Starfsmaður Rásar 2 greindist með kórónuveirusmit og sendi Víði í sóttkví

Sex starfs­menn Rásar 2 eru komnir í sótt­kví eftir að starfs­maður útvarps­stöðv­ar­innar greind­ist með COVID-19 í gær­kvöldi.

Víðir Reynisson var viðmælandi hjá Rás 2 nýverið. Starfsmaður útvarpsstöðvarinnar hefur greinst með COVID-19 og Víðir er kominn í sóttkví.
Víðir Reyn­is­son var við­mæl­andi hjá Rás 2 nýverið. Starfs­maður útvarps­stöðv­ar­innar hefur greinst með COVID-19 og Víðir er kom­inn í sótt­kví. Mynd: Lögreglan

Starfs­maður útvarps­stöðv­ar­innar Rásar 2, sem rekin er af RÚV, greind­ist með COVID-19 smit í gær­kvöldi. Vegna þessa eru sex starfs­menn RÚV og ein­hverjir við­mæl­endur sem komu í við­tal hjá starfs­mann­inum, komnir í sótt­kví.

Á meðal þeirra sem komu í við­tal hjá við­kom­andi, og er kom­inn í sótt­kví, er Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn hjá emb­ætti Rík­is­lög­reglu­stjóra. Vegna þessa verður Víðir ekki á fundi Almanna­varna sem hefst klukkan 14. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri hefur sent starfs­fólki RÚV tölvu­póst vegna máls­ins þar sem hann greinir frá meg­in­at­riðum þess. Í póst­inum kemur fram að unnið sé að smitrakn­ingu og mati á næstu skrefum í sam­vinnu við smitrakn­ing­arteymi almanna­varna. Uppruni smits­ins sé ekki ljós sem stendur og ekki sé talið að teng­ing sé á milli þess og smits hjá öðrum starfs­manni Rásar 2, sem kom upp í síð­ustu viku.

[adspot]Ákvarð­anir um næstu skref innan RÚV verða teknar í dag, hvað varðar auknar örygg­is­ráð­staf­anir eða breyt­ingar á sótt­varn­ar­reglum.

Alls greindust 38 með kór­ón­u­veirusmit inn­­­an­lands í gær. Það er umtals­vert færri en greindust á föstu­dag, þegar 75 smit voru greind. Und­an­farna fimm daga hafa 166 smit greinst inn­­­an­lands. Þetta kemur fram á vefnum covid.­­­is.

Alls voru rúm­­­lega 2.395 sýni tekin í land­inu í gær, sem er mun færri en í fyrra­dag þegar þau voru 3.600.

55 pró­­sent þeirra sem voru greindir sýktir í gær voru í sótt­­­kví við grein­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár