Sagt frá andláti móður sinnar „nánast í sömu andrá og jólin voru hringd inn“

Í bókinni Mamma og ég, segir Kolbeinn Þorsteinsson frá sambandi sínu við móður sína, Ástu Sigurðar­dóttur rithöfund. Á uppvaxtar­árunum þvældist Kolbeinn á milli heimila, með eða án móður sinnar, sem glímdi við illskilj­anleg veikindi fyrir lítið barn. Níu ára gamall sat hann jarðarför móður sinnar og áttaði sig á því að draumurinn yrði aldrei að veruleika – draumurinn um að fara aftur heim.

„Eins undarlegt og það kann að virðast þá eru flest allar minningar mínar um mömmu góðar,“ segir Kolbeinn Þorsteinsson, sem var að gefa frá sér bókina Mamma og ég, þar sem segir frá lífinu þar til móðir hans lést þegar hann var níu ára gamall, en hún hafði lengi barist við óreglu og þá djöfla sem fylgdu fíkninni. Bókin er tileinkuð alsystkinum hans, en hann er næst­yngstur þeirra fimm. Hálf­systkini eru síðan þrjú, eldri og yngri. Bókin er einnig tileinkuð móður hans, sem hann minnist með hlýhug. „Þetta eru ekkert endilega merkilegar minningar, en þetta eru minningar sem ég á og þær eru meira og minna allar góðar. Hún var mamma mín og mamma okkar systkinanna. Þar sem hún var fannst mér gott að vera. Hjá henni vildi ég vera.“

Nema einu sinni. Móðir þeirra var undir eftirliti barna­verndar­yfirvalda og leitaði skjóls með börnin í vanda­mönnum í Dalsmynni. Óróinn …

Kjósa
80
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðbjörg Guðmundsdóttir skrifaði
    Frábært viðtal.
    2
  • Guðný Bjarnadóttir skrifaði
    Gott viðtal við mann sem hefur reynt ýmislegt og lært af því og náð að þroskast. Takk fyrir bókina, er langt komin með hana.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár