Vill flytja 4000 störf frá Kaupmannahöfn

Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn (Dansk fol­ke­parti) vill að tólf opin­berar stofn­anir verði fluttar frá Kaup­manna­höfn og komið fyrir á lands­byggð­inni. Hug­myndin hefur fengið blendnar und­ir­tektir.

Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn jók stór­lega fylgi sitt í kosn­ing­unum 18. júní síð­ast­lið­inn og er nú næst stærsti flokk­ur­inn á danska þing­inu með 37 þing­menn. Flokk­ur­inn hefur þrátt fyrir vel­gengn­ina valið að vera utan stjórnar, telur sig þannig hafa meiri áhrif á stjórn lands­mál­anna. Fylgi flokks­ins jókst um allt land en þó mest í lands­byggð­ar­kjör­dæmum langt frá höf­uð­staðnum Kaup­manna­höfn eða öðrum stórum bæjum, í þeim lands­hlutum sem Danir kalla gjarna udkants­dan­mark. Íbúum á þessum svæðum hefur á und­an­förnum árum fækkað mikið en að sama skapi fjölgað í stærri bæjum. Mest í Kaup­manna­höfn, þar fjölgar íbúum í hverjum mán­uði um tæp­lega eitt þús­und. Afleið­ingin er hús­næð­is­skortur í höf­uð­borg­inni en úti á lands­byggð­inni standa mörg þús­und hús, kannski tug­þús­undir, auð og yfir­gefin og grotna niður.

Kosningamál


Eitt helsta kosn­inga­mál Danska Þjóð­ar­flokks­ins fyrir kosn­ingar var að snúa því, sem flokk­ur­inn kallar öfug­þróun, við og kynnti strax í árs­byrjun hug­myndir sínar um flutn­ing opin­berra stofn­ana frá Kaup­manna­höfn. Þær hug­myndir voru almennt orð­aðar, hvorki nefndar stofn­anir né fjöldi starfa sem æski­legt færi að flytja burt úr höf­uð­staðnum. Þótt í aðdrag­anda kosn­ing­anna væri tals­vert rætt um vanda lands­byggð­ar­innar og hvað væri þar hægt að gera til úrbóta var umræðan um nákvæm­lega hvað gera skyldi ekki áber­andi.

Nefnd eða ekki nefnd


Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn lagði til í mars að komið yrði á fót sér­stakri nefnd sem skyldi kanna og koma með til­lögur um hvaða stofn­anir væri æski­legt að flytja frá Kaup­manna­höfn, hvert þær yrðu fluttar og hvað slíkt myndi kosta. Starfs­mönnum nokk­urra stofn­ana, sem ein­stakir þing­menn höfðu nefnt að upp­lagt væri að flytja, þótti nefnd­ar­hug­myndin góð. Með því móti yrði tekið til­lit til allra þátta en ekki ráð­ist í hlut­ina í ein­hverju fljótræði.

[caption id="attachment_36662" align="align­right" width="276"] Þing­mað­ur­inn Hans Kristian Skibby er tals­maður Danska Þjóð­ar­flokks­ins í atvinnu­málum.[/caption]

skibby
skibby

Nú hefur Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn hins vegar skipt um skoðun. Tals­maður flokks­ins í atvinnu­málum, Hans Kristian Skibby sagði í við­tali í danska sjón­varp­inu fyrir helgi að með því að stofna ein­hverja nefnd myndi þessu brýna hags­muna­máli seinka. Nefnda­störf hafi til­hneig­ingu til að drag­ast von úr viti og á end­anum fáist kannski engin nið­ur­staða. Í þessu máli megi engan tíma missa, stjórn­ar­flokk­ur­inn Venstre eigi ein­fald­lega að leggja fram hug­myndir og þær eigi síðan að ræða í þing­inu áður en end­an­leg ákvörðun verði tekin. Með þessu spar­ast mik­ill tími. Aðspurður um hvort slíkt fyr­ir­komu­lag bjóði ekki heim alls konar kjör­dæma­poti þing­manna, sem allir vilji fá allt í sitt kjör­dæmi, sagði Hans Kristian Skibby ekki ótt­ast slíkt.

Vill flytja 12 stofnanir og 4000 störf frá Kaupmannahöfn


Fyrir nokkrum dögum lagði Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn fram til­lögur sínar um hvaða stofn­anir flokk­ur­inn teldi að flytja ætti frá höf­uð­borg­inni til ann­arra staða í land­inu. Á list­anum eru tólf stofn­anir. Sú stærsta á list­anum er stofn­unin BaneD­an­mark með 2250 starfs­menn. Þessi stofnun hefur yfir­um­sjón með danska járn­brauta­kerf­inu, lagn­ingu teina, upp­setn­ingu merkja­ljósa, við­haldi á merkjum, ljósum og teinum o.s.frv. Sú næst fjöl­menn­asta er Danska Umhverf­is­stofn­unin með tæp­lega 1300 starfs­menn, 400 þeirra í Kaup­manna­höfn. Síðan kemur Eft­ir­lits­stofnun með land­bún­aði og fisk­veiðum, þar eru starfs­menn um það bil 1100, 800 þeirra í höf­uð­borg­inni.

Á list­anum eru auk áður­nefndra stofn­ana meðal ann­ars Danska veð­ur­stofan, Umferð­ar­stofn­unin, Orku­mála­stofn­unin og Sigl­inga­mála­stofnun. Samtals eru þessar stofn­anir með fleiri en 6000 starfs­menn en ljóst er að ef af flutn­ingum verður munu ekki allir starfs­menn verða fluttir til, hluti þeirra verður áfram í Kaup­manna­höfn. Það er mat Danska Þjóð­ar­flokks­ins að um 4000 störf verði með þessum hætti hægt að flytja til ýmissa staða á lands­byggð­inni. Það hefur vakið nokkra athygli að helstu for­ystu­menn Danska Þjóð­ar­flokks­ins hafa lítt eða ekki tjáð sig um hugs­an­legan flutn­ing rík­is­stofn­ana.

Ekki allir jafn hrifnir af hugsanlegum flutningum


Hug­myndir Danska Þjóð­ar­flokks­ins hafa mælst mis­jafn­lega fyrir. All­margir þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna hafa lýst sig and­snúna þessum hug­myndum, segja þær bera keim af lýð­skrumi, þarna sé verið að kasta fram hug­myndum, sem falli í kramið hjá til­teknum hópi kjós­enda. Algjör­lega sé sneitt hjá að ræða kostn­að­inn sem slíkur flutn­ingur stofn­ana hafi í för með sér. Og jafn­framt rösk­un­ina fyrir starf­semi við­kom­andi stofn­ana. Margir þing­menn hafa jafn­framt lýst efa­semdum um að flutn­ingur stofn­ana breyti nokkru, til þess þurfi meira en flutn­ingur 4000 starfa að koma til.

Reynsla Norðmanna


Í tengslum við nýfram­komnar til­lögur Danska Þjóð­ar­flokks­ins hefur hér í Danmörku tals­vert verið fjallað um nýlega skýrslu sem norskt ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæki, Asplan Viak, gerði um flutn­ing norskra stofn­ana á und­an­förnum árum. Mark­miðið með þeim flutn­ingum átti að vera að flytja sér­hæfð störf frá Ósló. Nið­ur­staða ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins var sú að slíkir flutn­ingar hafi í för með sér mik­inn kostnað, eða um eina milljón norskra króna á hvert starf, það jafn­gildir um það bil 18 millj­ónum íslenskum. Kjarninn greindi frá þeirri skýrslu í des­em­ber 2014.

[caption id="attachment_32872" align="alignnone" width="1024"] Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur lýst því yfir að stjórn sín muni skoða gaum­gæfi­lega að flytja stofn­anir og störf frá höf­uð­staðnum.[/caption]

Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra hefur lýst því yfir að stjórn sín muni skoða gaumgæfilega að flytja stofnanir og störf frá höfuðstaðnum.
Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur lýst því yfir að stjórn sín muni skoða gaum­gæfi­lega að flytja stofn­anir og störf frá höf­uð­staðnum.

Sparn­aður, sem reiknað hafði verið með, reynd­ist eng­inn því ýmis auka­kostn­aður varð mun meiri en áætlað hafði verið. Starf­semi þeirra stofn­ana sem fluttar voru frá Ósló raskað­ist veru­lega, meðal ann­ars vegna þess að margir starfs­menn ákváðu að segja upp og mik­ill tími og kostn­aður fylgdi því að ráða nýtt starfs­fólk, sem að stórum hluta þekkti lítt til starf­sem­innar. Mjög erfitt reynd­ist í mörgum til­vikum að fá til starfa sér­menntað starfs­fólk þannig að margar stofn­anir sem fluttar voru með þessum hætti eru nú mann­aðar fólki með mun minni menntun en það fólk sem áður var þar við störf. Nið­ur­staða ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tæk­is­ins er í stuttu máli sú að stofn­ana­flutn­ing­ur­inn hafi kostað mikið en skilað litlu. 

Pólitísk ákvörðun


Norska skýrslan hefur, eins og áður var sagt, verið tals­vert til umfjöll­unar í dönskum fjöl­miðlum. Þingmenn Danska Þjóð­ar­flokks­ins hafa lagt á það áherslu að þeir telji flutn­ing stofn­ana styrkja lands­byggð­ina en hafa lítið gefið fyrir þau rök að slíkur flutn­ingur veiki við­kom­andi stofn­anir. Troels Lund Poulsen atvinnu­mála­ráð­herra sagði í við­tali í danska sjón­varp­inu, þegar rætt var um kostn­að­inn við slíkan flutn­ing, að aðstæður hér í Danmörku væru aðrar en í Noregi, án þess að útskýra það nánar.

Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra hefur lýst því yfir að stjórn sín muni skoða gaum­gæfi­lega að flytja stofn­anir og störf frá höf­uð­staðnum en sagði jafn­framt að stjórnin þyrfti ekki að bera slíkar ákvarð­anir undir þingið, né ein­staka flokka sem þar eiga full­trúa. Flutn­ingur stofn­ana sé póli­tísk ákvörðun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár