Kastljós birtir tölvupóstsamskipti við Júlíus Vífil

Það er ekki rétt að Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafi leið­rétt nokkuð af umfjöllun Kast­ljóss um mál­efni hans og fjöl­skyldu hans í gær, eins og hann heldur fram í Morg­un­blað­inu í dag. Hann kaus þvert á móti að svara engum spurn­ingum. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá rit­stjórn Kast­ljóss í dag. Kastljós hefur einnig birt tölvu­póst­sam­skipti sín við Júlíus Vífil.

Í Morg­un­blað­inu í dag segir Júlíus Vífill að honum þyki þáttur Kast­ljóss í gær hafa verið lág­punktur í frétta­flutn­ingi og hann hafi verið „yf­ir­fullur af rang­færsl­u­m.“ Hann seg­ist hafa leið­rétt margt í sím­tölum við stjórn­endur þátt­ar­ins en lít­ill áhugi hafi verið á því að fá „nema eina bjag­aða hlið á mál­in­u.“ Hann útskýrir ekki í hverju þessar rang­færslur felist.

„Kastljós hefur marg­ít­rekað reynt að fá svör og við­brögð Júlíusar Vífils við því sem til umfjöll­unar var í þætti gær­kvölds­ins. Það hefur verið gert í sím­tölum og með tölvu­pósti. Júlíusi voru sendar ítar­legar spurn­ingar í kjöl­far sím­tals hans og frétta­manns. Þar voru borin undir hann efn­is­at­riði umfjöll­unar Kast­ljóss í öllum meg­in­at­riðum, greint frá þeim gögnum sem Kastljós hafði aflað, borin undir hann frá­sögn systk­ina hans og óskað við­bragða. Þrátt fyrir ítrek­anir í tölvu­pósti og mörg sím­töl, neit­aði hann að svara nokkru af þeim spurn­ingum eða bregð­ast við þeim efn­is­at­riðum sem undir hann voru borin,“ segir í yfir­lýs­ingu Kast­ljóss.

Í póst­inum sem Kastljós birtir, og var sendur frá Helga Seljan til Júlíusar á mánu­dag, er hann spurður ítar­lega út í málið. „Samkvæmt frá­sögn systk­ina þinna og syst­ur­sonar munt þú hafa við­ur­kennt fyrir þeim í sím­tölum eftir umfjöllun fjöl­miðla um félag þitt Silwood og banka­reikn­inga þess, að þar væri um að ræða fé sem upp­runið væri í þeim sjóðum sem faðir þinn og móðir áttu erlendis, og leitað hefur verið að. Getur þú stað­fest þetta? Ef ekki hvað er rangt í þess­ari frá­sögn þeirra?“ er Júlíus meðal ann­ars spurður. Hann er spurður fjöl­margra spurn­inga og einnig boðið að koma því á fram­færi sem hann vill. Hann svar­aði ekki póst­inum.

Póstinn má lesa í heild sinni hér að neðan, eins og hann birt­ist á Facebook-síðu Kast­ljóss.

From: Helgi Seljan 

Sent: mánu­dagur, 16. maí 2016 15:03
To: 'Julius Ingv­ars­son'
Cc: Þóra Arn­órs­dóttir
Subject: Vegna umfjöll­unar Kast­ljóss

Sæll Júlíus,
Eins og ég ræddi við þig áðan er mik­il­vægt að fá frá þér svör og skýr­ingar þínar eftir atvikum á þeim atriðum sem ég nefndi við þig í síð­asta lagi um klukkan 14 á morgun, þriðju­dag. Með­fylgj­andi eru spurn­ingar sem ég ræddi við þig í sím­tal­inu.
Það væri fínt að fá að heyra frá þér sem fyrst í fram­hald­inu varð­andi það með hvaða hætti þú vilt svara þessu. Þá hvort þú veitir við­tal eða kjósir að gera það með öðrum hætti.
Samkvæmt frá­sögn systk­ina þinna og syst­ur­sonar munt þú hafa við­ur­kennt fyrir þeim í sím­tölum eftir umfjöllun fjöl­miðla um félag þitt Silwood og banka­reikn­inga þess, að þar væri um að ræða fé sem upp­runið væri í þeim sjóðum sem faðir þinn og móðir áttu erlendis, og leitað hefur verið að.

- Getur þú stað­fest þetta? Ef ekki hvað er rangt í þess­ari frá­sögn þeirra?
- Hefurðu boð­ist til að greiða fjár­mun­ina inn í dán­ar­búið? 
- Um hversu mikið fé er að ræða? 
- Hvers vegna voru sjóðir föður þíns og móður í þinni vörslu? 
- Hvers vegna hafð­irðu ekki gert fjöl­skyld­unni grein fyrir þessu fyrr?

Samkvæmt gögnum sem varða stofnun félags­ins Silwood á Panama og upp­setn­ingu þess, barst tæp­lega 2000 doll­ara greiðsla vegna stofn­unar Silwood til Mossack Fonseca frá úti­búi UBS bank­ans á Jersey, sam­kvæmt þinni beiðni og af þínum reikn­ingi.

- Geturðu stað­fest þessar upp­lýs­ingar? Er eitt­hvað rangt í þeim og þá hvað?
- Hver var til­gangur þessa reikn­ings á Jersey?
- Höfðu sjóðir for­eldra þinna eða föður verið á sama stað?
- Voru fjár­munir úr sjóðum for­eldra þinna á reikn­ingnum á Jersey áður en þú stofn­aðir reikn­ing­inn í Panama?
- Hvers vegna þurft­irðu að leita til Mossack Fonseca um stofnun félags í Panama til þess að stofna „Trust“ eða sjóð, þegar nákvæm­lega sams­konar þjón­usta er í boði hjá UBS á Jersey?

Samkvæmt gögnum sem varða félagið Lindos Alliance var félagið stofnað á Tortóla í októ­ber 2001. Sama félag keypti stuttu síðar tæp­lega 20% hlut í tveimur íslenskum félögum, Ingvari Helga­syni og Bíl­heimum, fyrir nokkur hund­ruð millj­ónir króna. Samkvæmt fund­ar­gerðum og skjölum sem varða hluta­fjár­kaup Lindos Alliance í fyr­ir­tækj­unum íslensku, kynntir þú fjár­fest­ingu Lindos fyrir hlut­höfum í íslensku félög­unum tveimur, og hafðir umboð til þess að skrifa undir skjöl og fara með hlut þess hér á landi, meðal ann­ars kaup­samn­inga þegar félagið var selt árið 2004.

- Hver var eig­andi Lindos Allliance?
- Hvers vegna var félagið sagt í Lúx­em­borg þegar fyrir liggur að það var stofnað og skrá­sett á eynni Tortóla?
- Hvaðan komu fjár­mun­irnir sem Lindos Alliance not­aði til við­skipt­anna?
- Þegar Lindos Alliance og aðrir hlut­hafar í IH og Bíl­heimum seldu hluti sína til nýrra eig­enda árið 2004 átti Lindos Alliance kröfu á íslensku félögin fyrir hátt í 100 millj­ónir króna. Hvernig var þessi krafa Lindos Alliance til­kom­inn? 
- Samkvæmt frá­sögnum þeirra sem tóku við rekstr­inum eftir að fyr­ir­tækið fór úr hönd­unum fjöl­skyld­unnar árið 2004, var lögð rík áhersla á að þessi krafa Lindos Alliance yrði greitt að fullu og gerð upp áður en gengið yrði frá söl­unni; jafn­vel þó fyrir lægi að aðrir kröfu­hafar félag­anna ættu ekki kost á að fá kröfur sínar upp­gerðar að fullu eða á þeim tíma­punkti? Hver er skýr­ingin á þessu?

Systkini þín segj­ast hafa fengið veður af því nokkru eftir að fyr­ir­tæki fjöl­skyld­unnar voru seld árið 2004, að stuttu eftir and­lát föður ykkar árið 1999 hafi kauptil­boði fyrir marg­falt hærri upp­hæð en félagið var að lokum selt á, verið hafnað í fyr­ir­tækið (talan 3 millj­arðar króna var nefnd í þessu sam­bandi) Að þetta til­boð hafi ekki verið borið undir stjórn eða aðra hlut­hafa, heldur hafið þið Guð­mundur Ágúst og Helgi Ingv­ars­synir hafn­aði til­boð­inu?

- Geturðu stað­fest þessa frá­sögn? Er hún röng? Að hvaða leyti?

Annað sem þú vilt koma á fram­færi.

Með kveðju
Helgi Seljan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár