Suðurafríska afbrigðið ekki enn greinst á Íslandi – Norðmenn óttast það meira en það breska

Íslensk sótt­varna­yf­ir­völd vita ekki til þess að hið svo­kall­aða suð­ur­a­fríska afbrigði kór­ónu­veirunnar hafi greinst hér á landi. Nokkur til­felli hins breska afbrigðis hafa greinst á landa­mær­unum og eitt smit af því hefur greinst inn­an­lands.

Hið breska afbrigði kórónuveirunnar hefur valdið usla í Evrópu og ennfrekari ferðatakmarkanir verið settar á.
Hið breska afbrigði kór­ónu­veirunnar hefur valdið usla í Evrópu og enn­frek­ari ferða­tak­mark­anir verið settar á. Mynd: EPA

Nýtt afbrigði kór­ónu­veirunnar, kennt við Bretland, hefur nú dreift sér víða um Evrópu. Það er talið meira smit­andi en fyrri afbrigði og því hafa mörg ríki gripið til sér­stakra aðgerða til að halda því úti. En það er annað afbrigði sem einnig er á sveimi og vekur við­líka áhyggjur, jafn­vel meiri. Það er kallað „suð­ur­a­fríska afbrigðið“ og meðal þeirra sem ótt­ast það meira en hið breska er aðstoð­ar­land­læknir Noregs. Afbrigðið greind­ist í fyrsta skipti í Noregi á mánu­dag.

„Við vitum ekki hvort að hið breska afbrigði er komið til Noregs en það suð­ur­a­fríska veldur okkur enn meiri áhyggjum,“ segir aðstoð­ar­land­lækn­ir­inn Espen Rostrup Nakstad í sam­tali við Aften­posten. Hann segir það geta orðið erfitt að halda útbreiðsl­unni í skefjum ef ný og meira smit­andi afbrigði veirunnar „ná fót­festu“ í land­inu. Þá gæti þurft að end­ur­skoða sótt­varna­að­gerðir enn einu sinni. „Við höfum ástæðu til að halda að suð­ur­a­fríska afbrigðið hafi breyst mikið og sé þess vegna meira smit­andi.“

[adspot]

Veirur stökk­breyt­ast stöðugt. Oftast eru stökk­breyt­ing­arnar svo litlar að þær skipta engu máli. En veiran er sjálfselsk, þ.e.a.s. hún breyt­ist sér í hag – og þegar stökk­breyt­ing á sér stað sem veldur auk­inni smit­hættu þá sér hún sér leik á borði að geta smitað fleiri lík­ama.

Hið suð­ur­a­fríska afbrigði hefur einnig greinst í Svíþjóð og Finn­landi. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá sótt­varna­lækni er ekki vitað til þess að það hafi greinst hér á landi. „Þessu afbrigði hefur verið lýst eins og breska afbrigð­inu.,“ segir í svari sótt­varna­læknis við fyr­ir­spurn Kjarnans. „Við vitum að til­felli þess sem kennt er við Bretland hefur komið upp hér á landi, eins og við höfum greint frá.“

Nokkur atriði varð­andi suð­ur­a­fríska kór­ónu­veiru­af­brigðið hafa vakið eft­ir­tekt. Á henni finn­ast fleiri breyt­ingar í gadda­prótein­inu en í því breska sem þykir gefa til kynna að hún er meira smit­andi.

[adspot]

Afbrigðið varð það útbreiddasta í Suður-Afríku í nóv­em­ber og hefur nú haft betur en önnur þar í landi ef svo má að orði kom­ast.

Þá benda rann­sóknir sem gerðar hafa verið í Suður-Afríku til þess að meira veiru­magn af þessu afbrigði safn­ist upp í önd­un­ar­veg­inum þeirra sem sýkj­ast. Einnig á eftir að svara því til fulls hvaða áhrif bólu­setn­ing fólks hefur á sýk­ingu af völdum þessa suð­ur­a­fríska afbrigðis.

Hér er frétta­skýr­ing Politico um hið suð­ur­a­fríska afbrigði kór­ónu­veirunnar.

Hér má lesa sam­an­tekt BBC um afbrigðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár