.

Vil­hjálmur hefur ekki enn skilað inn yfir­liti til Rík­is­end­ur­skoð­unar um upp­gjör próf­kjörs síns, en hann segir Kjarn­anum að hann telji sig hafa varið um 5 millj­ónum króna í próf­kjörið. Guðrún sjálf setti rúmar 2 millj­ónir króna í próf­kjörs­bar­átt­una og hafði betur á end­anum á meðan Vil­hjálmur var að gera sér annað sætið að góðu.

Haraldur Benediktsson og Vilhjálmur Árnason. Mynd: Bára Huld Beck
Haraldur Bene­dikts­son og Vil­hjálmur Árnason. Mynd: Bára Huld Beck

Sá sem hafn­aði í þriðja sæti í próf­kjör­inu í Suð­ur­kjör­dæmi, Ásmundur Frið­riks­son, varði 3,2 millj­ónum í bar­áttu sinni, en aðrir fram­bjóð­endur í kjör­dæm­inu vörðu ýmist minna eða hafa ekki skilað inn upp­gjöri til Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Vert er að taka fram að fjórði og nýjasti þing­maður flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi, Birgir Þór­ar­ins­sonar, tók ekki þátt í neinu próf­kjöri, enda var honum stillt upp í efsta sæti á lista Mið­flokks­ins í kjör­dæm­inu. Svo færði hann sig yfir í annað þing­flokks­her­bergi ein­ungis tveimur vikum eftir kosn­ingar.

Arnar Þór og Jón Gunnarsson kostuðu mestu til í Kraganum

Í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, kjör­dæmi for­manns­ins Bjarna Bene­dikts­sonar, var bar­átta um 2.-4. sætið á lista flokks­ins, sem mátti gefa sér að yrðu svo gott sem örugg þing­sæti. Arnar Þór Jónsson hér­aðs­dóm­ari varði mestu til í þess­ari bar­áttu, eða 4,7 millj­ónum króna. Hann náði ekki þeim árangri sem hann ætl­aði sér í próf­kjör­inu og varð að láta sér fimmta sætið á list­anum lynda, sem síðan fleytti honum ekki inn á þing.

Jón Gunn­ars­son varði næst­mestu í sína bar­áttu, 4,5 millj­ónum króna og náði öðru sæti í próf­kjör­inu eins og hann stefndi að. Bryndís Har­alds­dóttir hafn­aði í þriðja sæti, en hún varði 1,9 millj­ónum króna í sína bar­áttu – eða nokkru meira en Óli Björn Kárason sem setti rúmar 1,3 millj­ónir króna í slag­inn.

For­mað­ur­inn Bjarni og aðrir fram­bjóð­endur í kjör­dæm­inu hafa skilað inn yfir­lýs­ingum til Rík­is­end­ur­skoð­unar um að bar­átta þeirra hafi kostað minna en 500 þús­und krónur.

Minnstur tilkostnaður í Norðvestur og Norðaustur

Þrátt fyrir að bit­ist hafi verið um odd­vita­sætin í bæði Norð­vestur- og Norð­aust­ur­kjör­dæmum í próf­kjör­unum sem þar fóru fram snemma í sumar voru fjár­út­lát fram­bjóð­anda þar mun tölu­vert minni en í kjör­dæm­unum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og í Suð­ur­kjör­dæmi.

Teitur Björn Ein­ars­son, sem hafn­aði í þriðja sæti í próf­kjör­inu í NV-kjör­dæmi varði mestu til, eða rúm­lega 1,7 millj­ónum króna á meðan að Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, sem hreppti odd­vita­sætið, þrátt fyrir að Haraldur Bene­dikts­son hafi ekki ætlað sér að láta það af hendi, varði rúmum 1,4 millj­ónum króna í sína bar­áttu. Sjálfur kost­aði Haraldur til 670 þús­und krónum, í sinni próf­kjörs­bar­áttu.

Í Norð­aust­ur­kjör­dæmi varði eng­inn fram­bjóð­andi yfir 500 þús­und krónum í sína bar­áttu, sam­kvæmt því sem fram kemur á vef Rík­is­send­ur­skoð­unar en reyndar hefur ekk­ert yfir­lit borist þangað frá Berg­lindi Ósk Guð­munds­dóttur, sem hafn­aði í öðru sæti í próf­kjör­inu.

Þeir Njáll Trausti Frið­berts­son og Gauti Jóhann­es­son sem sótt­ust eftir odd­vita­sæt­inu hafa báðir skilað inn yfir­lýs­ingum um að kostn­aður vegna fram­boða þeirra hafi verið undir hálfri milljón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið undanfarið ár