Unnur Brá mun annast samhæfingu loftslagsmála fyrir hönd ríkisstjórnarinnar

Aðstoð­ar­manni rík­is­stjórn­ar­innar verður falið að tryggja sam­hæf­ingu lofts­lags­mála fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar.

Unnur Brá Konráðsdóttir
Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Unni Brá Kon­ráðs­dóttur, aðstoð­ar­manni rík­is­stjórn­ar­innar, verður falið að tryggja sam­hæf­ingu lofts­lags­mála fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta var sam­þykkt á fundi rík­is­stjórn­ar­innar í morgun að til­lögu for­sæt­is­ráð­herra og umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins.

Unnur Brá mun ann­ast sam­hæf­ingu lofts­lags­mála fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar, tryggja yfir­sýn yfir verk­efnið í heild sinni og ann­ast eft­ir­fylgni með fram­gangi lofts­lags­mála í heild, í sam­ræmi við sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar. Þá mun Unnur Brá áfram vera verk­efn­is­stjóri í vinnu við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar og sinna ýmsum öðrum þver­fag­legum verk­efnum sem aðstoð­ar­maður rík­is­stjórn­ar­innar, segir í frétt­inni.

Rík­is­stjórn Íslands hefur sam­þykkt aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum, sem kynnt var 10. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Í aðgerða­á­ætl­un­inni er gerð grein fyrir fyr­ir­hug­uðum verk­efnum í lofts­lags­málum og hvernig unnt sé að hrinda metn­að­ar­fullum áherslum um lofts­lags­mál í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar í fram­kvæmd.

„Þar sem um er að ræða for­gangs­mál rík­is­stjórn­ar­innar sem varðar öll ráðu­neyti í Stjórn­ar­ráði Íslands var sam­þykkt að Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir ann­ist sam­hæf­ingu lofts­lags­mála fyrir hönd rík­is­stjórn­ar­innar. Hugi Ólafsson, skrif­stofu­stjóri í umhverfis- og auð­lind­ráðu­neyt­inu, er for­maður verk­efna­stjórnar aðgerð­ar­á­ætl­unar í lofts­lags­málum sem skipuð var í mars 2018. Þá er lofts­lags­ráð sem skipað var í maí 2018 ætlað að vera stjórn­völdum til aðhalds með mark­vissri ráð­gjöf um stefnu­mark­andi ákvarð­anir sem tengj­ast lofts­lags­málum á Íslandi. Formaður Lofts­lags­ráðs er Halldór Þor­geirs­son,“ segir enn fremur í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár