Meintur morðingi Nemtsov segist hafa verið pyntaður og neyddur til að játa

Maðurinn sem játað hefur aðild að morði á rúss­neska stjórn­ar­and­stæð­ingnum Boris Nemtsov ber merki þess að hafa verið pynt­aður og neyddur til að játa á sig morðið. Þetta segir Andrei Babus­hkin, með­limur mann­réttinda­ráðs í Rúss­landi.

Babus­hkin heim­sótti sak­born­ing­inn Zaur Dadayev í fang­elsi í gær ásamt blaða­manni. Hann sagði við fjöl­miðla í dag að sár væru á lík­ama Dadayev og að ástæða væri til að halda að hann hefði játað eftir pynt­ingar. Hann kall­aði eftir því að óháðir aðilar yrðu fengnir til þess að rann­saka málið.

Babus­hkin segir að Dadayev hafi sýnt honum för eftir hand­járn og reipi sem hafi verið bundið um fætur hans. Dadayev hafi sagst hafa játað á sig morðið til þess að vini hans, sem var hand­tek­inn á sama tíma, yrði sleppt úr haldi. Hann hafi ætlað að segja sann­leik­ann þegar hann kom fyrir rétt á sunnu­dag, en ekki fengið að tala.

Stjórn­völd hafa ekki tjáð sig um ásak­anir Babus­hkin en segja hins vegar að hann hafi brotið lög með því að tjá sig um heim­sókn sína í fang­elsið. Það gæti flokk­ast sem til­raun til að hafa áhrif á rann­sókn máls­ins.

Í við­tali við Dadayev sem birt­ist í dag­blað­inu Moskov­sky Komsomo­lets er haft eftir Dadayev að hann hefði verið lát­inn vera með haus­poka á sér í tvo daga. „Þeir öskr­uðu stans­laust á mig: Drapstu Nemtsov? Ég sagði nei,“ er haft eftir honum þar. Honum hafi hins vegar verið sagt að ef hann ját­aði yrði vinur hans lát­inn laus, og því hafi hann játað. „Ég hugs­aði að þeir myndu bjarga honum, og að ég yrði fluttur lif­andi til Moskvu.“

Hinn mað­ur­inn sem hefur verið ákærður fyrir morðið, Shagid Gubashev, heldur enn fram sak­leysi sínu. Hann seg­ist hafa verið lam­inn og lát­inn vera með haus­poka frá því hann var hand­tek­inn í Ingushetia og þar til hann var kom­inn til Moskvu.

Þrír menn til við­bótar eru í haldi lög­reglu grun­aðir um aðild að morð­inu á Nemtsov, sem var skot­inn fjórum sinnum í bakið í Moskvu seint að kvöldi þann 27. febr­úar. Yfirvöld í Rúss­landi hafa enn ekki gefið út neina ætl­aða ástæðu fyrir því að fimm­menn­ing­arnir hafi myrt Nemtsov.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár