Þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar töluvert á eftir áætlun

Rík­is­stjórnin hefur lagt fram helm­ing þeirra mála sem hún ætl­aði að gera í sept­em­ber og mjög lít­inn hluta þeirra sem áttu að leggja fram í októ­ber.

Einungis helm­ingur þeirra frum­varpa rík­is­stjórn­ar­innar sem voru á þing­mála­skrá í sept­em­ber, sem voru alls 26, höfðu verið lögð fram í lok síð­ustu viku, eða 13 tals­ins. Þá hafði ein af þremur þings­á­lykt­un­ar­til­lögum sem voru á þing­mála­skrá í sept­em­ber verið lagðar fyrir Alþingi á sama tíma.

Í októ­ber átti, sam­kvæmt þing­mála­skrá, að leggja fram 36 frum­vörp. Þann 18. októ­ber höfðu tvö þeirra verið lög fyrir Alþingi. Þá höfðu fimm af 14 þings­á­lykt­un­ar­til­lögum sem eru á þing­mála­skrá í októ­ber verið lagðar fyrir Alþingi. Síðan 18. októ­ber hafa þrjú frum­vörp rík­is­stjórnar verið lögð fram

[adspot]Rík­is­stjórnin hefur auk þess lagt tvö frum­vörp fram á Alþingi sem ekki eru á þing­mála­skrá á yfir­stand­andi þingi.

Þetta kemur fram í svari frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Umdeild frumvörp bíða

Á meðal frum­varpa sem átti að leggja fram í sept­em­ber, en hefur enn ekki verið mælt fyrir, er frum­varp til laga um vernd upp­ljóstr­ara og frum­varp til laga um breyt­ingar á lögum um fjöl­miðla.

Fyrra frum­varpið, sem lagt er fram af for­sæt­is­ráð­herra, kveður á um að miðlun upp­lýs­inga eða gagna, að full­nægðum skil­yrðum frum­varps­ins, telj­ist ekki brot á þagnar- eða trún­að­ar­skyldu við­kom­andi og leggi hvorki refsi- né skaða­bóta­byrgð á hann og geti ekki heldur leitt til stjórn­sýslu­við­ur­laga eða íþyngj­andi úrræða að starfs­manna­rétti. Þá er lagt sér­stakt bann við því að láta hvern þann sæta órétt­látri með­ferð sem miðlað hefur upp­lýs­ingum eða gögnum sam­kvæmt fram­an­sögðu. Lögð er sönn­un­ar­byrði á atvinnu­rek­anda á þann hátt að ef líkur eru leiddar að órétt­látri með­ferð skal hann sýna fram á að sú sé ekki raunin og greiða skaða­bætur ef það tekst ekki. Þegar frum­varpið var kynnt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda barst ein umsögn um það, frá Samtökum atvinnu­lífs­ins, sem lögðu til að það yrði athugað hvort að „ ekki væri hægt að fara væg­ari leið en að setja sér­lög um mál­efnið.“ Þau lögðu því til að frum­varpið yrði tekið til nán­ari athug­unar í ráðu­neyt­inu áður en lengra yrði haldið.

Síðara frum­varpið snýst að veita tví­þættan stuðn­­ing rík­­is­ins við einka­rekna fjöl­miðla. Ann­­ars vegar stuðn­­ing í formi end­­ur­greiðslu á allt að 25 pró­­sent af til­­­teknum hluta kostn­aðar af rit­­stjórn­­­ar­­störf­um, en að hámarki er hann 50 millj­­ónir króna á fjöl­mið­il. Hins vegar talað um stuðn­­ing sem nemi allt að 5,15 pró­­sent af launum starfs­­fólks á rit­­stjórn sem fellur undir lægra skatt­­þrep tekju­skatts­­stofna. Árlegur kostn­aður er met­inn 520 millj­­ón­ir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár