Einungis eitt prósent íslensks landbúnaðar lífrænt vottaður

Aðeins eitt pró­sent af íslenskum land­bún­aði hlýtur líf­ræna vottun. Anna María Björns­dóttir segir hvata­styrki fyrir líf­rænan land­búnað líkt og er í ESB vanta hér­lendis. Í nýrri heim­ild­ar­mynd hennar, GRÓA, má sjá að Ísland er eft­ir­bátur í mála­flokknum en yfir­völd stefna þó að tíföldun líf­rænnar vott­unar á næstu fimmtán árum.

Anna María Björnsdóttir
Anna María Björns­dóttir Telur mik­il­vægt að íslenskur land­bún­aður geti verið líf­rænt vott­aður. Mynd: Víkingur

Aðeins eitt pró­sent af land­bún­aði á Íslandi hefur hlotið líf­ræna vottun. Í dag vantar meiri hvata sem auð­veldar líf­ræna land­bún­að­ar­hætti og eru í sam­ræmi við það sem tíðkast erlendis. Þetta kemur fram í nýrri heim­ild­ar­mynd Önnu Maríu Björns­dóttur, fram­leið­anda og leik­stjóra, sem ber heitið GRÓA og fjallar um líf­rænan land­búnað á Íslandi. Myndina vann hún ásamt kvik­mynda­gerð­ar­mann­inum Tuma Bjarti Valdi­mars­syni. 

Blaða­maður spyr hvort að töl­fræðin hafi komið Önnu Maríu á óvart. „Mjög svo,“ svarar hún og bætir við: „Til dæmis stefnir Evr­ópu­sam­bandið á 25 pró­sent líf­rænt vottað land­bún­að­ar­land eftir fimm ár og Ísland er ennþá í einu pró­senti.“ Hún segir að Ísland sé nú vissu­lega komið með háleitt mark­mið um að tífalda líf­ræna fram­leiðslu en slíkt á að ger­ast á næstu fimmtán árum. 

Lífrænir kúa­bændur á ÍslandiEinungis fjórir af fimm­hund­ruð kúa­bændum eru með líf­ræna vottun.

„Þetta eru rosa­lega lágar tölur,“ segir …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár