Frestar því að leggja niður pólitískt skipaðar barnaverndarnefndir

Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga óskaði eftir meira svig­rúmi til að und­ir­búa starf­semi barna­vernd­ar­þjón­ustu og umdæm­is­ráð barna­verndar sem eiga að koma í stað barna­vernd­ar­nefnda. Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið hefur sam­þykkt þá ósk.

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Mennta- og barna­mála­ráðu­neytið hefur fall­ist á beiðni Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga að fresta gild­is­töku ákvæða í barna­vernd­ar­lögum er varða barna­vernd­ar­þjón­ustu og umdæm­is­ráð barna­verndar.

Þetta kemur fram í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. Þetta þýðir að barna­vernd­ar­nefndir verða ekki lagðar niður í lok maí eins og til stóð heldur í lok árs.

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barna­mála­ráð­herra kynnti á rík­is­stjórn­ar­fundi á þriðju­dag­inn síð­ast­liðnum frum­varp þar sem lagt er til að fresta fram­kvæmd breyt­inga á barna­vernd­ar­lögum þar til full­nægj­andi und­ir­bún­ingur hefur farið fram.

Gert var ráð fyrir að breyt­ing­arnar tækju gildi þann 28. maí næst­kom­andi en sam­kvæmt nýju frum­varpi má búast við því að und­ir­bún­ingi barna­vernd­ar­þjón­ustu og umdæm­is­ráða barna­verndar verði lokið 1. októ­ber 2022 og taki til starfa 1. jan­úar 2023, að því er fram kemur í svari ráðu­neyt­is­ins.

Gefist sveit­ar­fé­lögum þá ráð­rúm til að ljúka við mönnun umdæm­is­ráða og aðlaga verk­ferla áður en barna­vernd­ar­nefndir verða lagðar niður.

Umdæmisráð koma í staðinn

Forsagan er sú að í júní síð­ast­liðnum sam­þykkti Alþingi breyt­ingar á barna­vernd­ar­lögum er varða upp­bygg­ingu barna­verndar innan sveit­ar­fé­laga. Breyt­ing­arnar fel­ast í því að í stað barna­vernd­ar­nefnda sveit­ar­fé­laga starf­ræki sveit­ar­fé­lög barna­vernd­ar­þjón­ustu og umdæm­is­ráð barna­verndar.

Fram kemur í svari ráðu­neyt­is­ins að frum­varpið hafi verið unnið í nánu sam­ráði við sveit­ar­fé­lögin og hafi fyr­ir­komu­lag barna­vernd­ar­þjón­ustu og umdæm­is­ráða barna­verndar verið byggt á vinnu starfs­hóps um fram­tíð­ar­skipu­lag barna­vernd­ar­þjón­ustu sveit­ar­fé­laga með full­trúum þáver­andi félags­mála­ráðu­neytis, Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og Samtaka stjórn­enda í vel­ferð­ar­þjón­ustu.

Töldu að nægur tími væri til stefnu

Lögin tóku gildi þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn en ákvæði þeirra er varða barna­vernd­ar­þjón­ustu og umdæm­is­ráð barna­verndar átti að koma til fram­kvæmda þann 28. maí næst­kom­andi, eins og áður segir.

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að við und­ir­bún­ing máls­ins hafi verið byggt á því að tæp­lega ár væri nægur tími til inn­leið­ingar breyt­ing­anna og að hent­ugt væri að tengja fram­kvæmd þeirra við sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar vorið 2022.

Mennta- og barna­mála­ráð­herra barst aftur á móti erindi frá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga þar sem lagt er til að gild­is­töku ákvæða er varða barna­vernd­ar­þjón­ustu og umdæm­is­ráð barna­verndar yrði frestað að lág­marki til 1. októ­ber 2022 og helst til 1. jan­úar 2023.

„Ráðu­neytið tók þessa beiðni til skoð­unar. Barna­vernd­ar­lög taka utan um þau börn sem eru í mestri þörf fyrir vernd og umönnun. Mik­il­vægt er að vandað sé til verka við inn­leið­ingu breyt­inga á fram­kvæmd lag­anna og að tryggt sé að breyt­ingar á skipu­lagi komi ekki niður á með­ferð mála þess­ara barna.

Því féllst mennta- og barna­mála­ráðu­neytið á beiðni sam­bands­ins,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins.

Ráðuneytið ekki haft tök á að veita æskilegan stuðning

Í bréf­inu, sem Kjarninn hefur undir höndum og dag­sett er þann 25. febr­úar 2022, er málið rakið en þar segir að breyt­ing­arnar feli í sér stór­aukna sam­vinnu sveit­ar­fé­laga á sviði barna­verndar þar sem miðað sé við að í umdæmi hverrar barna­vernd­ar­þjón­ustu og umdæm­is­ráðs barna­verndar skuli vera í það minnsta 6.000 íbúar en til sam­an­burðar hafi í fyrra íbúa­mark verið 1.500 íbúar. Að upp­fylltum ákveðnum skil­yrðum sé hægt að fá und­an­þágu frá íbúa­lág­marki varð­andi barna­vernd­ar­þjón­ustu en engar slíkar und­an­þágur séu í boði fyrir umdæm­is­ráð barna­verndar.

„Þó að almennt sé sátt um breyt­ing­arnar og þær taldar til þess fallnar að styrkja barna­vernd þá er inn­leið­ing svo umfangs­mik­illa breyt­inga flókin og tíma­frek og hefur af ýmsum ástæðum gengið hægar en vonir stóðu til í upp­hafi. Kosn­ingar til Alþingis, breyt­ingar á skipan ráðu­neyta með umfangs­miklum breyt­ingar á mál­efnum barna í Stjórn­ar­ráð­inu ásamt mik­illi áherslu á inn­leið­ingu nýrra laga um sam­þætt­ingu þjón­ustu í þágu far­sældar barna nr. 86/2021, með til­heyr­andi breyt­ingum á þeim stofn­unum sem að verk­efn­inu koma, hefur gert það að verkum að ráðu­neytið hefur ekki haft tök á að veita þann stuðn­ing við inn­leið­ing­una sem æski­legt hefði verið,“ segir í bréf­inu.

Samvinna margra sveitarfélaga kallar á lengri undirbúning

Þá er útskýrt að COVID-19 hafi haft áhrif á nær öll önnur verk­efni bæði ríkis og sveit­ar­fé­laga ásamt því að sam­ein­ingar sveit­ar­fé­laga og kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar geri það að verkum að erfitt sé að vinna að svo umfangs­miklum breyt­ingum á stjórn­sýslu sveit­ar­fé­laga í barna­vernd­ar­málum á þeim tak­mark­aða tíma sem til umráða er.

„Þá kom einnig í ljós þegar umfang mála hjá umdæm­is­ráðum barna­verndar var skoðað að lík­lega er skyn­sam­leg­ast að það verði ekki nema 2-3 umdæm­is­ráð á land­inu öllu. Eðli máls­ins sam­kvæmt krefst það sam­vinnu fjöl­margra sveit­ar­fé­laga um allt land sem kallar á lengri und­ir­bún­ing og mikla sam­vinnu,“ segir í bréf­inu.

Staðan var rædd á fundi full­trúa sam­bands­ins og ráðu­neyt­is­ins 16. febr­úar síð­ast­lið­inn. Á þeim fundi greindu full­trúar sam­bands­ins frá þeirri vinnu sem sér­fræð­ingar sam­bands­ins höfðu unnið í sam­starfi við sveit­ar­fé­lög utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

„Á fund­inum kom fram mik­ill sam­hljómur um mik­il­vægi þess að stjórn­sýsla barna­verndar í land­inu gangi snurðu­laust fyrir sig. Til þess að mark­mið laga­breyt­inga gangi eftir þarf að veita meira svig­rúm til inn­leið­ingar en gert var ráð fyrir við sam­þykkt lag­anna. Af þeim sökum er lagt til að gild­is­töku breyt­ing­anna verði frestað að lág­marki til 1. októ­ber 2022 og helst til næstu ára­móta. Samhliða er gert ráð fyrir því að stofn­aður verði inn­leið­ing­ar­hópur með full­trúum mennta- og barna­mála­ráðu­neytis, Barna- og fjöl­skyldu­stofu og Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga sem mark­visst mun vinna að inn­leið­ing­unni. Með því móti ætti að takast að ljúka inn­leið­ingu stjórn­sýslu­breyt­inga í öllum sveit­ar­fé­lögum.

Ef fall­ist verður á þetta erindi þarf jafn­framt að gera ráð fyrir að starf­andi barna­vernd­ar­nefndir haldi umboði sínu þar til breyt­ing­arnar taka gildi, án þess að skipa þurfi nýjar nefndir að loknum sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum til til­tölu­lega skamms tíma. Einnig þarf þó að gera ráð fyrir því að félags­mála/vel­ferð­ar­nefndir sem skip­aðar verða eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingar og fara jafn­framt með verk­efni barna­vernd­ar­mála hafi heim­ildir til að sinna barna­vernd­ar­hlut­verki sínu þar til laga­breyt­ingin tekur gildi,“ segir í bréf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár