Greiða á út styrki til einkarekinna fjölmiðla fyrir 1. september

Efnahags- og við­skipta­nefnd vill afmarka það frelsi sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra hafði til að útdeila rekstr­ar­styrkjum til einka­rek­inna fjöl­miðla með því að setja skil­yrði fyrir þeim.

Efnahags- og við­skipta­nefnd telur nauð­syn­legt að afmarka heim­ild Lilju D. Alfreðs­dóttur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, til að ákveða hvernig greiðslu sér­staks rekst­ar­stuðn­ings til einka­rek­inna fjöl­miðla verði háttað. Greiða á styrk­ina út í síð­asta lagi 1. sept­em­ber næst­kom­andi.

Þegar til­kynnt var um fram­lagið, sem á að nema 350 millj­ónum króna, átti Lilja að fá að útfæra hvernig þeim fjár­munum yrði ráð­stafað með því að semja reglu­gerð þess efnis. Stjórn­völd sögðu þá að gripið væri til aðgerð­anna til að styðja við fjöl­ræði og fjöl­breytni á fjöl­miðla­mark­aði. Það þurfi að tryggja einka­reknum fjöl­miðlum sér­stakan rekstr­ar­stuðn­ing „á yfir­stand­andi ári, en þeir hafa tapað miklum tekjum á sama tíma og eft­ir­spurn eftir þjón­ustu þeirra hefur auk­ist.“

Heim­ildir Kjarnans herma að hart hafi verið tek­ist á um málið við vinnslu þess. Hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins og þing­menn Mið­flokks­ins eru mót­fallnir þeirri aðferð­ar­fræði sem ráð­herr­ann vill inn­leiða varð­andi styrkja­kerfi einka­rek­inna fjöl­miðla, og birt­ist í fjöl­miðla­frum­varpi hennar sem situr fast í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd. Sú aðferð­ar­fræði snýst um að endur greiða ákveðið hlut­fall af kostn­aði við rekstur rit­stjórna þeirra fjöl­miðla sem upp­fylla þau skil­yrði að miðla fréttum og frétta­tengdu efni.

Vilji hluta þing­manna Sjálf­stæð­is­manna hefur staðið til þess að styrkirnir yrðu fremur ákvarð­aðir út frá greiddu trygg­inga­gjaldi. Sá vilji birt­ist meðal ann­ars í frum­varpi sem fjórir þeirra lögðu fram í des­em­ber síð­ast­liðnum. Með þeim hætti myndi uppi­staða styrkj­anna fara til þriggja stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækja lands­ins: Árvakurs, Torgs og Sýnar. Með hinni leið­inni dreifast þeir víðar og þak er sett á greiðslur til stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­anna.

Skorður settar á hvernig ráðherra megi útdeilda styrkjunum

Í breyt­ing­ar­til­lögu efna­hags- og við­skipta­nefndar um þann hluta band­orms­ins svo­kall­aða, frum­varps um marg­hátt­aðar laga­breyt­ingar sem þarf að gera til að lög­festa annað aðgerð­ar­pakka stjórn­valda vegna COVID-19, segir að nefndin telji „nauð­syn­legt að tíma­bundin heim­ild ráð­herra til greiðslu sér­staks rekstr­ar­stuðn­ings til einka­rek­inna fjöl­miða verði afmörkuð nánar“ en gert var í frum­varp­inu. Það verði gert með bráða­birgða­á­kvæði sem bætt verði í lög um fjöl­miðla.

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að það ákvæði feli í sér að kveðið verði á um skil­yrði þess að geta notið sér­staks rekstr­ar­stuðn­ings. Þannig megi fjöl­mið­ill til dæmis ekki vera í van­skilum með opin­ber gjöld, skatta eða skatta­sektir og þær upp­lýs­ingar sem lagðar verða fram með umsókn um rekstr­ar­stuðn­ing þurfa að vera stað­festar af lög­giltum end­ur­skoð­anda. „Í sam­ræmi við fram­an­greind skil­yrði skuli ráð­herra í reglu­gerð til­greina sér­stak­lega hvaða upp­lýs­ingar skuli fylgja umsóknum fjöl­miðla um rekstr­ar­stuðn­ing, þ.m.t. að umsóknum fylgi upp­lýs­ingar um greitt trygg­inga­gjald, með­al­fjölda stöðu­gilda, fjölda verk­taka og heild­ar­fjár­hæð greiðslna til starfs­manna og verk­taka vegna miðl­unar á fréttum og frétta­tengdu efni árið 2019.“

Óli Björn Kárason, formaður efnahags- og viðskiptanefndar, var einn þeirra fjögurra þingmanna Sjálfstæðisflokks sem lagði fram tryggingagjaldsleiðarfrumvarpið í desember í fyrra.
Óli Björn Kárason, for­maður efna­hags- og við­skipta­nefndar, var einn þeirra fjög­urra þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks sem lagði fram trygg­inga­gjalds­leið­ar­frum­varpið í des­em­ber í fyrra.

Við ákvörðun um fjár­hæð sér­staks rekstr­ar­stuðn­ings skuli meðal ann­ars litið til launa, fjölda starfs­manna og verk­taka­greiðslna vegna miðl­unar á fréttum og frétta­tengdu efni á rit­stjórnum árið 2019, útgáfu­tíðni og fjöl­breyti­leika fjöl­miðla. End­an­legt hlut­fall skuli ráð­ast af fjölda umsókna og að setja skuli hámark á stuðn­ing til ein­stakra fjöl­miðla. Margt í þessum skil­yrðum er sam­hljóma þeim sem sett voru fram í fjöl­miðla­frum­varpi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, sem legið hefur óaf­greitt í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd frá því í des­em­ber 2019.

Í til­kynn­ingu sem mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neytið sendi út eftir kynn­ing­ar­fund­inn um annan aðgerð­ar­pakka rík­is­stjórn­ar­innar þann 21. apríl, sagði að gert væri ráð fyrir því að fjöl­miðlar myndu sækja um stuðn­ing með form­legum hætti og stuðn­ing­ur­inn tæki mið af launa­kostn­aði fjöl­miðla vegna frétta­miðl­unar. Þak yrði sett á fjár­hæð styrkja til ein­stakra fjöl­miðla, svo stuðn­ing­ur­inn nýt­ist bæði stórum og litlum miðlum.

Úthlutun sér­staks rekstr­ar­fram­lags á að fara fram eigi síðar en 1. sept­em­ber 2020.

Sigmundur Davíð verulega ósáttur

Allir nefnd­ar­menn í efna­hags- og við­skipta­nefnd skrifa undir nefnd­ar­á­litið, þótt nefnd­ar­menn úr röðum stjórn­ar­and­stöðu­flokka geri það allir með fyr­ir­vara. Sér­stak­lega er gert grein fyrir þeim fyr­ir­vörum í álit­inu sem birt­ist í kvöld. Þar kemur fram að Einn nefnd­ar­maður, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins, gerir sér­stakar athuga­semdir við fyr­ir­komu­lag greiddra rekstr­ar­styrkja til fjöl­miðla í fyr­ir­vara sínum.

Sig­mundur segir afgreiðslu þess þáttar frum­varps­ins sem snýr að fjöl­miðlum frá­leita og „veru­legum vafa und­ir­orpið að hún geti talist til eðli­legra stjórn­sýslu­hátta.“

Hann telur mik­il­vægt að veita einka­reknum fjöl­miðlum stuðn­ing og jafna stöðu þeirra gagn­vart rík­is­miðl­inum RÚV en telur það að ráð­herra fjöl­miðla­mála skuli „veitt heim­ild til að útdeila fjár­magni til fjöl­miðla nán­ast að geð­þótta gengur gegn grund­vall­ar­við­miðum um fjár­reiður rík­is­ins og vald­heim­ildir ráð­herra. Ann­markar afgreiðsl­unnar eru slíkir að efast má um að for­svar­an­legt sé að skrifa undir álitið.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði þann þátt frumvarpsins sem snúi að fjölmiðlum fráleita og veita ráðherra geðþóttavald.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagði þann þátt frum­varps­ins sem snúi að fjöl­miðlum frá­leita og veita ráð­herra geð­þótta­vald.

Sig­mundur telur við­bæt­urnar sem kynntar eru í áliti efna­hags- og við­skipta­nefndar síður en svo til þess fallnar að lag­færa málið. „Kvöð um hámarks­stuðn­ing gengur gegn mark­mið­inu um að vernda störf og vand­aða „fram­leiðslu“ fjöl­miðla. Heimild til ráð­herra um að líta til fjöl­breyti­leika fjöl­miðla er algjör­lega óút­skýrð og getur orðið til þess að ráð­herra telji sér heim­ilt að verð­launa þá fjöl­miðla sem kunna að vera ráð­herra að skapi umfram aðra með vísan til fjöl­breyti­leika.“

Smári McCarthy, þing­maður Pírata, er á annarri skoðun. Hann segir að kostn­aður lít­illa fyr­ir­tækja við að sækja fé í opin­bera sjóði sé vit­an­lega hærri sem hlut­fall af heild­ar­veltu en hjá stærri fyr­ir­tækjum, og því hefði verið gott að koma til móts við minni einka­rekna fjöl­miðla þar. „Þegar efna­hags­á­föll verða bitna þau alltaf mest á smæstu og verst settu aðil­unum, sem jafn­framt njóta síst góðs af eðli­legu árferði. Það væri því ágætis til­breyt­ing ef aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar end­ur­spegl­uðu áhyggjur af afkomu þeirra, frekar en að leggja alltaf aðal­á­herslu á stærri eða fjár­sterk­ari aðila sem hafa eðli máls­ins sam­kvæmt betri bjargir.“

Kjarn­inn er einn þeirra fjöl­miðla sem upp­fyllir þau skil­yrði sem sett eru fyrir stuðn­ings­greiðslum eins og frum­varpið er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár