„Af hverju þarf að fækka bílum?“

Oddviti Ábyrgrar fram­tíðar í Reykja­vík sér enga ástæðu til að fækka bílum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hann vill auka umferð­ar­flæði í borg­inni til að minnka mengun og inn­leiða „Við­eyj­ar­leið“ sem tengir byggðir borg­ar­innar saman.

Jóhannes Loftsson, oddviti Ábyrgrar framtíðar í Reykjavík.
Jóhannes Loftsson, odd­viti Ábyrgrar fram­tíðar í Reykja­vík. Mynd: Bára Huld Beck

„Það er ástandið í borg­inni sem hvetur okkur til að fara af stað,“ segir Jóhannes Loftsson, odd­viti Ábyrgrar fram­tíðar, í sam­tali við Eyrúnu Magn­ús­dóttur í kosn­inga­hlað­varpi Kjarnans, Með orðum odd­vit­anna. Í hlað­varp­inu er rætt við alla odd­vita þeirra ell­efu fram­­boða sem bjóða sig fram í borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­unum sem fram fara næst­kom­andi laug­ar­dag, 14. maí.

Flokk­ur­inn var stofn­aður fyrir Alþing­is­kosn­ing­arnar í fyrra og bauð fram í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður. Stefnu­mál Ábyrgrar fram­tíðar lutu helst að efa­semdum tengdum kór­ónu­veiru­far­aldr­inum og gagn­semi bólu­setn­inga. Flokk­ur­inn hlaut 144 atkvæði, eða 0,1 pró­sent atkvæða.

Með ástand­inu í borg­inni á Jóhannes fyrst og fremst við slæma stöðu í hús­næð­is­málum og „þétt­ing­ar­stefnu“ Reykja­vík­ur­borgar sem flokk­ur­inn er mót­fall­inn. Hann segir ákveðið tíma­móta­á­stand í borg­inni.

„Þessi stefna, þessi þétt­ing­ar­stefna eins og hún leggur sig núna, hún gengur rosa­lega mikið út á það að það er verið að rífa hús­næði sem fyrir er, það er verið að auka flækju­stigið, að byggja upp, það er verið að setja inn ein­hver svona inn­viða­gjöld sem tengj­ast því að borga fyrir ein­hverja borg­ar­línu og borga fyrir alls konar við­bætur, borga fyrir pálma­tré, bara alveg uppi í maður veit ekki hvað, það er alltaf að bæta ein­hverju ofan á. Þetta er ekk­ert endi­lega eitt­hvað sem ein­stak­ling­ur­inn sjálfur myndi velja að eyða pen­ingnum sínum í,“ segir Jóhannes.

Viðeyjarleiðin muni leysa samgönguvanda borgarinnar

Eina lausnin, að hans mati, er að byggja ódýr­ara með því að byggja á ódýr­ari svæðum. Ábyrg fram­tíð leggur því til að tengja byggðir borg­ar­innar frekar saman, meðal ann­ars með svo­kall­aðri „Við­eyj­ar­leið“, sem felst í að leggja Sunda­braut­ina í gegnum Viðey, með botn­göngum frá Laug­ar­nes­inu út í Viðey og tengja við Gufunes.

„Sú teng­ing ein myndi laga umferð­ar­vanda­málin á Sæbraut­inni og Miklu­braut­inni, og svo taka aðra teng­ingu beint norður um göng til Kjal­ar­nes­svæð­is­ins og þá ertu kom­inn með risa, risa, risa, land­svæði sem er nær mið­bænum í ferða­tíma heldur en þessi úthverfi sem við erum að byggja í dag. Þú ert svo snöggur að ferð­ast þegar komin er hrað­braut í bæinn og það er okkar lausn.“

Jóhannes segir að með þess­ari lausn, Við­eyj­ar­leið­inni, sé í raun verið að leysa sam­göngu­vanda borg­ar­innar. „Við erum að minnka borg­ina í tíma. Við erum að byggja þar sem auð­velt er að ferð­ast hratt.“

Jóhannes segir Ábyrga fram­tíð hlynnta öllum sam­göngu­mátum. Það sé þó ekki rétt að færri bílar mengi minna heldur þurfi að lag­færa flæði á umferð­inni. Jóhannes sér ekki til­efni til að fækka bílum í umferð­inni. „Af hverju þarf að fækka bílum? Ég bara spyr þig, það eru allir að nota bíla? Vilja menn ekki fara í Costco?“ segir Jóhannes og bendir á að barna­fólk að mjög erfitt með að vera ekki á bíl.

„Viljum við ekki geta gert þessa hluti sem við erum að gera í dag?“ spyr Jóhannes, sem telur það veru­lega lífs­gæða­skerð­ingu að vera án bíls til lengri tíma.

Ábyrg framtíð vill tempra ábyrgðarlaust vald

Í þætt­inum fer Jóhannes einnig yfir sögu flokks­ins og gildi hans. Hann segir Ábyrga fram­tíð vilja tempra ábyrgð­ar­laust vald. „Við viljum að þegar hið opin­bera hefur vald yfir þegn­unum að þeir beri þá ábyrgð gagn­vart þeim sem það hefur vald yfir. Ef það er ekki hægt þá viljum við að þegn­arnir fái meira vald ef hið opin­bera getur ekki höndlað ábyrgð­ina, það er grund­vall­ar­þema í öllum okkar stefnu­málum.“

„Besti aðil­inn til að hafa vald yfir okkur erum við sjálf því við berum ábyrgð á okkar ákvörð­unum. Ef þú afsalar þessu valdi til ein­hverra ábyrgð­ar­lausra emb­ætt­is­manna þá eru teknar ákvarð­anir sem eru ekki endi­lega þínir hags­munir, heldur ags­munir emb­ætt­is­manns­ins, kannski eitt­hvað sem átti ekki að gera og hann er ábyrgð­ar­laus ef illa fer og þú berð ábyrgð­ina,“ segir Jóhannes. Dæmi um slíkt er staðan í hús­næð­is­málum að hans mati.

Á móti borgarlínu sem er „rándýr framkvæmd“

Jóhannes fer einnig yfir fleiri stefnu­mál flokks­ins í þætt­inum svo sem í sam­göngu­málum, sem fel­ast meðal ann­ars í því að skipta göngu­ljósum út fyrir göngu­brýr á Miklu­braut, efl­ingu dagor­eldra­kerf­is­ins í stað auk­innar áherslu á leik­skóla og borg­ar­lín­una, sem flokk­ur­inn er á móti.

„Við erum ein­fald­lega á móti borg­ar­lín­unni. Þetta eru rán­dýr fram­kvæmd vegna þess að það á að fjár­magna borg­ar­lín­unnar með lóða­sölu og það eru inn­viða­gjald líka við veg­ina. Borg­ar­línan ber meiri keim af því að vera nán­ast fast­eigna­þró­un­ar­verk­efni frekar en að vera sam­göngu­verk­efni,“ segir Jóhannes sem telur að verði borg­ar­línan útfærð sam­kvæmt núver­andi áætlun verði not­endur hennar fáir.

Sam­­kvæmt nýj­­ustu kosn­­inga­­spá Kjarn­ans og Bald­­urs Héð­ins­­sonar er Ábyrg fram­tíð annað tveggja fram­boða í Reykja­vík sem mæl­ast ekki með fylgi. Hitt fram­boðið er Reykja­vík – besta borg­in. En Jóhannes er bjart­sýnn á að ná sæti í borg­ar­stjórn í kom­andi kosn­ingum á laug­ar­dag. „Já ég bara vona það besta.“

Hægt er að hlusta á við­talið við Jóhannes í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár