Obama réttir fram hjálparhönd en stígur línudans í hernaðarspennu

Ákvörðun stjórn­valda í Banda­ríkj­unum um að taka við tíu þús­und flótta­mönnum frá Sýrlandi á næsta ári sætir tíð­indum, þó fjöld­inn sé aðeins dropi í hafi vanda­máls­ins sem þjóðir heims­ins, ekki síst í Evrópu, standa frammi fyrir vegna gríð­ar­legs straums fólks frá stríðs­hrjáðum svæðum, einkum Sýrlandi, Írak og Afganistan. Fram að þessu hafa stjórn­völd í Banda­ríkj­unum haft sjálf­stæða stefnu gagn­vart Sýrlandi og ekki fylgt ákvörð­unum ann­arra ríkja, hvorki varð­andi vanda flótta­manna eða annað, en frétta­skýrendur hér í Banda­ríkj­unum segja að ákvörðun Obama sé „tákn­ræn“ og hann vilji að gefa út þau skila­boð, að hann standi með Evr­ópu­ríkjum og verði þeim innan handar. Þetta sé mik­il­væg diplómat­ísk lína að draga í ástandi sem ein­kenn­ist af vax­andi spennu.

Til sam­an­burðar ætla Þjóð­verjar að taka á móti 600 þús­und flótta­mönnum á næsta ári, og hefur Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, hvatt þjóðir heims til að standa saman og taka við flótta­mönnum opnum örmum. Auk þess þurfi að huga að rótum vand­ans, í stríðs­hrjáðum löndum - Sýrlandi ekki síst - með mannúð að leið­ar­ljósi. Hún ítrek­aði í dag þá afstöðu sína að Evr­ópu­þjóðir þyrftu að opna faðm sinn fyrir flótta­fólki, og sagði að landa­mæri Þýska­lands yrðu áfram opin. Þrátt fyrir tíma­bundna lokun þeirra, sem væri fyrst og fremst til að bæta mót­töku­ferlið og auka öryggi flótta­manna, þá yrði það meg­in­mark­mið aðgerð­anna að bjarga fólki úr brýnni neyð. Sjálf hefur hún sagt að koma mik­ils fjölda flótta­manna til Þýska­lands, mun að lík­indum „var­an­lega“ breyta Þýska­landi.

Hernaðarspenna - Bandaríkin og Rússland í hár saman


John Kerry utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna og Sergei Lavron utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands ræddu saman í síma, síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, að því er Reuters greindi frá í dag. Ræddu þeir fyrst og fremst aðkomu Rússa að hern­að­ar­að­gerðum í Sýrlandi, en Kerry hefur full­yrt að Rússar séu að styðja við ólög­mætar aðgerðir stjórnar Assads. Hann beiti her Sýrlands gegn óbreyttum borg­urum, og Rússar muni ekki kom­ast upp með að leggja til stuðn­ing sinn. Lavrov birti yfir­lýs­ingu á vef ráðu­neytis síns, að því er fram kemur í umfjöllun Reuters, þar sem hann seg­ist hafa ítrekað við Kerry að nauð­syn­legt væri að mynda þétt banda­lagt gegn hryðju­verka­hópum sem séu vax­andi ógn við almanna­hag í Sýrlandi.

Hvað sem líður þessum við­horfum utan­rík­is­ráð­herrana þá ein­kenn­ast sam­skipti Rússa og Banda­ríkj­anna af vax­andi spennu, og segir í umfjöllun Washington Post að fram­ferði rúss­neska hers­ins í Úkraínu að und­an­förnu og í Sýrlandi, þar sem her­menn hafa komið sér fyrir á mik­il­vægum svæðum og her­flug­vélar flogið inn í loft­helgi þar sem þær eiga ekki að vera, sé „ögrun“ við Banda­ríkin, Evr­ópu­ríki og raunar heims­frið. Í reynd séu Rússar ein­angr­aðir og reyni hvað þeir geti til að styrkja sam­band við banda­lags­þjóðir, eins og Kínverja, á meðan þeir færa sig sífellt upp á skaftið, með veikan efna­hag. Sitt sýn­ist hverjum um þetta mat, og hafa Rússar alfarið neitað því að þeir séu að styðja ólög­mætar aðgerðir í Sýrlandi. Í dag fóru þeir form­lega fram á það að Obama og Vladímir Pútín, for­seti Rúss­lands, ræddu um stöðu mála í Sýrlandi, og hvernig megi tryggj þar frið og um leið draga úr spennu milli þess­ara fornu póli­tísku óvina.


Russia says it wants Putin-Obama talks on #Syria: http://t.co/87RTD8xD3w pic.twitter.com/gZ8uyR1S9g


— Reuters Top News (@Reuters) Sept­em­ber 15, 2015


Reynir á pólitíska hæfileika


Leið­togar valda­mestu ríkja heims­ins eru undir mik­illi pressu þessa dag­ana, vegna vax­andi spennu í Evrópu og stríðsták­anna í Sýrlandi, Írak og Afganistan. Margt bendir til þess að við­brögð ríkja heims­ins, ekki síst í Evrópu, við þeim miklu erf­ið­leikum sem blasa við millj­ónum manna, hafi verið alltof sein. Góður vilji nú sé ekki nóg til þess að bregð­ast við yfir­þyrm­andi vanda sem allt að 25 millj­ónir manna glíma nú við.

Til þess að lág­marka tjónið þurfi að grípa aðgerða sem gætu orðið umdeildar. Svo sem umfangs­meiri hern­að­ar­í­hlut­unar í Sýrlandi. Hvernig sem mál munu þró­ast þá standa þjóð­ar­leið­togar frammi fyrir miklum vanda þar sem tím­inn vinnur ekki með þeim, frekar en millj­ónum óbreyttra borg­ara sem ógn­ar­öld stríðs bitnar á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár