Breytingar á eignarhaldi Kjarnans - Ágúst Ólafur úr hluthafahópnum

Móð­ur­fé­lag Kjarnans hefur keypt hlut Ágúst Ólafs Ágústs­sonar í miðl­inum. Fanney Birna Jóns­dóttir aðstoð­ar­rit­stjóri hefur bæst við hlut­hafa­hóp­inn.

Kjarninn miðlar ehf., móð­ur­fé­lag Kjarnans, hefur keypt allt hlutafé Ágústs Ólafs Ágústs­sonar, þing­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, í félag­inu. Um er að ræða 6,25 pró­sent hlut.

Ágúst Ólafur keypti hlut í Kjarn­anum árið 2014. Á þeim tíma var hann ekki þátt­tak­andi í stjórn­málum. Hann sat enn fremur í stjórn mið­ils­ins um tíma. Í sept­em­ber 2017 til­kynnti Ágúst Ólafur að hann ætl­aði að hefja stjórn­mála­þátt­töku að nýju og vék hann sam­stundis úr stjórn Kjarnans, enda var það mat stjórn­enda Kjarnans, Ágústs Ólafs og ann­arra hlut­hafa að ekki færi saman að vera kjör­inn full­trúi og eiga hlut í fjöl­miðli. Samhliða var gert sam­komu­lag um að Ágúst Ólafur yrði með öllu óvirkur eig­andi í félag­inu og að hlutur hans yrði settur í sölu­ferli. Greint var frá þessu opin­ber­lega á sínum tíma.

Nú er því ferli lokið með ofan­greindri nið­ur­stöðu. Þá hefur Fanney Birna Jóns­dóttir, aðstoð­ar­rit­stjóri Kjarnans, bæst í hlut­hafa­hóp­inn.

Í fjöl­miðlum hefur verið fjallað um að hlutur Ágústs Ólafs Í Kjarn­anum hafi auk­ist milli áranna 2017 og 2018. Það gerð­ist í kjöl­far þess að hlut­haf­a­lán, sem veitt var vegna fjár­fest­inga á fyrri hluta árs­ins 2017, var breytt í hlutafé í byrjun árs 2018. Því átti sú aðgerð sér stað tölu­vert áður en Ágúst Ólafur til­kynnti um þátt­töku í stjórn­málum og náði kjöri sem þing­maður. Fjöl­miðla­nefnd hefur verið til­kynnt um breyt­ing­arnar líkt og lög gera ráð fyrir. [adspot]

Eignarhald Kjarnans er eftirfarandi:

Hjalti Harð­ar­son, 7,86%

Fanney Birna Jóns­dóttir, 0,97%

Magnús Hall­dórs­son, 11,71%

Þórður Snær Júl­í­us­son, 10,36%

Birgir Þór Harðason, 2,46%

Jónas Reynir Gunn­ars­son, 2,46%

Kjarninn miðlar ehf., 6,25%

HG80 ehf., í eigu Hjálmars Gísla­sonar, 18,28%

Miðeind ehf., í eigu Vil­hjálms Þor­steins­sonar, 17,80%

Birna Anna Björns­dóttir, 12,20%

Fagri­skógur ehf., í eigu Stefáns Hrafn­kels­sonar, 4,83%

Milo ehf., í eigu Gumma Haf­steins­sonar og Eddu Haf­steins­dóttur, 4,83%

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár