Marzieh Afkham önnur konan sem skipuð er sendiherra fyrir Íran

Marzieh Afkham verður á næst­unni fyrsta konan til að gegna emb­ætti sendi­herra fyrir Íran frá því fyrir bylt­ing­una árið 1979. Hún verður jafn­framt önnur konan í sögu rík­is­ins til þess að gegna þessu emb­ætti. Greint var frá skipun Afkham í írönskum fjöl­miðlum í gær, en ekki hefur verið greint frá því hvar hún verður sendi­herra.

Afkham er nú tals­kona íranska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og er fyrsta konan til að gegna því starfi. Hún hefur um þrjá­tíu ára reynslu af störfum innan utan­rík­is­þjón­ust­una.

Fyrir íslömsku bylt­ing­una í Íran árið 1979 hafði ein kona gegnt emb­ætti sendi­herra, það var Mehrangiz Dolats­hahi, sem var sendi­herra í Danmörku frá 1976 og þar til bylt­ingin var gerð. Hún var einnig þing­maður og barð­ist mikið fyrir umbótum í þágu kvenna, meðal ann­ars með fjöl­skyldu­lög­unum sem gáfu konum rétt á að sækja um skilnað og halda for­ræði yfir börnum sínum.

Hassan Rouhani for­seti lands­ins sagði í síð­ustu viku að það væri skylda rík­is­stjórn­ar­innar að skapa konum fleiri tæki­færi, en að breyt­ingar á hefðum væru ekki ein­göngu í hans höndum.

Mann­rétt­inda­sam­tök hafa fagnað skipun Afkham sem jákvæðu skrefi í jafn­rétt­is­bar­átt­unni í Íran. Þó breyti það ekki því að íranska þingið sé enn að reyna að setja ný lög sem tak­marki hlut­verk kvenna á opin­berum vett­vangi. Til að mynda stendur til að breyta fjöl­skyldu­lög­unum þannig að fólk megi ekki lengur gang­ast undir ófrjó­sem­is­að­gerðir og að aðgangur að getn­að­ar­vörnum verði tak­mark­aður veru­lega.

Rouhani þykir hóf­samur for­seti og hann hefur slakað á ýmsu sem við­kemur kynja­málum. Nýlega var konum gert kleift að sækja íþrótta­við­burði, sem var bannað. Þá hefur hann sagst vera mót­fall­inn aðgrein­ingu kynj­anna í háskólum. Enn er þó engin kona ráð­herra. Ein kona hefur gegnt emb­ætti ráð­herra, en það var undir for­vera Rouhani, Mahmoud Ahma­di­nejad.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár