BRICS-ríkin á krossgötum

Árlegur leið­toga­fundur BRICS-ríkj­anna fór fram í Goa á Indlandi um helg­ina. Hvert er raun­veru­legt mik­il­vægi BRICS-sam­starfs­ins í dag?

Leiðtogar BRICS-ríkjanna hittast við upphaf ráðstefnu þeirra sem fram fór um liðna helgi.
Leið­togar BRICS-ríkj­anna hitt­ast við upp­haf ráð­stefnu þeirra sem fram fór um liðna helgi. Mynd: EPA

Samstarf BRICS-land­anna í núver­andi mynd á upp­haf sitt að rekja til fjár­fest­inga­bank­ans Goldman Sachs og frægrar skýrslu Jim O'Neill frá árinu 2001 þar sem Brasilía, Rússland, Indland og Kína voru álitin eiga það sam­eig­in­legt að geta búist við miklum fram­tíð­ar­hag­vexti, meiri en öll G7-löndin sam­an­lögð, ásamt því að búa yfir nægri stærð - hvað varðar fólks­fjölda, landa­fræði, og auð­lindir - til að geta orðið drif­kraftur alþjóða­hag­kerf­is­ins á næstu ára­tugum. BRIC-löndin sem O'Neill stokk­aði saman stóðu svo sann­ar­lega undir vænt­ingum; sam­an­lögð verg lands­fram­leiðsla BRIC-landana sem hlut­fall af heims­fram­leiðslu hefur rokið upp úr rúmum 8% árið 2001 og uppí tæp 22% árið 2015.

Hið vin­sæla, en þó umdeilda, hug­tak naut gíf­ur­legra vin­sælda á fyrsta ára­tug þess­arar aldar en þó að mestu innan fjár­fest­inga­heims­ins. Á hlið­ar­línu alls­herj­ar­þings Sam­ein­uðu Þjóðanna árið 2006 varð breyt­ing á því þegar leið­togar BRIC-ríkj­anna sáu sér leik á borði og hófu óform­legar við­ræður um sam­starf. Þetta ferli fékk auk­inn byr í segl í kjöl­far heimskrepp­unnar miklu árið 2008; for­sendur sam­starfs BRIC-ríkj­anna byggð­ist mikið á því sam­eig­in­lega við­horfi ríkj­anna að hið vest­ræna alþjóða­stofn­ana­kerfi sem átti sínar rætur í upp­bygg­ingu eft­ir­stríðs­ár­anna sinnti ekki hags­munum þró­un­ar­ríkja nógu vel.

Heimskreppan, sem einnig átti vest­rænar rætur, virt­ist und­ir­strika að hinn póli­tíski raun­veru­leiki alþjóða­sam­skipta end­ur­spegl­aði ekki hinn breytta efna­hags­lega raun­veru­leika þeirra. BRIC-ríkin litu á sig sem leið­toga þró­un­ar­ríkja og því væri það þeirra skylda að bregð­ast við því ójafn­vægi sem aðgerð­ar­leysi alþjóða­stofn­ana hafði í för með sér. Fyrsti form­legi leið­toga­fundur þeirra var haldin í Yeka­ter­ín­burg í Rúss­landi árið 2009, og ríkin fjögur ákváðu að inn­lima Suður-Afríku í hóp­inn árið 2011 - hóp­ur­inn gat jú vart talist málsvari þró­un­ar­ríkja án full­trúa frá Afríku. BRIC varð þar með að BRICS og ljóst var að hug­takið hefði stökk­breyst úr vin­sælu nýyrði í fund­ar­her­bergjum Goldman Sachs á Fleet Street í London og tekið á sig heil­mikla alþjóða­stjórn­mála­lega þýð­ingu.

Veröld ný og góð

Meg­in­a­frakstur sam­starfs BRICS-ríkj­anna er mögu­lega sá að milli­landa­við­skipti á ríkj­anna á milli hafa auk­ist úr 93 í 244 millj­arða banda­ríkja­dala frá árinu 2006 til árs­ins 2015, eða 163%. Þá hefur sam­starf ríkj­anna leitt til stofn­unar Nýja Þró­un­ar­bank­ans (New Develop­ment Bank) árið 2014; sá hefur höf­uð­stöðvar sínar í Shanghai í Kína og hefur alls veitt um 900 millj­ónir Banda­ríkja­dala í lán til „grænna“ verk­efna í aðild­ar­löndum á þessu ári og stefna lán­veit­ingar í tvær og hálfan millj­arð Banda­ríkja­dali á næsta ári. Þessi „BRICS-banki“ er aðskilin frá hinum nýja Inn­viða­fjár­fest­inga­banka Asíu (AIIB) sem Kín­verjar settu á lagg­irnar, Ísland er stofn­að­ili að, og sem er viða­meiri og vand­aðri stofnun.

Samhliða því und­ir­rit­uðu ríkin árið 2015 samn­ing þess efnis að leggja saman í púkkið í hund­rað millj­arða Banda­ríkja­dala gjald­eyr­is­forða­sjóð bundin í aðra gjald­eyri en Banda­ríkja­dal­inn til þess að veita aðild­ar­löndum fleiri val­kosti við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn, stofnun sem hefur gengið illa að umbæta atkvæða­vægi aðild­ar­landa í takt við tím­ann. Þau sóttu í sama brunn á leið­toga­fundi helg­ar­innar þegar sam­þykkt var að stofna mats­fyr­ir­tæki vegna áhyggna gagn­vart því að aðferða­fræði ráð­andi alþjóð­legra mats­fyr­ir­tækja sé óhag­stæð þró­un­ar­ríkjum.

Þá ber að nefna BRICS-sam­starfið einnig haft í för með sér umtals­verða aukn­ingu í sam­vinnu á milli land­anna á sviði öryggis-, heil­brigðis-, land­bún­aðar-, og rann­sókna­mála. Til við­bótar við leið­toga­fund­inn eiga ýmsir ráð­herra­fundir, mál­stofur rann­sókn­ar­setra, og hring­borð vís­inda­manna sér stað árið um kring.

Fílahjörðin í herberginu

Óhætt er þó að segja að aðeins hefur dregið úr þeirri bjart­sýni sem réði ríkjum í hag­spám BRICS-ríkj­anna um mið­bik fyrsta ára­tug þess­arar aldar. Brasilía er í efna­hags­vanda og stjórn­málakrísu og það sama má segja um Suður-Afríku, og Rússland sætir enn umfangs­miklu við­skipta­banni við vest­ræn ríki eftir inn­rás sína á Krím­skaga. Þróun þess­ara landa á síð­ustu árum hefur kynt undir það við­horf að Indland og Kína séu einu ríkin sem gefa sam­starf­inu efna­hags­legt vægi en upp­hafs­mað­ur­inn sjálfur, Jim O'Neill, lét þau orð falla að það stytt­ist í að hann þyrfti að kalla hóp­inn „IC“.

Þó má segja að BRICS sem sam­stíg hefð­bundin póli­tísk blokk hefur aldrei verið mjög sann­fær­andi. Þó að hinar sam­þykktu yfir­lýs­ingar leið­toga­fund­anna fara yfir víðan völl - yfir­lýs­ing fundar helg­ar­innar er rúm sjö þús­und orð að lengd - hafa þær, fyrir utan stofnun þró­un­ar­bank­ans og öðru fjár­mála­sam­starfi, haft í för með sér lítið póli­tískt vægi. Milli­landa­tengsl BRICS sín á milli trompa yfir­leitt þýð­ing­ar­mikið póli­tískt sam­starf og hefur það sýnst ber­lega í fund­ar­höldum helg­ar­innar; for­sæt­is­ráð­herra Indlands, Narendra Modi, umtal­aði nágranna­landið Pakistan sem „móð­ur­skip hryðju­verka“ á meðan Kína umtalar tengsl sín við landið sem „sæt­ari en hun­ang“ - landið er lyk­il­banda­maður í áformum Kína um að koma á við­skipta­leiðum til hafn­ar­borg­ar­innar Gwadar við Persaflóa og þannig kom­ast hjá því að reiða sig á sigl­ing­ar­leiðir um Suður-Kínahaf og Malakka­sund.

Póli­tískar for­sendur BRICS-sam­starfs­ins hafa aldrei verið mjög sterkar enda á sam­starfið ekki upp­runa sinn að rekja til hefð­bund­inna alþjóða­stjórn­mála. Þrátt fyrir að sýnd­ar­mennska hinna árlegu leið­toga­funda skili yfir­leitt fáum bita­stæðum stefnum þá er stofnun Nýja Þró­un­ar­bank­ans og önnur sam­starfs­verk­efni á sviði fjár­mála áþreif­an­legur árangur - lík­legt er að sam­starfið haldi áfram svo lengi sem BRICS-ríkin sjái sér fært að stíga álíka prag­mat­ísk skref.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár