Verðtryggingin fer fyrir Hæstarétt Íslands í maí

Fyrra verð­trygg­ing­ar­málið sem EFTA-dóm­stóll­inn veitti ráð­gef­andi álit um verður tekið fyrir í Hæsta­rétti 4. maí næst­kom­andi. Því ætti nið­ur­staða þess máls, þar sem tek­ist er á um hvort verð­trygg­ing neyt­enda­lána sé lög­mæt, að liggja fyrir síð­ari hluta maí mán­aðar.

EFTA-dóm­stól­inn skil­aði ráð­gef­andi áliti sínu í mál­inu í ágúst 2014 og hér­aðs­dómur Reykja­víkur úrskurð­aði í því í febr­úar. Nú fer málið fyrir Hæsta­rétt sem kveður end­an­lega á um nið­ur­stöðu þess.

Tekist á um lögmæti verðtryggingar


Málið sem um ræðir, Gunnar V. Eng­il­berts­son gegn Íslands­banka , snýst um hvort verð­trygg­ing­ar­á­kvæði í 4,4 millj­óna króna skulda­bréfi sem Glitnir, sem Íslands­banki er reistur á, gaf út í maí 2007 vegna fast­eigna­kaupa Gunnars sé lög­mætt. Fyrir hér­aðs­dómi Reykja­víkur hélt Gunnar því fram að verð­trygg­ing­ar­á­kvæðið væri órétt­mætur skil­máli og sem slíkur and­stæður til­skipun 93/13/EBE í samn­ingnum um Evrópska Efna­hags­svæðið (EES).

Hér­aðs­dómur beindi fimm spurn­ingum til EFTA-dóm­stóls­ins og bað um ráð­gef­andi áliti dóm­stóls­ins á þeim. Þar var málið tekið fyrir í apríl 2014 og dóm­stól­inn skil­aði áliti sínu þan 28. ágúst síð­ast­lið­inn. Nið­ur­staðan var sú að verð­trygg­ing neyt­enda­lána væri ekki í bága við Evr­óputil­skip­un­ina. Það væri íslenskra dóm­stóla að taka afstöðu til þess hvort lána­samn­ingur Gunnars væri sann­gjarn.

[caption id="attachment_22853" align="align­right" width="150"] Einar Páll Tamimi.[/caption]

Einar Páll Tamimi.
Einar Páll Tamimi.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur stað­festi síðan í byrjun febr­úar síð­ast­lið­ins þá ákvörðun sýslu­manns Reykja­víkur í máli Gunnars að gera fjár­nám í heim­ili hans vegan láns­ins, en Gunnar hafði kraf­ist þess að fjár­námið yrði aft­ur­kallað vegna þess að hann taldi verð­trygg­ing­una ólög­mæta.

Úrskurð­ur­inn var kærður til Hæsta­réttar og nú hefur Kjarninn fengið það stað­fest að aðilum máls­ins hafi verið til­kynnt að munn­legur mál­flutn­ingur í því fari fram 4. maí næst­kom­andi. Því ætti að fást nið­ur­staða Hæsta­réttar við þess­ari stóru spurn­ingu um lög­mæti verð­trygg­ing­ar­innar í maí­mán­uði.

Einar Páll Tamimi, lög­maður Gunnars, segir að þar sem um úrskurð sé að ræða, sem var kærður til Hæsta­réttar, þá sé óvenju­legt að málið sé flutt munn­lega. Vanalega sé byggt á skrif­legum grein­ar­gerðum aðila máls­ins. Hæsti­réttur hafi hins vegar heim­ild til þess að heim­ila að málið sé flutt munn­lega en það en slíkt sé ein­ungis gert í allra stærstu kæru­málum. Nú hafi hann ákveðið að það verði gert í þessu máli.

Enn liggur ekki fyrir hverjir muni dæma í þessu mikla hags­muna­máli né hversu margir dóm­arar það verða.

Hitt málið enn eftir


Þrátt fyrir að nið­ur­staða sé vænt­an­leg í þessu máli verður verð­trygg­ing­aró­viss­unni ekki að öllu leyti eytt. En á eftir að klára mál Sævars Jóns Gunn­ars­sonar gegn Lands­bank­anum vegna verð­tryggðs neyt­enda­láns sem hann tók haustið 2008 fyrir íslenskum dóm­stólum.

Því máli var einnig vísað til EFTA-dóm­stóls­ins. Í því var sömu fimm spurn­ing­unum beint til EFTA-dóm­stóls­ins en einni bætt við. Hún snýst til­skipun um hlut­falls­tölu kostn­aðar. Á manna­máli þýðir það að þegar ein­hver er að taka lán þá á að koma fram hver kostn­aður vegna láns­ins verður. Í Evrópu myndi slík tala sam­an­standa af vöxtum og lán­töku­gjaldi. Þegar íslensku bank­arnir og Íbúða­lána­sjóður hafa verið að reikna þessa hlut­falls­tölu þá hefur verð­trygg­ingin verið und­an­skilin, þrátt fyrir að hún hafi sann­ar­lega áhrif á hver kostn­aður láns­ins verður. Við útreikn­ingu kostn­aðar hefur ein­fald­lega bara verið miðað við að verð­bólgan sé 0 pró­sent.

[quote font="0" align="right"]EFTA-dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu í lok nóv­em­ber 2014 að það sé ekki heim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði ef verð­bólgan er hærri eða lægri en sú tala.[/quote]

EFTA-dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu í lok nóv­em­ber 2014 að það sé ekki heim­ilt að miða við 0 pró­sent verð­bólgu við útreikn­ing á heild­ar­lán­töku­kostn­aði ef verð­bólgan er hærri eða lægri en sú tala.

Í nið­ur­stöð­unni segir einnig að það sé lands­dóm­stóls að meta hvaða áhrif það hafi að gefa rangar upp­ýs­ingar um heild­ar­lán­töku­kostnað og hvaða úrræðum sé hægt að beita til að bæta fyrir þær upp­lýs­ingar.

Þessi nið­ur­staða gæti haft ótrú­lega víð­tæk áhrif á íslenskt sam­fé­lag. Hæsti­réttur Íslands hefur tvo val­kosti í mál­inu: annað hvort horfir hann til fyrstu máls­greinar 14. greinar gömlu lag­anna okkar um neyt­enda­mál. Þá verða öll verð­tryggð neyt­enda­lán ólög­mæt og verð­bætur vegna þeirra þarf þá vænt­an­lega að end­ur­greið­ast. Það þýðir að lán­veit­endur þurfa að borga til baka allar verð­bætur vegna fast­eigna­lána, bíla­lána, yfir­drátta og ann­arra verð­tryggðra neyt­enda­lána sem tekin hafa verið frá því að til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins var inn­leidd. Hæsti­réttur getur líka horft til þriðju máls­greinar sömu laga og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að verð­tryggð lán séu ekki ólög­mæt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár