„Nú þurfa Íslendingar að gyrða sig í brók“

Fíknig­eð­læknir segir að nú þurfi Íslend­ingar að gyrða sig í brók svo að hið sama verði ekki upp á ten­ingnum á Íslandi og í Banda­ríkj­unum varð­andi ofnotkun ópíóíða.

Andrés Magn­ús­son fíknig­eð­læknir hjá Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins segir að lækna­sam­fé­lagið stjórn­ist ekki ein­göngu af vís­indum heldur geti fjár­hags­legir hags­munir í ákveðnum til­vikum haft veru­leg áhrif á starfs­hætti þess.

Þetta kemur fram í rit­stjórn­ar­grein lækn­is­ins í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins.

Vísar hann í grein í Lækna­blað­inu eftir fimm íslenska lækna sem sýnir að enn eykst notkun ópíóíða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fram kemur í ályktun grein­ar­innar að þróun lyfja­á­vís­ana á allar teg­undir ópíóíða­lyfja til skjól­stæð­inga heilsu­gæslu­stöðva á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á árunum 2008 til 2017 ætti að hvetja til end­ur­skoð­unar á verkja­með­ferð innan heilsu­gæsl­unnar og gæða­þró­unar á því sviði. Jafn­framt ættu nið­ur­stöð­urnar að hvetja til end­ur­mats á vinnu­lagi við end­ur­nýjum ávís­ana á ópíóíða­lyf í heilsu­gæslu.

Andrés rekur sög­una í grein sinni og bendir á að á síð­asta ald­ar­fjórð­ung hafi notkun ópíóíða marg­fald­ast í Banda­ríkj­unum. Þar í landi hafi hálf milljón manna á besta aldri lát­ist frá alda­mótum vegna ofskammta ópíóíða, flestir vegna ávís­aðra ópíóíða. Talað sé um ópíóíða­far­aldur en hann segir að far­ald­ur­inn sé ekki bund­inn við Banda­ríkin, sama þró­unin hafi verið í mörgum Evr­ópu­löndum, til dæmis Bret­landi.

Læknirinn ber aukna ábyrgð

„Þessi mikla aukn­ing hefur meðal ann­ars verið rakin til óvæg­innar mark­aðs­her­ferðar lyfja­fyr­ir­tækja sem fram­leiða ópíóíða. Banda­rískir dóm­stólar hafa úrskurðað að lyfja­fyr­ir­tækið Purdue Pharma hafi gefið í skyn að lítil hætta væri á að mynda fíkn í ákveðin ópíóíða­lyf, blekkt mark­að­inn, borið fé á lækna og hunsað vit­neskju um að auð­velt væri að mis­nota lyf þeirra. Fjöl­margir ein­stak­lingar, ætt­bálkar, fylki, sveit­ar­fé­lög og aðrir opin­berir aðilar hafa stefnt Purdue Pharma og unnið mörg mál. Nú er svo komið að búið er að taka Purdue Pharma til gjald­þrota­skipta upp í skaða­bætur auk þess sem eig­end­urnir þurfa að borga per­sónu­lega millj­arða doll­ara í skaða­bætur,“ skrifar Andrés.

Hann segir þetta sýna meðal ann­ars að lækna­sam­fé­lagið stjórn­ist ekki ein­göngu af vís­indum heldur geti fjár­hags­legir hags­munir í ákveðnum til­vikum haft veru­leg áhrif á starfs­hætti þess. „Það er eft­ir­tekt­ar­vert að hvorki lög­gjaf­ar­valdið, fram­kvæmd­ar­valdið né lækna­sam­fé­lagið skar upp herör gegn ópíóíða­far­aldr­inum í Banda­ríkj­unum heldur dóms­valdið. Nú þurfa Íslend­ingar að gyrða sig í brók svo að hið sama verði ekki upp á ten­ingnum á Íslandi, sér­stak­lega þar sem lang­flestar ávís­anir lækna á ópíóíða á Íslandi eru utan ábend­inga. Þar ber lækn­ir­inn aukna ábyrgð.“

Langalgengasti ópíóíðinn á Íslandi parkódín

Vísar Andrés aftur í fyrr­nefnda grein þar sem kemur fram að langal­geng­asti ópíóíð­inn á Íslandi sé park­ódín, en í Sér­lyfja­skrá segir að því skuli aðeins ávísað í þrjá daga í senn nema að sér­stak­lega standi á.

„En hvað er til bragðs að taka? Heil­brigð­is­ráðu­neytið gaf út skýrslu fyrir þremur árum síðan um hvernig sporna mætti við notkun ávana­bind­andi lyfja en erfitt hefur reynst að hrinda þeim ágætu hug­myndum í fram­kvæmd. Þó hafa þau gleði­tíð­indi gerst að í nýjum umferð­ar­lögum, 6 lið 48 greinar, er komið inn ákvæði sem heim­ilar að settar verði svip­aðar reglur um akstur undir áhrifum slævandi lyfja og gilda í Noregi og Danmörku. Langal­geng­ustu ópíóíð­arnir á Íslandi eru park­ódín og park­ódín forte en óheim­ilt er að aka bif­reið í Danmörku og Noregi ef þessum lyfjum hefur verið ávísað, þar sem áhrif á akst­urs­getu eru svipuð og eftir neyslu áfengis. Ætla má að draga myndi úr eft­ir­spurn eftir þessum lyfjum á Íslandi ef sjúk­ling­ur­inn vissi að hann yrði til­kynntur til Sam­göngu­stofu ef ávísað yrði á hann park­ódíni, líkt og dönskum og norskum læknum er upp­álagt að gera. Heimilt er að aka bif­reið í Noregi og Danmörku ef ávísað hefur verið í ákveð­inn tíma lang­virk­andi ópíóíðum af þeim teg­undum sem krabba­meins­sjúk­lingar fá,“ skrifar hann.

Ópíóíðar afar léleg lyf við langvinnum verkjum

Telur Andrés að aukn­ingin í notkun ópíóíða sé aðeins hluti af stærri mynd, nefni­lega aukn­ingu á notkun alls konar ávana­bind­andi efna. Aukning hafi orðið síð­ustu ára­tugi í öllum þremur flokk­unum: ólög­legum vímu­efnum, ávana­bind­andi lyfjum og áfengi. Á Íslandi hafi áfeng­is­neysla til dæmis fimm­fald­ast frá 1950. Talið sé að fóstur séu 15 sinnum meira útsett fyrir fóst­ur­skemm­andi áhrifum áfengis í dag heldur en var 1950.

„Fjöl­margar rann­sóknir hafa sýnt fram á að ópíóíðar eru afar léleg lyf við lang­vinnum verkjum, svo sem bak­verkjum, þótt þeim sé senni­lega lang­mest ávísað við slíkum kvillum. En því má aldrei gleyma að ópíóíðar eru frá­bær lyf í bráða­að­stæðum og þegar hilla fer undir lífs­lok. Aðeins 5% ópíóíða er ávísað vegna krabba­meins­verkja.

Árin 2011-2013 voru 7-10 and­lát á ári á Íslandi vegna ofskammta ópíóíða en 2018 til 2020 voru þau orðin að með­al­tali 17,3 á ári. Þessar tölur renna enn frek­ari stoðum undir nið­ur­stöður Sigríðar og félaga um að ópíóíða­far­ald­ur­inn sé alls ekki í rénun á Íslandi. Það er öfugt við það sem hefur gerst til dæmis í Banda­ríkj­unum og Bret­landi þar sem við­snún­ingur varð fyrir um það bil 5 árum síðan. Það er lofs­vert að Sigríður og félagar hafi notað þá vönd­uðu skrán­ingu og gagna­grunna sem til eru á Íslandi til þess að vekja athygli á þessum skað­valdi sem ekki hefur tek­ist að koma böndum á hér á landi,“ skrifar hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár