Ólögleg fíkniefni mælast í skólpkerfum Reykjavíkur

Öll algeng­ustu ólög­legu fíkni­efnin á mark­aðnum er að finna í mæl­an­legu magni í skólp­kerfum Reykja­víkur. Nið­ur­stöður nýrrar dokt­ors­rann­sóknar sýna tölu­verðar sveiflur milli daga. Lyfja­fræð­ingur segir að með aðferð­inni verði hægt að áætla neyslu fíkni­efna.

Amfetamín, kókaín, kanna­bis og metam­fetamín eru á meðal þeirra ólög­legu fíkni­efna sem finn­ast í skólp­kerfum Reykja­víkur. Þetta stað­festa nið­ur­stöður dokt­ors­rann­sóknar Arndísar Sue Ching Löve lyfja­fræð­ings hjá rann­sókna­stofu Háskóla Íslands í lyfja- og eit­ur­efna­fræði.

„Í fyrsta lagi vildum við vita hvort hægt væri að mæla þessi efni í frá­rennsl­inu yfir höfuð,” segir Arndís og bendir á að Íslend­ingar noti mun meira vatn heldur en aðrar Evr­ópu­þjóðir, eða allt að þrisvar sinnum meira. Auk þess má gera ráð fyrir að hita­veitan minnki stöð­ug­leika efn­anna í frá­veit­unni.

Meira magn af kókaíni og MDMA eftir helgina

Hún safn­aði skólp­sýnum á sjö daga tíma­bili síð­ast­liðið sumar, 27. júní til 3. júlí, í skólp­hreinsi­stöð Veitna við Kletta­garða. Þangað kemur skólp frá um það bil helm­ingi Reykja­víkur og nágrennis, að mið­bænum með­töldum.

„Við vildum hafa mið­bæ­inn með í mæl­ing­unum, þar sem stórum hluta fíkni­efn­anna er lík­lega neytt þar á skemmti­stöðum” segir hún. 

Efnin skila sér út úr lík­ama neyt­enda aðal­lega með þvagi í frá­rennsl­is­vatnið. Skimað var fyrir amfetamíni, metam­fetamíni, kóka­íni, MDMA, sem er virka efnið í e-töflum, THC, sem er virka efnið í kanna­bis, og metýlfenídati, eða rital­ini. Öll efnin mæld­ust í skólp­inu alla sjö dag­ana, en meira var af kóka­íni og MDMA yfir helg­ina heldur en virku dag­ana. Hin efnin voru með jafn­ari dreif­ingu og ganga má út frá því að neyslan á þeim sé jafn­ari. Mest mæld­ist af THC og amfetamíni, en kókaín fylgdi þar á eftir.

Arndís segir vatns­notkun og frá­rennsli mjög mis­mun­andi eftir löndum og borgum heims­ins, en nið­ur­stöður hennar leiða í ljós að nú er hægt með óyggj­andi hætti að mæla fíkni­efni í skólp­inu hér eins og erlendis.

Með mæl­ing­unum er með góðu móti hægt að skoða viku­sveiflur í notkun á fíkni­efnum. Arndís bendir á að brýn nauð­syn sé á að safna næst sýnum á öðrum árs­tímum til að sjá mun­inn og hvort það sé sam­ræmi á milli nið­ur­staðn­anna. Mun meira sé að ger­ast á sumrin og nefnir þar ferða­menn, úti­legur og stórar hátíðir sem dæmi.

Hægt að finna út notkun fíkniefna eftir útihátíðir

Arndís hóf rann­sókn sína haustið 2014, í sam­starfi við OR og Verkís, og mun halda henni áfram þar til hægt verður að bak­reikna styrk­inn og yfir­færa nið­ur­stöð­urnar á heild­ar­notkun efn­anna. Til þess þarf að taka fleiri sýni og reikna inn breytur eins og fjölda fólks á svæð­inu, flæði vatns­ins og fleira. Eftir að þær nið­ur­stöður fást er hægt að bera Ísland saman við önnur lönd.

„Með þess­ari aðferð er hægt að fá nið­ur­stöður á mjög skömmum tíma og þannig hægt að meta sveiflur í notkun sem og aðgengi að efn­unum” segir Arndís. „Það er aðal­á­vinn­ing­ur­inn með þess­ari aðferð­ar­fræði.”

Hún bendir á að áhuga­vert væri að taka sýni fyrir og eftir stórar skemmt­anir eða úti­há­tíðir, eins og Menn­ing­arnótt eða Þjóð­há­tíð í Eyjum. Með því er hægt að sjá með réttum útreikn­ingum, nán­ast svart á hvítu, hversu miklu magni fíkni­efna var neytt á tíma­bil­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár