Birgitta stefnir ekki á ráðherrastól

Birgitta Jóns­dóttir blæs á kjafta­sögur þess efnis að hún stefni á ráð­herra­stól fyrir hönd Pírata eftir kom­andi kosn­ingar.

Birgitta Jónsdóttir, fráfarandi þingmaður Pírata.
Birgitta Jóns­dóttir, frá­far­andi þing­maður Pírata. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Birgitta Jóns­dóttir, frá­far­andi þing­maður Pírata, segir á Facebook-síðu sinni að hún stefni ekki á ráð­herra­stól. Uppi hafa verið vanga­veltur um hvort til standi að hún verði ráð­herra­efni fyrir Pírata vegna stefnu þeirra að sækja sér ráð­herra utan þings. Píratar mæl­ast nú með 10 pró­sent fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans.

„Ég hef heyrt það víða að Sjálf­stæð­is­menn séu eitt­hvað svefn­lausir út af því að ég sé að stefna á ein­hverja stóla. Ég hef bara ekki neitt mátað mig í einn eða neinn stól nema skrif­stofustól­inn minn og und­ir­bún­ing að bók um braut­ryðj­and­ann sem bjó mig til og önnur mun full­komn­ari verk, eins og t.d. lög við hin stór­kost­legu ljóð; Verka­maður og Lífs­bókin,“ segir hún í færslu sinni.

Birgitta til­kynnti um miðjan sept­em­ber að hún væri hætt í stjórn­málum og að hún myndi ekki bjóða sig fram að nýju í kom­andi kosn­ingum. „Ég hef lofað sjálfri mér því að hætta eftir þetta kjör­tíma­bil, óháð lengd þessi.

Það er ekk­ert sem getur fengið mig til að skipta um skoð­un. Ég er snortin af þeirri bylgju hvatn­ingar að fara fram aftur sem ég hef fundið fyrir þvert á flokka sem og í gras­rót minn­i,“ skrif­aði Birgitta í sept­em­ber.

Birgitta var fyrst kjörin á þing í kosn­ing­unum 2009 þegar hún tók sæti sem Alþing­is­maður Reykja­vík­ur­kjör­dæmis suður fyrir Borg­ara­hreyf­ing­una, síðar Hreyf­ing­una. Hún var svo kjörin á Alþingi að nýju fyrir Pírata í Suð­vest­ur­kjör­dæmi árið 2013 og svo aftur í kosn­ing­unum í fyrra.

Birgitta hefur verið leið­andi í starfi Pírata hér á landi og verið dyggur tals­maður þess að stjórn­ar­skrá Íslands verði end­ur­skoð­uð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár