Bang og Olufsen selur fyrir milljarða en tapar samt ár eftir ár

Það er ekki nóg að vöru­merkið sé heims­þekkt og árleg sala skipti millj­örðum. Hagnaður er lífæð hvers fyr­ir­tækis og þetta orð, hagn­aður, er nokkuð sem stjórn­endur Bang og Olufsen, B&O hafa ekki getað státað af um margra ára skeið. Flogið hefur fyrir að fyr­ir­tækið verði jafn­vel selt úr landi, margir Danir fá hroll við þá til­hugsun.

Það er á flestra vit­orði, að minnsta kosti þeirra sem fylgj­ast með hvernig vindar við­skipta­lífs­ins blása, að danski hljóm-og sjón­varps­tækja­fram­leið­and­inn Bang & Olufsen hefur um langt skeið átt í miklum rekstr­ar­erf­ið­leikum. Eftir sót­svart upp­gjör síð­asta rekstr­ar­árs (eins og for­stjór­inn orð­aði það) um mitt ár í fyrra von­uð­ust stjórn­end­urnir til að brátt kæmi betri tíð með pen­inga­grös í haga. Þær óskir og vonir rætt­ust ekki og af nýbirtum rekstr­ar­tölum má sjá að vandi fyr­ir­tæk­is­ins er meiri en nokkru sinni fyrr. Danskir fjöl­miðlar hafa jafn­vel gengið svo langt að tala um að fyr­ir­tækið hafi lengi barist fyrir til­veru sinni en nú sé fyr­ir­tækið komið fram á brún hengiflugs­ins og krafta­verk þurfi eigi B&O áfram að vera eitt af höf­uð­djásn­unum í dönskum iðn­aði.

Ekki fyrstu erfiðleikarnir en kannski þeir síðustu


Svona hljóð­aði fyr­ir­sögn í einu dönsku blað­anna fyrir nokkrum dögum. Þarna vísar blaðið til þess að frá stofnun B&O árið 1925 (starf­semin hófst reyndar 1924) hefur fyr­ir­tækið margoft lent í miklum erf­ið­leikum. Undir lok síð­ari heims­styrj­ald­ar­innar brenndu og sprengdu stuðn­ings­menn nas­ista verk­smiðj­una í Struer á Jótlandi og fram­leiðslan stöðv­að­ist um tíma.

Árið 1952 var þriðj­ungi starfs­manna sagt upp, þá voru um 20 við­tækja­fram­leið­endur í Danmörku og B&O þóttu gam­al­dags. Stjórn­endur lögðu þó ekki árar í bát og með sam­starfi við þekkta hönn­uði, fyrst Ib Fabi­an­sen og síðar Jacob Jensen varð fyr­ir­tækið í Struer leið­andi í hönnun hljóm-og sjón­varps­tækja. Þeirri for­ystu hefur B&O ætíð haldið. Árið 1978 var sér­stök B&O sýn­ing í MOMA (Museum of Modern Art) í New York. Lengra verður vart náð á hönn­un­ar­braut­inni. Síðan hefur mikið vatn til sjávar runnið og á ýmsu gengið. Und­an­farin ár hafa verið B&O mjög erfið og fyr­ir­tækið rekið með tapi ár eftir ár.

[quote font="0" align="right"]Und­an­farin ár hafa verið B&O mjög erfið og fyr­ir­tækið rekið með tapi ár eftir ár.[/quote]

Vörurnar of dýrar fyrir almenning


Þótt flestir séu sam­mála um að vör­urnar frá Bang & Olufsen beri af þegar kemur að útliti og séu í hópi þeirra bestu þegar kemur að mynd-og hljóm­gæðum er ekki það sama upp á ten­ingnum með verðið. B&O tækin eru með þeim dýr­ustu sem völ er á og á sam­drátt­ar­tímum, þegar almenn­ingur heldur fast um budd­una bitnar það á dýr­ari vörum. Þar að auki hafa margir aðrir fram­leið­endur lagt aukna áherslu á útlits­hönnun tækja sinna á und­an­förnum árum og þannig keppt við B&O en selt tækin á mun lægra verði. Einnig átti fyr­ir­tæki erfitt með að fylgja örri tækni­þróun, sat eftir.

Play vörulínan, ódýrari tæki


Fyrir um það bil fjórum árum kom á mark­að­inn ný vöru­lína, B&O play. Þarna var um að ræða mun ódýr­ari tæki en áður höfðu sést frá B&O. Play vör­urnar hafa selst vel en það hefur ekki dugað til að koma fyr­ir­tæk­inu á beinu braut­ina. Þá hefur verið lögð áhersla á sam­vinnu við bíla­fram­leið­endur um sölu á svo­nefndum Automotive hljóm­tækjum. Jafn­framt var ákveðið að leggja mikla áherslu á mark­aðs­sókn í Asíu, sér í lagi Kína.

Áhugi Kínverja á Dönum og öllu því sem danskt er jókst mjög í kjöl­far heims­sýn­ing­ar­innar í Shanghai árið 2010 þar sem Litla haf­meyjan, frá Löngu­línu, var til sýnis og vakti mikla athygli. B&O hafa á síð­ustu þrem árum opnað tugi versl­ana í Kína, hvort það verður til að auka blóð­flæðið um æða­kerfi B&O (orð for­stjór­ans) er ókomið í ljós en miklar vonir eru við það bundnar.

Avant sjónvarpið, það flottasta af öllu


Á síð­asta ári setti B&O á mark­að­inn nýtt sjón­varps­tæki, Avant. Avant nafnið er ekki nýtt af nál­inni, sjón­vörp með þessu nafni hafa verið fram­leidd hjá B&O um ára­bil. Nýja Avant tækið skyldi taka öllu fram sem áður hafði sést á þessu sviði, bæði varð­andi tækni og útlit. Verðið var líka eftir því. Ýmsum þótti hæpið að setja á mark­að­inn svo dýrt sjón­varps­tæki eins og efna­hags­á­standið var þá og er reyndar enn. Hjá B&O voru menn hins­vegar vissir um að mark­aður væri fyrir þetta nýja tæki. Það reynd­ist rétt, tækin seld­ust eins og heitar lummur, pant­an­irnar streymdu inn og það virt­ist bjart­ara framundan.

En þá kom babb í bát­inn. Fram­leið­endur ýmissa íhluta í Avant tækin gátu ekki annað eft­ir­spurn­inni og þar að auki komu fram gallar í tækj­unum sem reyndar tókst að bæta úr. Þetta varð hins­vegar til þess að tekj­urnar, sem B&O þurfti svo mjög á að halda, brugð­ust . Veltan á síð­asta rekstr­ar­ári var tæpir 3 millj­arðar danskra króna (u.þ.b. 59 millj­arðar íslenskir) og hafði auk­ist um rúm­lega 15 pró­sent frá árinu áður. Það er há upp­hæð en þessi mikla velta, og sölu­aukn­ing, hefur ekki náð að rétta af rekst­ur­inn.

[caption id="attachment_22935" align="alignnone" width="1200"] Á síð­asta ári setti B&O á mark­að­inn nýtt sjón­varps­tæki, Avant. Avant nafnið er ekki nýtt af nál­inni, sjón­vörp með þessu nafni hafa verið fram­leidd hjá B&O um ára­bil. Nýja Avant tækið skyldi taka öllu fram sem áður hafði sést á þessu sviði, bæði varð­andi tækni og útlit. Verðið var líka eftir því.[/caption]

Bang-Olufsen-BeoVision-Avant-TV-High-Quality-HD-4K_sound
Bang-Olufsen-BeoVision-Avant-TV-High-Quality-HD-4K_sound

 

Lífróður


Fyrir nokkrum dögum sagði B&O upp 125 manns, flestum í Danmörku og nú eru starfs­menn um það bil 2300. For­stjór­inn sagði af þessu til­efni að þótt aldan væri óneit­an­lega kröpp þessa dag­ana væri hann sann­færður um að fyr­ir­tæk­inu tæk­ist að rétta úr kútnum. Hann vildi ekki svara því hvort verið væri að skoða þann mögu­leika að selja hluta B&O úr landi en sagði að fjár­fest­inga­bank­inn Carnegie væri nú að kanna mögu­leik­ana á að fá nýtt fjár­magn inn í fyr­ir­tækið. Slíkt þýðir vænt­an­lega sölu á hluta þess. "Heim­ur­inn setur sama­sem merki milli Dan­merkur og Bang & Olufsen og eng­inn vill breyta því," sagði for­stjór­inn. Hvort honum verður að ósk sinni leiðir tím­inn í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár