Baldur Guðlaugsson mun ekki leiða hæfnisnefnd - nefndin skipuð upp á nýtt

Ákveðið hefur verið að skipa nýja hæfn­is­nefnd til þess að meta hæfni umsækj­enda um starf skrif­stofu­stjóra við­skipta-, nýsköp­unar- og ferða­mála í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. 38 sóttu um starfið og einn kvart­aði yfir ferl­inu.

Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að Baldur Guð­laugs­son, lög­fræð­ingur og fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóri, hefði verið skip­aður for­maður hæfn­is­nefnd­ar­innar. Gylfi Dalmann Aðal­steins­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands og Helga Hlín Hákon­ar­dóttir lög­fræð­ingur voru einnig í nefnd­inni.

Í til­kynn­ingu frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu kemur fram að tveir af þremur nefnd­ar­mönnum í hæf­is­nefnd­inni hafi haft bein eða óbein per­sónu­leg tengsl við umsækj­endur. Heim­ildir Kjarnans herma að þar hafi verið um að ræða Baldur og Helgu Hlín.

Nefnd­ar­menn höfðu ákveðið áður en vitað var hverjir sæktu um starfið að þeir myndu segja sig frá þátt­töku í mati á umsókn við­kom­andi umsækj­enda. Það varð því úr að Baldur og Helga tóku ekki þátt í við­tölum við þá umsækj­endur sem þau höfðu ein­hver tengsl við. Öllum umsækj­endum var sagt frá þessu og starfs­maður nefnd­ar­innar tók sæti í henni þegar svona stóð á. Þá er tekið fram í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins að í engu til­fell­anna hafi verið um að ræða ský­lausar van­hæfn­is­á­stæður í skiln­ingi stjórn­sýslu­laga, „heldur mót­að­ist afstaða nefnd­ar­manna af ítr­ustu var­færn­is­sjón­ar­miðum.“

Hins vegar kvart­aði einn umsækj­andi undan þessu ferli eftir að við­tölum var lokið, vegna þess að um væri að ræða heild­stætt ferli þyrftu allir nefnd­ar­menn að fjalla um alla umsækj­endur. Ákveðið var því að end­ur­skipa nefnd­ina svo ekki skap­að­ist óvissa eða ágrein­ingur um ráðn­ing­ar­ferlið.

Baldur Guð­laugs­son var árum saman ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Hann var færður til í starfi eftir að ný rík­is­stjórn tók við árið 2009 og yfir í mennta­mála­ráðu­neytið. Hann lét af störfum þar í októ­ber 2009 í kjöl­far þess að sér­stakur sak­sókn­ari hóf rann­sókn á mögu­legum inn­herj­a­við­skiptum Baldurs í aðdrag­anda banka­hruns­ins, en hann seldi bréf sín í Lands­bank­anum í sept­em­ber 2008 fyrir um 192 millj­ónir króna. Þann 7. apríl 2011 var Baldur dæmdur í tveggja ára fang­elsi í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Sá dómur var stað­festur í Hæsta­rétti í febr­úar 2012. Baldur lauk afplánun sinni á árinu 2013. Hann hefur starfað sem ráð­gjafi á lög­manns­stof­unni Lex frá haustinu 2012.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár