Sjálfstæðisflokkur einn á móti því að gjaldtakan miðist við tímabundin afnot

Þor­steinn Pálsson hefur skilað grein­ar­gerð um störf nefndar sem átti að finna lausn á gjald­töku í sjáv­ar­út­vegi. Starfi nefnd­ar­innar hefur nú verið slitið.

Full­trúar allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi nema Sjálf­stæð­is­flokks höfðu lýst yfir stuðn­ingi við að gjald­taka fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni ætti að mið­ast við tíma­bundin afnot af henni. Þetta kemur fram í grein­ar­gerð Þor­steins Páls­sonar, sem stýrði nefnd um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni um stöðu mála í nefnd­inni sem send var ráð­herra 13. októ­ber síð­ast­lið­inn. Vegna þing­rofs og kosn­inga hefur starfi nefnd­ar­innar verið slitið.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, skip­aði nefnd í maí 7 til að koma með til­lögur um hvernig megi tryggja sann­gjarna gjald­töku fyrir afnot af sjáv­ar­auð­lind­inni. Í ljósi þing­rofs ákvað Þor­steinn, sem var skip­aður for­maður nefnd­ar­innar, að senda grein­ar­gerð um stöðu mála í starfi hennar. Í bréfi sem fylgir grein­ar­gerð­inni segir Þor­steinn m.a.: „Þegar ákveðið var að rjúfa þing og efna til kosn­inga 28. októ­ber næst­kom­andi stóðu mál þannig að full­trúar tveggja flokka, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks, höfðu lagt fram til­lögur í nefnd­inni, hvor í sínu lagi. Enn­fremur höfðu full­trúar allra flokka, nema Sjálf­stæð­is­flokks, lýst stuðn­ingi við það grund­vall­ar­sjón­ar­mið að gjald­taka skyldi mið­ast við tíma­bundin afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni.“

Þor­steinn segir enn fremur að eftir fund nefnd­ar­innar 6. októ­ber síð­ast­lið­inn hafi hann gert „ráð­herra munn­lega grein fyrir því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn væri ekki á þeirri stundu til­bú­inn að fall­ast á að tíma­bund­inn veiði­réttur skyldi vera grund­völlur gjald­töku fyrir afnot af fisk­veiði­auð­lind­inni. Um leið lét ég það álit mitt í ljós að til­gangs­lítið væri að halda áfram til­raunum til sam­komu­lags um önnur atriði meðan sá flokkur sem fer með for­ystu fyrir rík­is­stjórn opn­aði ekki með ótví­ræðum hætti fyrir lausn á þeirri for­sendu. Þetta mat mitt er óbreytt. Að minni hyggju er tíma­bund­inn afnota­réttur for­senda fyrir því að ná megi tveimur afar mik­il­vægum mark­miðum í lög­gjöf um þessi efni: Annars vegar að laga­regl­urnar end­ur­spegli með alveg ótví­ræðum hætti sam­eign þjóð­ar­innar. Hins vegar að þær megi stuðla að sem mestri þjóð­hags­legri hag­kvæmni veið­anna.“

Fulltrúi Sjálf­stæð­is­flokks í nefnd­inni er Teitur Björn Ein­ars­son alþing­is­maður.

Tvær tillögur lagðar fram

Líkt og áður sagði voru tvær til­lögur lagðar fram á vett­vangi nefnd­ar­innar. Aðra lagði Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, fram í ágúst síð­ast­liðnum. Samkvæmt til­lög­unni skyldi gjald­takan end­ur­spegla arð­semi nýt­ingar auð­lind­ar­innar á hverjum tíma. Jafn­framt skyldi hún við­halda hvötum núver­andi fyr­ir­komu­lags varð­andi sjálf­bæra nýt­ingu. Enn­fremur þyrfti gjald­takan að fela í sér svig­rúm til mót­væg­is­að­gerða á sviði inn­viða­upp­bygg­ingar og vera eins ein­föld og gagnsæ og kostur væri.

„Samkvæmt til­lög­unni skyldu gerðir staðl­aðir nýt­ing­ar­samn­ingar sem væru einka­rétt­ar­legs eðlis. Núver­andi gjald­töku yrði hætt sam­tímis, en í stað þess yrðu lausu samn­ing­arnir seldir á mark­aði. Öll íslensk fiski­skip með leyfi til veiða gætu keypt afla­hlut­deild á mark­aði í sam­ræmi við gild­andi reglur.
Skipulag sölu á afla­hlut­deild yrði hagað á þann hátt að það stuðli að eðli­legri verð­myndun, skil­virkni og sann­gjarnri skipt­ingu ábata. Gert er ráð fyrir að styðj­ast við svo­kallað „clearing house” fyr­ir­komu­lag.
Á hverju ári yrðu 4% nýt­ing­ar­samn­ing­anna lausir og allir nýir samn­ingar væru til 25 ára. Þá skyldi hluti tekna af sölu afla­hlut­deilda renna í sér­stakan inn­viða­sjóð.“

Tilgangslítið að halda áfram vegna andstöðu Sjálfstæðisflokks

Hin til­lagan sem lögð var fram kom frá Páli Jóhanni Pálssyni, full­trúa Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi alþing­is­manni. Hún var einnig lögð fram í ágúst. Lagði hann fram frum­varp sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, vann á sínum tíma í ráðu­neyt­inu en var aldrei lagt fram á Alþingi og ekki birt. í Grein­ar­gerð­inni segir að frum­varpið hafi stað­fest að um tíma­bundna nýt­ing­ar­samn­inga væri að ræða. „Afla­hlut­deildum skyldi ráð­stafa með samn­ingum um leigu á afla­hlut­deild milli íslenska rík­is­ins og aðila sem eiga skip með almennt veiði­leyfi. Gild­is­tími samn­ing­anna var nefndur 23 ár, í það lengsta. Leigu­gjald yrði ákvarðað af ráð­herra með reglu­gerð ár hvert, eigi síðar en 15. júlí. Þá gerði frum­varpið ráð fyrir að veiði­gjöld yrðu ákvörðuð með hlið­sjón af nýrri gögnum en nú er gert og end­ur­spegli betur stöðu fyr­ir­tækj­anna á þeim tíma er þeim er gert að greiða veiði­gjöldin.“

Í grein­ar­gerð­inni segir Þor­steinn frá því að á fundi nefnd­ar­innar 6. sept­em­ber síð­ast­lið­inn hafi hann ítrekað þá skoðun sína að mik­il­væg for­senda fyrir áfram­hald­andi leit að lausn væri sam­staða um að gjald­taka skyldi mið­ast við tíma­bundin afnot auð­lind­ar­innar. Á það hafi allir flokkar geta fall­ist nema Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sem ekki var til­bú­inn til þess að svo komnu máli. „Í beinu fram­haldi af fundi nefnd­ar­innar 6. sept­em­ber síð­ast­lið­inn gerði ég ráð­herra munn­lega grein fyrir því að ég teldi til­gangs­lítið að halda til­raunum til sam­komu­lags um önnur álita­efni áfram að óbreyttri afstöðu for­ystu­flokks rík­is­stjórn­ar­innar til tíma­bund­inna rétt­inda. Þetta mat mitt er óbreytt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár