Meirihluti vill breytingar á Hamraborginni samkvæmt nýrri könnun

Meiri­hluti svar­enda í nýrri könnun um miðbæ Kópavogs er jákvæður í garð fyr­ir­hug­aðra skipu­lags­breyt­inga á Hamra­borg­ar­svæð­inu. Meira en helm­ingur svar­enda hefur þó kynnt sér breyt­ing­arnar lítið sem ekk­ert.

Mynd úr kynningarefni skipulagsbreytinga fyrir Hamraborgarsvæðið.
Mynd úr kynn­ing­ar­efni skipu­lags­breyt­inga fyrir Hamra­borg­ar­svæðið. Mynd: Kópavogur

Yfir 90 pró­sent Kópa­vogs­búa telja þörf á end­ur­bótum á miðbæ Kópavogs, eða Hamra­borg­ar­svæð­inu, sam­kvæmt nýrri könnun sem gerð var á meðal Kópa­vogs­búa um mið­bæ­inn. Tæplega 73 pró­sent svar­enda telja mikla þörf á end­ur­bótum.

Í til­kynn­ingu frá Kópa­vogsbæ segir að könn­unin hafi verið gerð að til­lögu skipu­lags­ráðs Kópavogs en gerð spurn­inga og fram­kvæmd könn­un­ar­innar var í höndum Maskínu. Alls tóku um 1.500 manns þátt í könn­un­inni, um 500 úr hverju póst­núm­eri í Kópavogi, úr 3.000 manna úrtaki sem valið var að handa­hófi úr Þjóðskrá.

Meirihluti kynnt sér fyrirhugaðar breytingar lítið sem ekkert

Alls lít­ast um 70 pró­sent þátt­tak­enda vel eða í með­al­lagi á til­lögur um breyt­ingar á skipu­lagi svæð­is­ins en 27 pró­sent aðspurðra líst illa á þær. Meiri­hluti þátt­tak­enda, 52 pró­sent, hafði samt sem áður lítið sem ekk­ert kynnt sér fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar. Um þriðj­ungur svar­enda hafði kynnt sér skipu­lags­breyt­ing­arnar í með­al­lagi vel en tæp 16 pró­sent höfðu kynnt sér til­lög­urnar vel.

Þrátt fyrir að almenn ánægja mælist með skipu­lags­til­lög­urnar í könn­un­inni þá hafa svar­endur tölu­verðar áhyggjur af því skugga­varp og svipti­vindar verði til vand­ræða. Yfir 60 pró­sent svar­enda telja að hvort tveggja verða mikið eða mjög mikið vanda­mál í nýju skipu­lagi Hamra­borg­ar­svæð­is­ins.

Þátt­tak­endur voru einnig spurðir hvað þeim þætti skipta mestu máli að yrði í nýjum miðbæ Kópavogs. Vin­sælasta svarið var kaffi­hús, en það nefndu hátt í 90 pró­sent svar­enda. Næst á eftir komu veit­inga­staðir en þá nefndu um 84 pró­sent kjós­enda. Um og yfir 75 pró­sent nefndu Minni versl­anir eða sér­versl­anir, úti­svæði fyrir fjöl­skyldur og börn og loks gróður.

Skipulagsbreytingarnar ekki óumdeildar

Í til­kynn­ingu Kópa­vogs­bæjar kemur fram að könn­unin verði höfð til hlið­sjónar við nán­ari útfærslu á skipu­lags­breyt­ingum í Hamra­borg en til stendur að ráð­ast í umfangs­miklar fram­kvæmdir á svæð­inu. Fyr­ir­hugað er að byggja 550 íbúðir á svæð­inu og að kostn­aður við fram­kvæmd­irnar verði um 20 millj­arðar.

Fyrr á þessu ári fjall­aði RÚV um skipu­lags­breyt­ing­arnar en í frétt RÚV kom fram að skiptar skoð­anir væru á mál­inu, til dæmis hefði verið stofn­aður Facebook-hóp­ur­inn Vinir Hamra­borgar þar sem margir lýstu yfir and­stöðu sinni við áformunum. Einn þeirra var Tryggvi Felixson sem sagði að um stór­slys væri að ræða og að bæj­ar­yf­ir­völd hefðu afhent verk­tökum skipu­lags­rétt­inn. Að hans sögn hefði ekk­ert til­lit verið tekið til íbúa svæð­is­ins.

Full­trúar minni­hlut­ans gagn­rýndu einnig fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir og sögðu meðal ann­ars skort hafa verið á sam­ráði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár