Stjórnarþingmenn andvígir ákvæðum stjórnarskrárfrumvarps

Þingmenn úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks og einnig Fram­sókn­ar­flokks hafa gagn­rýnt ýmis ákvæði stjórn­ar­skrár­frum­varps Katrínar Jak­obs­dóttur sem gengið er til nefndar.

Gagnrýna ákvæði frumvarpsins
Gagnrýna ákvæði frum­varps­ins Stjórn­ar­þing­menn utan VG sem ræddu frum­varpið gagn­rýndu allir ein­stök ákvæði þess.

Tæpt verður að ná meiri­hluta um ýmis ákvæði stjórn­ar­skrár­frum­varps Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra nema stuðn­ingur stjórn­ar­and­stöð­unnar komi til. Stjórn­ar­þing­menn, flestir úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa meðal ann­ars gagn­rýnt ákvæði frum­varps­ins um for­seta Íslands, nátt­úru­vernd og auð­lindir í umræðum um málið á Alþingi.

Katrín lagði frum­varpið fram sem þing­manna­frum­varp, en ekki stjórn­ar­frum­varp, sem þing­menn úr röðum Sjálf­stæð­is­flokks, sam­starfs­flokks hennar í rík­is­stjórn, bentu ítrekað á í umræð­unum. Áttu for­menn allra stjórn­mála­flokka á Alþingi fjölda funda á kjör­tíma­bil­inu, en ekki náð­ist sam­staða um að þeir stæðu saman að stjórn­ar­skrár­frum­varpi til að leggja fram fyrir þing­kosn­ingar í ár.

Hefur frum­varpið hlotið nokkra gagn­rýni frá þing­mönnum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna, meðal ann­ars á þeim grund­velli að ekki sé litið nægi­lega til til­lagna stjórn­laga­ráðs sem kosið var um í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 2012. Hafa þing­menn úr röðum Sam­fylk­ingar og Pírata lýst sig til­búna til að styðja …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár