Ísland skarar framúr í tossaskap við innleiðingu EES-gerða

Íslands er með lang­mestan halla allra ríkja sem eiga aðild að samn­ingnum um Evrópska efna­hags­svæðið (EES) í að inn­leiða til­skip­anir og reglu­gerðir vegna hans. Inn­leið­ing­ar­halli Íslands er líka langvar­andi. Samkvæmt nýju frammi­stöðu­mati Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, eru 67 pró­sent þeirra samn­inga­brota­mála sem eru á borði stofn­un­ar­innar gegn Íslandi og þrettán mál gegn Íslandi eru rekin fyrir EFTA-dóm­stólnum vegna inn­leið­inga EES-gerða.

Þetta er staðan þrátt fyrir að rík­is­stjórn Íslands hafi sam­þykkt nýja Evr­ópu­stefnu í byrjun síð­asta árs sem átti nán­ast að eyða inn­leið­ing­ar­hall­anum á fyrri hluta árs 2015. Þess í stað hefur hann aldrei verið meiri.

Frammistaða Íslands mikið áhyggjuefni


Rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti það mark­mið í fyrra, í nýrri Evr­ópu­stefnu sinni, að inn­leið­ing­ar­halli yrði undir einu pró­senti á fyrri hluta árs­ins 2015. Samhliða sam­þykkti rík­is­stjórn Íslands að ekk­ert dóms­mál ætti að vera fyrir EFTA-dóm­stólnum á fyrri hluta þessa árs. Þau eru nú þrettán og hafa aldrei verið fleiri. Þetta kemur fram í frétt á heima­síðu eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, vegna nýs frammi­stöðu­mats stofn­un­ar­innar sem sýnir þennan mikla inn­leið­ing­ar­halla Íslands. Þar segir enn­fremur að eitt af meg­in­mark­miðum EES-samn­ings­ins sé eins­leitni lög­gjafar allra samn­ings­að­ila og „að ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki njóta ávallt sam­svar­andi rétt­inda hvar svo sem þau eru á innri mark­aðnum á Evrópska efna­hags­svæð­inu, sem nú telur 31 ríki. Mikil ábyrgð hvílir á lög­gjaf­ar­starfi hér á landi við að tryggja að þessu mark­miði megi ná og við­halda og þannig tryggja þessa rétt­ar­stöðu ein­stak­linga og fyr­ir­tækja á öllum sviðum. Er hér um ítr­ustu hags­muni að ræða.“

Samkvæmt nýju frammi­stöðu­mati ESA, sem sýnir stöð­una í nóv­em­ber 2014, er inn­leið­ing­ar­halli Íslands 2,8 pró­sent. Í frétt vegna birt­ingar mats­ins á heima­síðu ESA er haft eftir Helgu Jóns­dóttur, stjórn­ar­manni í ESA, að stjórnin hefði sér­stak­lega fagnað stefnu­mörkun rík­is­stjórn­ar­innar um fram­kvæmd EES-samn­ings­ins í fyrra. Nú geti hún „ekki annað en áréttað að frammi­staða Íslands eins og hún hefur verið und­an­farin ár er mikið áhyggju­efni.“

Framfarir við innleiðingu reglugerða


Með und­ir­ritun samn­ings­ins um Evrópska Efna­hags­svæðið, sem tók gildi 1. jan­úar 1994, skuld­bundu Ísland og hin EFTA-ríkin sig til að inn­leiða ýmsar til­skip­anir og reglu­gerðir til að sam­þætta mark­aðs­svæði sitt við innri markað Evr­ópu­sam­bands­ins. Inn­leið­ing þess­arra til­skip­ana og reglu­gerða hefur oft­ast nær verið í tölu­verðum ógöngum á Íslandi. Lítið fjár­magn hefur verið sett í að yfir­vara þær og til að reyna að hafa áhrif á gerð þeirra. Því hafa þær að mestu borist til inn­leið­ingar í íslensk lög óbreyttar. Inn­leið­ingu hverrar til­skip­unar og reglu­gerðar fylgir síðan ákveð­inn aðlög­un­ar­tími. Sé til­skip­unin eða reglu­gerð ekki inn­leidd innan þess tíma er talað um inn­leið­ing­ar­halla. ESA, sem hefur eft­ir­lit með fram­kvæmd EES-samn­ings­ins, getur farið með, og gerir það ítrekað, mál fyrir EFTA-dóm­stól­inn til að knýja á inn­leið­ingu ef hún hefur ekki stað­ist gefin tímara­mma.

Tvisvar á ári er fram­kvæmt frammi­stöðu­mat sem sýnir hvernig Íslandi, Noregi og Liechtenstein gengur að inn­leiða þessar til­skip­anir og reglu­gerðir innri mark­aðs Evrópu á réttum tíma. Í nýjasta frammi­stöðu­mat­inu kemur fram að inn­leið­ing­ar­halli Íslands er 2,8 pró­sent sem jafn­gildir því að 31 til­skipun hafi ekki verið inn­leidd að fullu á réttum tíma. Inn­leið­ing­ar­halli Íslands er sá mesti á meðal EFTA-ríkj­anna, og raunar allra ríkja sem eiga aðild að EES-samn­ingnum. Hann er til dæmis tvö pró­sent hjá Norð­mönnum (23 óinn­leiddar til­skip­anir). Inn­leið­ing­ar­hall­inn innan Evr­ópu­sam­bands­ins er að með­al­tali 0,5 pró­sent og ein­ungis Slóvenía er með inn­leið­ing­ar­halla yfir einu pró­sentu á meðal aðild­ar­ríkja.

Ísland hefur hins vegar, sam­kvæmt frammi­stöðu­mat­inu, tekið sig á hvað varðar inn­leið­ingu reglu­gerða. Slíkum sem voru komin fram yfir gefin tíma­mörku fækkar um 42 á milli frammi­stöðu­mata og voru 34 í nóv­em­ber síð­ast­liðnum. Samn­ings­brota­mál á borði ESA voru alls 244 í nóv­em­ber. 164 þeirra, 67 pró­sent mál­anna, voru gegn Íslandi.

Ísland þarf að taka sig á


Helga Jóns­dóttir segir að innri mark­aður Evr­ópu­ríkj­anna og óhindruð sam­skipti og við­skipti fyrir fólk og fyr­ir­tæki bygg­ist á því að laga­reglur um þau mál séu sams­konar. „Tímanleg inn­leið­ing sam­eig­in­legra reglna er for­senda þess að hægt sé að tryggja jafn­ræði á innri mark­aðnum og öll EES ríkin eru skuld­bundin til að virða tíma­mörk í því efni. EFTA ríkin þurfa öll að taka sig á en það á þó sér­stak­lega við Ísland þar sem hall­inn hefur verið langvar­andi og sá lang­mesti á öllu Evrópska efna­hags­svæð­inu.“

[caption id="attachment_12503" align="align­right" width="150"] Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda.[/caption]

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda.

Félag atvinnu­rek­enda fjál­l­aði um inn­leið­ing­ar­vanda Íslands á heima­síðu sinni þann 8. apríl síð­ast­lið­inn. Þar segir Ólafur Steph­en­sen, fram­kvæmda­stjóri Félags atvinnu­rek­enda, það vera brýnt hags­muna­mál íslenskra fyr­ir­tækja að sömu reglur gildi hér á landi og ann­ars staðar á EES, til að tryggja aðgang þeirra að hinum sam­eig­in­lega mark­aði. „Rík­is­stjórnin hefur því miður ekki fylgt stefnu sinni eftir með því að ráðu­neytin og sendi­ráð Íslands í Brussel fái þann mann­skap og fjár­veit­ingar sem þarf til að tryggja þessa hags­muni. Það skaðar hags­muni íslensks atvinnu­lífs. Nú þegar rúmt ár er liðið frá sam­þykkt stefn­unnar án þess að hún hafi skilað sýni­legum árangri, hljóta menn að þurfa að end­ur­skoða hvernig eft­ir­fylgn­inni er háttað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár