Býst við að Landspítali fari af neyðarstigi í vikunni

For­stjóri Land­spít­ala býst við að spít­al­inn geti farið af neyð­ar­stigi niður á hættu­stig í vik­unni, sem þýðir að aftur verður hægt að fram­kvæma val­kvæðar aðgerðir á spít­al­anum. Skýrsla um hóp­sýk­ingu á Landa­koti gæti verið kynnt almenn­ingi fyrir viku­lok.

Páll Matthíasson forstjóri Landspítala á fundinum í dag.
Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­ala á fund­inum í dag. Mynd: Almannavarnir.

Páll Matth­í­as­son for­stjóri Land­spít­ala segir að hann búist við því spít­al­inn verði færður af neyð­ar­stigi og niður á hættu­stig á allra næstu dögum.

Það þýðir að aftur verður hægt að fram­kvæma svo­kall­aðar val­kvæðar aðgerðir á spít­al­anum, en þurft hefur að fresta mörg hund­ruð aðgerðum frá því að spít­al­inn var settur á neyð­ar­stig eftir að hópsmit kom upp á Landa­koti.

Þetta kom fram í máli for­stjór­ans á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. Sextán ein­stak­lingar greindust með COVID-19 í gær og þar af voru ein­ungis tveir utan sótt­kvíar.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á fund­inum að þessum tölum þyrfti að taka með fyr­ir­vara, þar sem færri sýni væru tekin um helgar en virka daga, en þó væri ljóst að inn­an­lands­smitum héldi áfram að fækka hægt og bít­andi og það bæri að þakka góðri þátt­töku almenn­ings í sótt­varn­ar­að­gerðum.

[adspot]

Fimm ein­stak­lingar lét­ust vegna COVID-19 um helg­ina. Í öllum til­fellum var um að ræða eldra fólk, sem smit­að­ist í tengslum við hóp­sýk­ing­una á Landa­koti. Fram kom í máli for­stjóra Land­spít­ala að sjötta and­látið hjá ein­stak­lingi í þessum hópi sjúk­linga væri yfir­vof­andi.[links]

„Ég vil fyrir hönd alls starfs­fólks Land­spít­ala segja að hugur okkar er hjá aðstand­endum þessa fólks, sem veiran hefur nú lagt af velli,“ sagði Páll.

Skýrsla um Landakotssmitið mögulega kynnt í lok vikunnar

Skýrsla Land­spít­ala vegna hópsmits­ins á Landa­koti er til­búin í drögum og verður núna rýnd varð­andi aðferða­fræði og síðan kynnt emb­ætti land­læknis. Þegar emb­ætti land­læknis verður búið að koma með sínar athuga­semdir og spurn­ingar verður skýrslan kynnt starfs­fólki Land­spít­ala og síðan almenn­ingi.

Páll sagði að skýrslan ætti að vera til­búin til opin­berrar kynn­ingar í fyrsta lagi fyrir lok vik­unnar.

Mjög hægt verði farið í allar afléttingar

Þórólfur sótt­varna­læknir sagði á fund­inum í dag að hann teldi að það þyrfti að fara „mjög hægt“ í að aflétta núver­andi sótt­varn­ar­að­gerðum, sem eru í gildi til 17. nóv­em­ber.

Spurður að því hvort lækk­andi fjöldi nýsmita gæfi ekki til­efni til þess að skoða að létta á aðgerðum sem nú er í gildi fyrr en áætlað var sagði hann svo ekki vera, að sínu mati. Það væri vont að slaka á aðgerðum of snemma og þurfa svo að herða á aðgerðum aftur, ef illa færi.

„Ég held að það eigi allir að vera undir það búnir að við höfum til­tölu­legar harðar tak­mark­anir áfram,“ sagði Þórólfur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár