Formlegar viðræður hafnar í Reykjavíkurborg

Fimm flokkar til­kynntu um form­legar meiri­hluta­við­ræður fyrir stundu. Það eru Flokkur fólks­ins, Píratar, Sam­fylk­ingin, Vinstri græn og Sós­í­alista­flokkur Íslands.

Hér má sjá borgardætur á góðri stundu. Frá vinstri eru Helga Þórðardóttir, Flokkur fólksins, Heiða Björg Hilmisdóttir, Samfylkingin, Líf Magneudóttir, Vinstri græn, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Sósíalistaflokkur Íslands og Dóra Björt Guðjónsdóttir, Píratar
Hér má sjá borg­ar­dætur á góðri stundu. Frá vinstri eru Helga Þórð­ar­dóttir, Flokkur fólks­ins, Heiða Björg Hilm­is­dóttir, Sam­fylk­ingin, Líf Magneu­dóttir, Vinstri græn, Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, Sós­í­alista­flokkur Íslands og Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, Píratar

Sós­í­alista­flokkur Íslands, Vinstri græn, Píratar, Flokkur fólks­ins og Sam­fylk­ingin eru byrjuð í form­legum meiri­hluta­við­ræðum að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá flokk­unum. Yfir­lýs­ingin er örstutt og segir í fyr­ir­sögn að fimm flokkar hygg­ist hefja form­legar við­ræður um sam­starf á félags­legum grunni.

Svo segir orð­rétt: „Markmið okkar er að setja vel­ferð og lífs­kjör allra Reyk­vík­inga í for­grunn. Við ætlum að vanda vel til verka og munum upp­lýsa um gang mála eftir því sem vinnan þró­ast.“

Meiri­hlut­inn sprakk fyrir helgi þegar borg­ar­stjóri Reykja­víkur og odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, Einar Þor­steins­son, til­kynnti um slit á meiri­hluta eftir fund með odd­vitum Pírata, Sam­fylk­ingar og Við­reisnar. Síðan þá hafa flokk­arnir reynt að tala sig saman með mis­jöfnum árangri, en um tíma var stefnt á að hefja við­ræður á milli Flokks fólks­ins, Við­reisnar, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks. Þeim var snar­lega slitið eftir að Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, sagð­ist aldrei vilja leiða Sjálf­stæð­is­menn til valda og bar fyrir sig aðgangs­harða gagn­rýni flokks­ins og Morg­un­blaðs­ins vegna styrkja­máls­ins svo­kall­aða.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár