Styðja stjórnina í að taka utan um stöðu Grindvíkinga

Frá flokk­unum í stjórn­ar­and­stöðu á þingi ber­ast þau svör við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar að þeir hygg­ist styðja stjórn­völd í aðgerðum til að taka utan um stöðu íbúa í Grinda­vík­urbæ. Píratar telja til­efni til að taka upp frum­varp sem þing­maður flokks­ins kom fram með á síð­asta þing­vetri og felur í sér afnám sjálfs­á­byrgðar hjá þeim sem fá tjón bætt frá Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands.

Staða Grindvíkinga
Staða Grind­vík­inga Hátt á fjórða þús­und manns hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín í Grinda­vík og óljóst er með öllu hvenær mögu­legt verður að snúa til baka.

Rík­is­stjórnin hefur boðað að unnið sé að laga­frum­varpi til að tryggja afkomu þeirra Grind­vík­inga sem ekki eiga þess kost að stunda vinnu á meðan bær­inn er rýmdur. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur sagt að þar verði horft til for­dæma úr kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, er laun voru m.a. tryggð er fólk var í sótt­kví.

Heim­ildin kann­aði hjá stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum hvort þeir hefðu ein­hverjar hug­myndir til að bregð­ast við stöðu þeirra rúm­lega 3.700 íbúa Grinda­víkur sem mega ekki dvelja heima hjá sér um þessar mundir og glíma við afkomu­brest og örygg­is­leysi.

Mikilvægasta verkefnið að eyða óvissu

Í svari sem blaðið fékk frá Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­manni Við­reisnar, segir að áhersla flokks­ins sé á sam­stöðu með Grind­vík­ingum og að þrýsta á að rík­is­stjórnin bregð­ist við áhyggjum þeirra, að bæj­ar­búum verði tryggt öryggi bæði varð­andi hús­næði og fram­færslu og að grind­vísk börn verði gripin af skólum og tóm­stunda­starfi. „Þarna verður að vera til áætlun,“ segir …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár