Baldur Guðlaugsson metur hæfni skrifstofustjóra í atvinnuvegaráðuneyti

Baldur Guð­laugs­son lög­fræð­ingur hefur verið skip­aður for­maður hæf­is­nefndar sem á að meta umsækj­endur um starf skrif­stofu­stjóra í atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu. Sigurður Ingi Jóhanns­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, skipar nefnd­ina. Gylfi Dalmann Aðal­steins­son, dós­ent við við­skipta­fræði­deild Háskóla Íslands, og Helga Hlín Hákon­ar­dóttir lög­fræð­ingur eru einnig í nefnd­inni.

Starfið sem um ræðir er starf skrif­stofu­stjóra við­skipta-, nýsköp­unar og ferða­þjón­ustu, en það var nýlega aug­lýst laust til umsóknar. Alls sóttu 38 manns um starfið, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu.

Baldur Guð­laugs­son var árum saman ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Hann var færður til í starfi eftir að ný rík­is­stjórn tók við árið 2009 og yfir í mennta­mála­ráðu­neytið. Hann lét af störfum þar í októ­ber 2009 í kjöl­far þess að sér­stakur sak­sókn­ari hóf rann­sókn á mögu­legum inn­herj­a­við­skiptum Baldurs í aðdrag­anda banka­hruns­ins, en hann seldi bréf sín í Lands­bank­anum í sept­em­ber 2008 fyrir um 192 millj­ónir króna. Þann 7. apríl 2011 var Baldur dæmdur í tveggja ára fang­elsi í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Sá dómur var stað­festur í Hæsta­rétti í febr­úar 2012. Baldur lauk afplánun sinni á árinu 2013. Hann hefur starfað sem ráð­gjafi á lög­manns­stof­unni Lex frá haustinu 2012.

Þriggja manna hæfn­is­nefndir eru venju­lega skip­aðar þegar aug­lýst eru störf ráðu­neyt­is­stjóra og skrif­stofu­stjóra í ráðu­neytum. Til­gang­ur­inn er að stuðla að því að val á þessum emb­ætt­is­mönnum ráð­ist af hæfni umsækj­enda og grund­vall­ist á ráðn­ing­ar­ferli þar sem jafn­ræði og gagn­sæi eru höfð að leið­ar­ljósi. Það er við­kom­andi ráð­herra sem skipar nefnd­ina hverju sinni og á hann sam­kvæmt reglum að gæta þess að „þar sé fyrir hendi góð þekk­ing á starf­semi Stjórn­ar­ráðs Íslands og mannauðs­málum.“

Hæfn­is­nefndir fá greiddar þókn­anir fyrir störf sín, en það er þókn­ana­nefnd sem ákveður laun nefnd­ar­manna á grund­velli erindis og gagna frá við­kom­andi ráðu­neyti.

Athuga­semd klukkan 15:30: Upp­haf­lega stóð í frétt­inni að Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, skipi nefnd­ina, en það er Sigurður Ingi, vegna þess að hann fer með starfs­manna­mál í ráðu­neyt­inu sem þau deila. Skrif­stofan heyrir hins vegar undir Ragn­heiði Elínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár